Býr í köldu húsi sem Arion banki tók yfir

Ingvar Lúðvík Guð­björns­son seg­ist vakna á nótt­unni við kuld­ann í hús­inu sem hann átti áður en leigir nú af Arion banka. Bankinn neitar að láta gera við hita­lagnir húss­ins. Ingvar er öryrki eftir að hita­veiturör féll á hann rétt fyrir alda­mót. Leigu­samn­ingi hans við bank­ann lýkur 1. októ­ber og sér Ingvar fram á að þurfa að búa í hús­bíl sínum.

Býr í köldu húsi sem Arion banki tók yfir
Kalt sumar Ingvar segir næt­urkulda í sumar hafa haft slæm áhrif á heilsu sína. Mynd: Kristinn Magnússon

Ingvar Lúðvík Guð­björns­son hefur hírst í sínu fyrr­ver­andi húsi á Akranesi í allt sumar án virkra hita­lagna. Ingvar er öryrki eftir vinnu­slys árið 1999, bak­veikur eftir að rör féll á hann. Hann missti hús sitt til Arion banka fyrir um tveimur árum og hefur síðan leigt það af bank­anum og alltaf staðið í skilum. Hita­lagnir fóru þó í upp­hafi sum­ars vegna tær­ingar og hefur Arion banki ítrekað neitað að láta lag­færa þær, að sögn Ingvars. Í sumar hefur Ingvar því sofið í öllum fötum og seg­ist iðu­lega vakna við kuld­ann á nótt­unni. Leigu­samn­ingur hans við bank­ann rennur út 1. októ­ber og sér hann fram á þurfa að búa í hús­bíl sínum eftir þann dag.

„Ég á bara mánuð eftir, leigu­samn­ing­ur­inn hljóðar bara upp á einn mánuð í við­bót og þá þarf ég að koma mér út. Eftir því sem þeir segja mér þá á ég að fara út. Þeir hirtu húsið af mér. Ég er bara með leigu­samn­ing upp á þrjá mán­uði. Síðasti mán­uð­ur­inn er næsti mán­uður. Það fer að kólna svo að það er ekk­ert að fara að ganga að vera hérna,“ segir Ingar.

„Eftir því sem þeir segja mér þá á ég að fara út. Þeir hirtu húsið af mér.“

Ítrekað óskað eftir viðgerðum

Húsið er gam­alt og friðað, byggt árið 1903. Samkvæmt Ingvari er eignin 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár