Borguðu ekkert fyrir þyrlufyrirtæki sem skilar tugmilljóna hagnaði

Eigendur fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Sunds seldu stærsta þyrlu­fyr­ir­tæki lands­ins út úr félag­inu áður en það varð gjald­þrota. 120 millj­óna króna lán frá Sundi er inni í nær gjald­þrota félag­inu. Norð­ur­flug hefur hagn­ast um 160 millj­ónir á tveimur árum. Skipta­stjóri Sunds hefur fengið við­skipt­unum rift.

Borguðu ekkert fyrir þyrlufyrirtæki sem skilar tugmilljóna hagnaði
120 millj­ónir bár­ust ekki Fyr­ir­tækið BF Holding ehf. keypti nærri 70% hluta­fjár í þyrlu­fyr­ir­tæk­inu Norð­ur­flugi á 120 millj­ónir og var veitt selj­enda­lán til kaupanna. Þessi greiðsla barst hins vegar aldrei inn í þrotabú Sunds en eig­endur Norð­ur­flugs í dag eru fyrr­ver­andi eig­endur Sunds.

Þyrlu­fyr­ir­tæki kaup­sýslu­mann­anna sem stóðu að fjár­fest­ing­ar­félag­inu Sundi á árun­um fyrir hrunið hefur skilað 160 millj­óna króna hagn­aði á síð­ustu tveimur árum. Fyr­ir­tækið heitir Norð­ur­flug og er stærsta og þekktasta þyrlu­leiga lands­ins. Eigendur Norður­flugs eru meðal ann­ars þeir Páll Þór Magn­ús­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sunds, Páll Krist­jáns­son og Birgir Ómar Haralds­son sem allir voru hlut­hafar og/eða stjórn­ar­menn í Sundi á sínum tíma fyrir hrunið.  Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið í fyrra. 

Greiddu ekkert fyrir Norðurflug 

Hlut­hafar Norð­ur­flugs greiddu hins vegar ekki neitt fyrir 2/3 hluta hluta­fjár í fyr­ir­tæk­inu þegar þeir keyptu hluta­bréfin út úr Sundi ehf., síðar Icecapital ehf., í des­em­ber árið 2008, skömmu eftir hrunið. Sund stefndi þá í gjald­þrot og höfðu þáver­andi eig­endur félags­ins, sem síðar eign­uð­ust Norð­ur­flug, aukið hlutafé Norð­ur­flugs með pen­ingum frá Sundi sam­kvæmt skipta­stjóra 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár