Boðaði gerandann á fund: „Ekki lengur hrædd“

Björk Brynjars­dóttir mælti sér mót við mann­inn sem braut á henni í æsku og fékk hann til að horfast í augu við gjörðir sínar. „Ég bind vonir mínar við að hann leiti sér hjálpar, enda óskin sú að út úr þess­ari tragík komi tveir þroskaðir og heil­brigðir ein­stak­lingar.“

Boðaði gerandann á fund: „Ekki lengur hrædd“

Björk Brynjars­dóttir, einn af stofn­endum tíma­rits­ins Blævar, steig fram í fyrra og sagði frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hún varð fyrir 6 ára gömul. Ger­and­inn var 14 ára gam­all fjöl­skyldu­vinur sem fékk að gista á heim­ili hennar. Björk lýsti því í við­tali við Frétta­tím­ann hvernig dreng­ur­inn fékk hana inn í her­bergi til sín og bauðst til að kenna henni svo­lítið. „Ég var á þeim aldri að ég vildi læra allt í heim­inum svo ég fór með honum,“ sagði hún og lýsti því hvernig dreng­ur­inn braut á henni kyn­ferð­is­lega. „Hann ítrek­aði að þetta væri litla leynd­ar­málið okkar.“

Í dag segir Björk frá því í stöðu­upp­færslu á Facebook hvernig hún boð­aði ger­and­ann til fundar við sig og fékk hann til að horfast í augu við gjörðir sínar. Í byrjun febr­úar á þessu ári hitti hún mann­inn. „Ég hafði ekki hug­mynd hvað fund­ur­inn myndi leiða í ljós en þetta sner­ist fyrst og fremst um að ég gæti end­ur­heimt líf mitt aftur og horfst í augu við minn stærsta ótta. Það er skemmst frá því að segja að þennan dag tók mað­ur­inn sem beitti mig ofbeldi í fyrsta sinn ábyrgð á verkn­að­inum,“ skrifar Björk og bætir því við að hún geti ekki talað fyrir hönd ger­and­ans en leyfi sér þó að full­yrða að sam­talið hafi ekki aðeins verið léttir fyrir sig heldur einnig hann.

„Að hafa beitt ofbeldi er þung byrði að bera með sér og það er mik­il­vægt að hann fái líka rými til að vinna úr þeim pakka. Ég bind vonir mínar við að hann leiti sér hjálpar, enda óskin sú að út úr þess­ari tragík komi tveir þroskaðir og heil­brigðir ein­stak­lingar.“

Stundin ræddi við Björk og fékk leyfi til að birta frásögn hennar í heild hér að neðan:

Mamma segir stundum að ég þurfi að passa að standa vörð um sjálfa mig. Ég á það til að deila of miklu og treysta of mörgum. Mamma var oggu­ponku stressuð í fyrra þegar ég ákvað að fara í við­tal og segja frá kyn­ferð­is­of­beldi sem ég var beitt sex ára gömul. En stundum er það að standa vörð um sjálfan sig að ber­skjalda sig fyrir umheim­inum, því lífið verður miklu bjart­ara þegar maður dregur gard­ín­urnar frá.
____________
Það voru tveir hlutir sem ég vissi fyrir víst að myndu fylgja við­tal­inu. Í fyrsta lagi myndi öryggis- og stuðn­ings­netið mitt sjö­fald­ast á örstuttum tíma og ég myndi ekki lengur þurfa að burð­ast með afleið­ing­arnar ein og í laumi. Ég á þessu ríki­dæmi sem vinir mínir eru, svo gríð­ar­lega mikið að þakka. Þekkj­andi sjálfa mig vissi ég hins vegar líka að við­tal­inu myndi fylgja ákveðið bakslag, þó grun­aði mig ekki hversu stórt það yrði né hvenær það kæmi.

Bakslagið kom í lok ágúst­mán­aðar í fyrra en þá átt­aði ég mig loks á því hversu lítið Ísland er. Fyrr en síðar myndi ég hitta á ger­anda í partýi eða þurfa að afgreiða ofan í hann kaffi­bolla. Á kom­andi mán­uði stig­magn­að­ist stressið og hræðslan um að ég myndi rekast á hann. Ég var aldrei róleg, hvorki í vinnu né skóla og þegar ég lagð­ist upp í rúm í lok dags fór ég beint í fight or flight mode. Ég hélt mér því vak­andi og upp­tek­inni eins lengi og ég gat eða drakk nokkra bjóra til að auð­velda leið­ina inn í drauma­land. Þar dreymdi mig hins vegar hverja martröð­ina á fætur annarri. Að lokum hætti ég að geta sofið og orkan sil­að­ist hægt og rólega úr mér. Ég grét og reidd­ist þar til tárin voru búin og drakk mig meira og minna fulla allan des­em­ber­mánuð. 

Alveg komin á þrösk­uld upp­gjafar leit­aði ég til fag­að­ila og fékk þar að heyra ískald­ann sann­leik­ann: að eina lausnin við þeirri bug­andi hræðslu að hitta á mann­inn sem beitti mig ofbeldi, væri að hitta mann­inn sem beitti mig ofbeldi. 

Eftir svefn­lausa nótt í jan­úar tók ég því upp sím­tólið og hringdi í ger­anda. Ragn­hildur vin­kona hélt í hönd­ina á meðan ég kynnti mig sem "Björk Brynjars, stelpuna sem þú beittir kyn­ferð­is­of­beldi árið 2000" og þurrk­aði tárin í spennu­fall­inu að sím­tali loknu. Símtalið var ótrú­legur sigur, þó bara smá­vægi­legur miðað við það sem koma skyldi, því við höfðum mælt okkur mót að mán­uði liðnum.

Það var því í byrjun febr­úar sem ég flaug með gubb­una í mag­anum af stressi norður á fyr­i­r­á­ætl­aðan fund. Ég hafði ekki hug­mynd hvað fund­ur­inn myndi leiða í ljós en þetta sner­ist fyrst og fremst um að ég gæti end­ur­heimt líf mitt aftur og horfst í augu við minn stærsta ótta. Það er skemmst frá því að segja að þennan dag tók mað­ur­inn sem beitti mig ofbeldi í fyrsta sinn ábyrgð á verkn­að­inum.

Ég get ekki talað fyrir hönd ger­anda en leyfi mér þó að full­yrða að sam­talið var líka léttir fyrir hann. Að hafa beitt ofbeldi er þung byrgði að bera með sér og það er mik­il­vægt að hann fái líka rými til að vinna úr þeim pakka. Ég bind vonir mínar við að hann leiti sér hjálpar, enda óskin sú að út úr þess­ari tragík komi tveir þroskaðir og heil­brigðir ein­stak­lingar.

Í sumar gerði ég að lokum þá kröfu um að hann myndi segja fjöl­skyldu­með­limum sann­leik­ann um það sem raun­veru­lega gerð­ist fyrir fimmtán árum. Í kjöl­far þess fór ég aðra ferð norður og ræddi við fólkið hans. Í því fólst ótrú­leg hreinsun því kyn­ferð­is­af­brot snerta yfir­leitt fleiri en bara ger­anda og brota­þola.

Síð­ast­liðið ár hef ég með­vitað reynt að troða kyn­ferð­is­of­beldi inn í allar sam­ræður í þeirri von að einn dag­inn muni fólki ekki bara þykja umræðan sjálf­sögð heldur auð­veld líka. Því þögnin lamar, ekki bara brota­þola heldur sam­fé­lagið allt. 

Við eigum það til að "velja lið" þegar kemur kyn­ferð­is­of­beldi. Í því skyni langar mig minna á að rétt eins og við erum með fullu fólki í liði þegar við tökum af því bíllyklana eftir partí, erum við í liði með ger­endum þegar við hjálpum þeim að taka ábyrgð á gjörðum sínum. 
________
Kyn­ferð­is­of­beldi er ekki eitt­hvað sem maður fyr­ir­gefur og í svona málum er voða litlu rétt­læti að ná. En maður lærir að lifa með þessu. Ég er búin að end­ur­heimta svefn­inn og ork­una og í fyrsta sinn er ég ham­ingju­söm á nokk­urra skil­yrða. Ég er ekki lengur hrædd því þegar maður hefur haldið á tar­antúlu hræða litlar köngulær mann ekki lengur (ég er samt ennþá hrædd við köngulær en einn dag­inn mun ég halda á tar­antúlu og þá verð ég queen of the uni­verse).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár