Boðað til mótmæla: „Borgið okkur mannsæmandi laun og hættið að nauðga okkur“

Mótmæli gegn kyn­ferð­is­of­beldi og launa­mis­rétti í mið­borg Reykja­víkur.

Boðað til mótmæla: „Borgið okkur mannsæmandi laun og hættið að nauðga okkur“
Frá mót­mælum kvenna Mótmæli hafa tíðkast á Kvenna­frí­dag­inn 24. októ­ber.

Boðað hefur verið til mót­mæla­stöðu á Aust­ur­velli í dag. Yfir­skrift mót­mæl­anna er: „Engin hel­vítis blóm: Borgið okkur mann­sæm­andi laun og hættið að nauðga okkur“.

Í mót­mæl­unum er fólk hvatt til að mála and­lit sitt í app­el­sínu­gulum eða gulum lit í sam­ræmi við prófíl­myndir á Facebook. „App­el­sínugular og gular prófíl­myndir stíga út úr netheimum og mæta fólki í raun­heimum. Tökum hinn fagra gjörn­ing Eddu Ýr Garð­ars­dóttur lengra og mætum á Aust­ur­völl 19. júní með app­el­sínugul eða gul and­lit. App­el­sínugul and­lit fyrir þau okkar sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, gul and­lit fyrir þau okkar sem vita af ein­hverjum sem hefur orðið fyrir slíku eða ef við viljum sýna brota­þolum sam­stöðu. Gular myndir eru líka fyrir þau okkar sem ekki eru til­búin að opin­bera sig því að til þess að galopna sig á þennan hátt er þörf á mik­illi úrvinnslu. En sýnum sam­stöðu og berj­umst gegn því ofbeldi sem þöggun er. App­el­sínugular og gular prófíl­myndir: Mætum á Aust­ur­völl í allri okkar dýrð!“

App­el­sínugular prófíl­myndir á Facebook merkja að við­kom­andi hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, en þær gulu merkja að við­kom­andi þekki ein­hvern sem orðið hefur fyrir því.

Tilefni mót­mæl­anna er ekki síst ákvörðun stjórn­valda að setja lög til að stöðva verk­fall Banda­lags háskóla­manna og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga. „Konur hafa kvartað undan lágum launum í áraraðir, okkur er sagt að við þurfum að vera ákveðnar og sækja okkur. Hvað ger­ist þá? Það eru sett á okkur lög.“

Mót­mæla­staðan kemur í kjöl­far „skrúð­göngu“ sem hefst klukkan 15.45 frá Mið­bæj­ar­skóla. Hér má kynna sér mót­mælin.

Ræða frá karli í tilefni dagsins

Einn þátt­tak­enda í mót­mæl­unum, María Lilja Þrast­ar­dóttir, gagn­rýnir opin­bera hátíð­ar­dag­skrá Kven­rétt­inda­dags­ins á Facebook. „Það er skelfi­lega sorg­legt að á 100 ára afmæli kosn­inga­rétt­ar­ins skuli ekk­ert vera í hátíð­ar­dag­skrá sem tekur mið af þeirri sterku fem­inísku undir­öldu sem hefur rutt sér til rúms und­an­farna mán­uði. Í stað þess að mæta kröfum kvenna og 100+ ára bar­áttu okkar fyrir jafn­rétti á að heiðra okkur með blóm­sveigum, ræðu frá karl­manni; Einari K. Guð­finns­syni, for­seta Alþingis og for­láta styttu af (með fullri virð­ingu) íhaldsamri for­rétt­inda­konu.“ 

„Í stað þess að mæta kröfum kvenna og 100+ ára bar­áttu okkar fyrir jafn­rétti á að heiðra okkur með blóm­sveigum, ræðu frá karl­manni.“

Í dag á milli klukkan 16 og 17 verður athöfn við Aust­ur­völl í Reykja­vík, og víðar um land. Dag­skrána má sjá hér. Í Reykja­vík mun Einar K. Guð­fins­son veita ávarp frá svölum Alþing­is­húss­ins. Þá mun Vigdís Finn­boga­dóttir flytja „ávarp til æsk­unnar“. Auk þess verður afhjúpuð högg­mynd af fyrstu alþing­is­kon­unni, Ingi­björgu H. Bjarna­son, við Skála Alþingis. Nánari dag­skrá í Reykja­vík má sjá hér.

Fjölbreytt dagskrá ungra femínista

Auk athafnar á Aust­ur­velli er fjöl­breytt dag­skrá á vegum UngFem í Ráð­hús­inu undir slag­orð­inu: „Engin hel­vítis blóm“. Á dag­skránni eru eft­ir­far­andi atburðir:

- Hljóm­sveitt 
- Uppi­stand: Bylgja Babýlons og Snjólaug Lúð­víks­dóttir
- Myndband frá Kitty Von Sometime
- Fyr­ir­lestur Eydísar Blöndal og Bjarkar Brynjars­dóttur um druslu­skömmun
- Fyr­ir­lestur Stein­unnar Ólínu Haf­liða­dóttur um brota­þolenda­skömm
- Skilta­gerð í sam­vinnu við Druslu­göng­una
- Helstu tíð­indi úr bylt­ingum vetr­ar­ins, #kon­ur­tala og #freethenipple (bolir til sölu til styrktar Stíga­mótum!)
- Myndlist eftir Heiðrúnu Grétu Vikt­ors­dóttur, Hildi Ásu Henrýs­dóttur og Camillu Reuter
- Opinn míkró­fónn, ljóð­list og ýmis­legt fleira

Lokanir í tilefni dagsins

Þá verður starfs­fólki Reykja­vík­ur­borgar og fleiri sveit­ar­fé­laga gefið frí í til­efni dags­ins. „Leik­skólar, félags­mið­stöðvar, frí­stunda­heim­ili og frí­stunda­klúbbar verða lok­aðir eftir klukkan 12.00. Þjón­ustu­ver Reykja­vík­ur­borgar lokar klukkan 12 en opið verður í síma­ver­inu til 16.15.

Lokað verður hjá mat­væla­eft­ir­liti, hunda­eft­ir­liti, bygg­ing­ar­full­trúa og heil­brigð­is­eft­ir­liti en síma­vakt heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins verður opin.
Upp­lýs­inga­mið­stöð ferða­manna, Árbæj­ar­safn, Land­náms­sýn­ingin, Sjó­minja­safnið, Kjar­vals­staðir, Hafn­ar­hús og Ásmund­ar­safn verða opin að venju.

Starfs­fólk sorp­hirð­unnar verður starf­andi, ákveð­inn hópur á hverfa­stöðvum, þeir sem sinna örygg­is­þjón­ustu, svo sem umferð­ar­ljósa­eft­ir­liti ofl. Fjöl­skyldu­garð­ur­inn verður lok­aður frá 13.00-18.00

Sund­laug­arnar verða opnar.

Skrif­stofur Reykja­vík­ur­borgar í Ráð­hús­inu og í Höfða­torgi 12 – 14 verða lok­aðar frá klukkan 12.00.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár