Bjarni ræðst á Vísi: „Þessi blaðamennska er skandall“

Frétt um mál sem hafa reynst stjórn­ar­meiri­hlut­anum erfið á síð­ustu vikum vekur hörð við­brögð.

Bjarni ræðst á Vísi: „Þessi blaðamennska er skandall“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er harð­orður í garð frétta­mið­ils­ins Vísis í stöðu­upp­færslu dags­ins á Facebook. Þar segir hann að fjöl­miðlar eigi að veita aðhald og vera vett­vangur opinnar umræðu um mik­il­væg þjóð­fé­lags­mál. „En það þarf að vanda sig.“

Tilefnið er frétt sem birt­ist á Vísi fyrr í dag undir heit­inu „Hver skandall­inn á fætur öðrum“. Þar eru listuð upp fimm mál sem eru sögð hafa reynst rík­is­stjórn­inni og meiri­hlut­anum erfið, en sam­kvæmt frétt­inni hafa þau verið óvenju mörg á síð­ustu tveimur vikum: Hús­næð­is­mál Illuga, mak­ríl­mál Sigurðar Inga, mak­ríl­kvóti til kon­unnar, raf­orku­skattur Bjarna og arð­greiðslur úr Borgun.

Bent er á að traust á rík­is­stjórn­inni og fylgi við stjórn­ar­flokk­ana hafi farið þverr­andi frá kosn­ingum. Stjórnin hafi sætt harðri gagn­rýni fyrir hin ýmsu mál, en síð­ustu vikur hafi þó verið sér­lega erf­iðar fyrir stjórn­ar­meiri­hlut­ann þar sem ofan­greind máli hafi mætt harðri and­stöðu eða gagn­rýni.

Svar Bjarna við frétt­inni er að hún sé raka­laus þvætt­ingur: „Vilji menn gefa sig út fyrir að gæta hlut­leysis og vand­aðrar blaða­mennsku geri ég þá kröfu fyrir mitt leyti að það sé ekki boðið upp á raka­lausan þvætt­ing og slegið yfir feit­letraðri fyr­ir­sögn.“

Frétt um raforkuskattinn: „Skandall“

Síðan svarar hann þeim atriðum sem snúa að honum og „fara í skandala­flokk­inn hjá rit­stjórn visis.is“ að hans mati, umfjöllun um raf­orku­skatt­inn og Borgun.

Í frétt Vísis er greint frá því að Bjarni hafi til­kynnt að ekki stæði til að fram­lengja raf­orku­skatt sem rennur út um ára­mótin. „Álfyr­ir­tæki á Íslandi greiddu 1,6 millj­arða í þennan skatt á síð­asta ári. Skatt­ur­inn, sem var lagður á tíma­bundið árið 2009 til þriggja ára, var fram­lengdur árið 2012 og gildir því út árið 2015,“ segir í frétt­inni. „Áform Bjarna um að fram­lengja ekki skatt­inn vöktu hörð við­brögð og kall­aði Kristinn Hrafns­son, tals­maður Wikileaks, Ísland Kongó norð­urs­ins.“

„Mín nið­ur­staða þessi frétta­mennska er skandall.“

Um þetta segir Bjarni: „Raf­orku­skattur fellur niður um næstu ára­mót. Í frétt dags­ins segir að ég hafi til­kynnt þetta á fundi Samáls. Hið rétta er að þetta hefur legið fyrir síðan 2013. Þá var visi.is svo mikið niðri fyrir vegna máls­ins að þeir sögðu mig vera að svíkja þá stefnu sem boðuð hefði verið fyrir kosn­ingar sbr. með­fylgj­andi neð­an­greinda frétt. Fyrst (2013) leggur visir.is upp með að það sé skandall að fella ekki skatt­inn niður fyrr en 2015. Svo er því haldið fram að þetta sé nýá­kveðið og að það sé skandall að hann falli niður 2015. Mín nið­ur­staða þessi frétta­mennska er skandall.“

Umfjöllun um Borgun: Líka „skandall“

Þá segir Vísir frá þeim fyr­ir­ætl­unum Borgunar að greiða eig­endum sínum arð upp á 800 millj­ónir króna í fyrstu arð­greiðslu fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2007. „Salan á Borgun, sem er að nær öllu leyti í eigu rík­is­ins, hefur verið harð­lega gagn­rýnd en hlutur bank­ans í fyr­ir­tæk­inu var ekki boð­inn út í opnu sölu­ferli.“

Í kaup­enda­hópnum var frændi Bjarna Bene­dikts­sonar, Einar Sveins­son.

 „Varla er skandall­inn að frændi ráð­herra, sem ekk­ert hefur með málið að gera, sé í kaup­enda­hópnum?“

Um þetta segir Bjarni: „Lands­bank­inn selur Borgun. Þessi skandall er skrif­aður á fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Fyrir þessum banka fer stjórn. Í stjórn­ina er skipað af Banka­sýsl­unni alger­lega án afskipta ráð­herra. Þessi frétt lætur að því liggja að ráð­herra eigi að bera ábyrgð á ákvörð­unum bank­ans. Rit­stjórn visis.is er sam­kvæmt þessu þeirrar skoð­unar að ráð­herra eigi að stjórna Lands­bank­anum. Mín skoðun er sú að sú afstaða er skandall. 
Varla er skandall­inn að frændi ráð­herra, sem ekk­ert hefur með málið að gera, sé í kaup­enda­hópnum? 
Þessi blaða­mennska er fyrir mér skandall.“

Ritstjórn svarar ráðherra

Við frétt Vísis má nú lesa yfir­lýs­ingu frá rit­stjórn Vísis þar sem athuga­semdum Bjarna er svarað. 

„Í grein­inni, eins og fram kemur í upp­hafi hennar, eru tekin fyrir mál sem hafa sætt gagn­rýni. Bæði atriðin sem Bjarni nefnir – raf­orku­skattur og Borg­un­ar­málið – hafa sætt mik­illi gagn­rýni, eins og dæmi eru tekin um í frétt­inni. 

Rit­stjórn Vísis hefur ekki tekið afstöðu til þeirra mála sem um ræðir að öðru leyti en þá að málin hafa verið umdeild. Í umfjöllun um raf­orku­skatt­inn kemur skýrt fram að skatt­ur­inn hafi gilt út 2015 og því ekki um nýja ákvörðun að ræða. Í umfjöllun um arð­greiðslur úr Borgun er því hvergi haldið fram að Bjarni hafi séð um söl­una á eign­ar­hlut Lands­bank­ans,“ segir í yfir­lýs­ingu frá rit­stjórn Vísis. 

Frétt Vísis má lesa hér. Færslu Bjarna má sjá hér að neðan: 

Fjöl­miðar eiga að veita aðhald og vera vett­vangur opinnar umræðu um mik­il­væg þjóð­fé­lags­mál. En það þarf að vanda sig. ...

Posted by Bjarni Bene­dikts­son on Sunday, May 10, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár