Bjarni braut niður staðalmyndir með kökuskreytingum - Aðeins þriðjungur þingmanna flokks hans konur

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra ræddi köku­skreyt­ing­ar­á­huga sinn og vildi brjóta niður stað­al­myndir kynj­anna sem full­trúi Íslands í jafn­rétt­isátak­inu He for She í New York. Aðeins þriðj­ungur þing­manna í flokki Bjarna eru konur og væri meiri­hluti þing­manna konur ef ekki væri fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Sagðist ekki baka kök­una heldur skreyta hana. Mynd: Forsætisráðuneytið

„Það sem þið sjáið hér eru bleikar hendur,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra á fundi með stjórn­endum UN Women í New York í gær í til­efni af alþjóð­legum bar­áttu­degi kvenna. 

Bjarni er þar sem full­trúi Íslands vegna þess að Ísland er eitt af tíu ríkjum þar sem hæst hlut­fall karl­manna skrif­aði nafn sitt undir yfir­lýs­ingu vegna jafn­rétt­isátaks­ins HeForShe. Hann er titl­aður einn af málsvörum HeForShe, einn tíu þjóð­ar­leið­toga.

Bjarni greindi frá því á fund­inum í gær að hann væri með bleikar hendur vegna mat­ar­litar sem hann hafði notað við að skreyta köku með merki He for She. „Þetta er ekki vegna þess að ég hafi fjar­lægt nagla­lakk af hönd­unum á mér, þetta er vegna ein­hvers sem mér finnst gaman að gera, og ég gerði í gær­kvöldi, sem var að baka köku. Þetta var úr mat­ar­litnum fyrir syk­ur­mass­ann.“ 

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu kemur fram að Bjarni hefði afhent Elizabeth Phumzile, fram­kvæmda­stýru UN Women, kök­una sem hann skreytti, á fund­inum.  

„Auk þess að ræða mik­il­vægi þess að brjóta niður staðalí­myndir og að virkja karla í jafn­rétt­is­bar­átt­unni, lagði for­sæt­is­ráð­herra áherslu á launa­jafn­rétti kynj­anna og mik­il­vægi jafn­launa­stað­als­ins í þeim aðgerðum,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Jafnréttismál í ólestri í flokki Bjarna

Bjarni hefur verið gagn­rýndur á Íslandi fyrir að hafa ekki tekið afstöðu með jöfnu kynja­hlut­falli á Alþingi. Kynja­hlut­föll þing­manna stjórn­mála­fram­boða á Alþingi eru nokkuð jöfn, en í Sjálf­stæð­is­flokknum eru konur aðeins þriðj­ungur þing­manna. Þar sem konur eru 47,6 pró­sent þing­manna er ljóst að mun­ur­inn liggur í Sjálf­stæð­is­flokknum.

Allir flokkar fyrir utan Sjálf­stæð­is­flokk­inn höfðu reglur eða við­mið um kynja­hlut­föll á list­unum sínum. Í kjöl­far próf­kjara Sjálf­stæð­is­flokks­ins sögðu þrír for­menn Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna, þáver­andi og fyrr­ver­andi, sig úr flokknum. Í yfir­lýs­ingu frá Helgu Dögg Björg­vins­dóttur, Jarþrúði Ásmunds­dóttur og Þórey Vil­hjálms­dóttur kom fram að þær hefðu gef­ist upp á að breyta íhalds­sömum við­horfum í flokknum. „Nú teljum við full­reynt að hreyfa við þeim íhalds­sömu skoð­unum og ­gildum sem ríkja um jafn­rétt­is­mál í Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Ýmis­ skref hafa verið stigin sem ættu að leiða til auk­ins jafn­rétt­is kynj­anna á síð­ustu árum. Víð­tæk and­staða hefur þó ver­ið ­gegn því að ganga lengra í að breyta kerfi og ásýnd flokks­ins í þá veru að konur fáist til þátt­töku.“

Einn af þeim sem hafa gagn­rýnt að Bjarni sé í for­svari fyrir Ísland í sam­hengi jafn­rétt­isátaks­ins er Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Vinstri grænna. „Ok. Bjarni mun þá kannski segja frá því að ef ekki væri fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn, þá væru konur í meiri­hluta á Alþingi í fyrsta skipti. Að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, einn flokka, hafi ekki gripið til neinna aðgerða til að leið­rétta stöðu kvenna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár