Birgitta biðst afsökunar: „Ég elska Skagafjörð“

Kapteinn Pírata biðst afsök­unar á ummælum sínum. „Elsku Skaga­fjöður og allt fólkið sem þar býr: Fyr­ir­gefðu!“

Birgitta biðst afsökunar: „Ég elska Skagafjörð“

Byggð­ar­ráð Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar krafð­ist þess á fundi sínum í gær að Birgitta Jóns­dóttir, kapteinn Pírata, biðj­ist opin­ber­lega afsök­unar á ummælum sínum um sveit­ar­fé­lagið. Birgitta svar­aði kall­inu á Facebook-síðu sinni í morgun þar sem hún end­ur­birti meðal ann­ars grein sem hún birti opin­ber­lega þann 18. maí þegar hún sá að ummæli hennar um að Skaga­fjörður væri Sikiley Íslands olli „óbreyttum sveit­ungum for­feðra sinna hug­ar­angri og van­líðan“. Taldi hún sig hafa beðist for­láts með orðum sínum fyrr í mán­uð­inum, en segir í morgun að mögu­lega hafi hún ekki kveðið nægi­lega fast að orði. „Hér kemur það hreint og beint: Elsku Skaga­fjöður og allt fólkið sem þar býr: Fyr­ir­gefðu!“ skrifar Birgitta meðal ann­ars. 

Skilningsleysi á stöðu landsbyggðarinnar

Forsagan er sú að þann 14. maí síð­ast­lið­inn skrif­aði Birgitta Jóns­dóttir á Facebook-síðu sinni: „Skaga­fjörður er Sikiley Íslands“ með frétt frá Stund­inni sem fjallar um skag­firsk áhrif á slit aðild­ar­við­ræðna rík­is­stjórnar Íslands við Evr­ópu­sam­bandið. Í grein­inni er bent á að form­leg slit á við­ræðum sé mikið hags­muna­mál fyrir Kaup­fé­lag Skag­firð­inga en Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, hefur sterk tengsl við kaup­fé­lagið. 

Byggð­ar­ráð Sveit­ar­fé­lags­ins Skaga­fjarðar lýsti í gær furðu sinni og fullri van­þóknun á ummælum Birgittu Jóns­dóttur: 

„Ummæli af þessu tagi lýsa fullu skiln­ings­leysi þing­manns­ins á stöðu lands­byggð­ar­innar til við­halds og upp­bygg­ingar á atvinnu- og mann­lífi og ákveðni Skag­firð­inga til að standa vörð um þessa grunn­þætti í sínu hér­aði. 

Það að þing­mað­ur­inn gefi í skin að Skaga­fjörður sé mafíu­sam­fé­lag, sem þrífst á glæpum og glæpa­tengdri starfs­semi er með öllu ólíð­andi og óverj­andi og sæmir ekki þing­mönnum né nokkrum öðrum. 

Er það von okkar Skag­firð­inga að þing­mað­ur­inn hefji umræð­una upp úr þeirri lág­kúru sem þessi ummæli báru með sér og í þá veru að efla traust og til­trú almenn­ings á Alþingi, alþing­is­mönnum og störfum þeirra. Er þess kraf­ist að þing­mað­ur­inn bið­ist opin­ber­lega afsök­unar á ummælum sínum,“ segir í ályktun byggða­ráðs.  

Ekki ætlunin að særa

Eins og áður segir skrif­aði Birgitta Jóns­dóttir grein þann 18. maí síð­ast­lið­inn þar sem hún útskýrir ummæli sín. Hér er grein Birgittu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár