Lögreglumaður segir frá hryllilegri stöðu fólks sem fellur utan kerfisins

„Öskrin sem við heyrðum voru virki­lega óhugn­an­leg,“ segir lög­reglu­mað­ur­inn Birgir Örn Guð­jóns­son, sem vekur athygli á því hvernig íslenskt sam­fé­lag er að bregð­ast okkar allra veikasta fólki með því að gera sjúka að lög­reglu­máli.

Lögreglumaður segir frá hryllilegri stöðu fólks sem fellur utan kerfisins

Birgir Örn Guð­jóns­son, betur þekktur sem Biggi lögga, vekur athygli á bágri stöðu fíkla í pistli á Facebook-síðu sinni í dag. Hann bendir á tvö nýleg dæmi sem komu inn á borð lög­reglu í sömu vik­unni þar sem lög­reglan hafði verið kölluð á vett­vang því engin önnur úrræði voru í boði fyrir við­kom­andi. 

„Við höfðum verið kall­aðir að íbúð manns sem sagður var hafa verið ölv­aður í ein­hvern tíma og í slæmu ástandi. Sá sem tók á móti okkur við lyft­una og var­aði okkur við lykt­inni var nágranni hans úr næstu íbúð. Þegar við gengum inn fann ég hvernig mér sveið í augun og háls­inn. Það er erfitt að lýsa lykt­inni sem tekur við manni þegar aðili hefur legið í sóf­anum í marga daga án þess að hreyfa sig. Eins og oft hjá eldra fólki var heitt inni í íbúð­inni og gerði það lykt­ina af svita, þvagi og saur síst bæri­legri. Eftir nokkra vikna túr hafði mað­ur­inn veikst og þarna hafði hann legið án þess að geta tjáð sig eða hreyft. Hann var kom­inn með alvar­leg legu­sár á lík­amann og hefði senni­lega ekki lifað af einn eða tvo daga í við­bót,“ skrifar Birgir Örn og seg­ist hafa tekið eftir því að um fyrr­ver­andi lög­reglu­mann hafi verið að ræða. Þegar hann hafi farið að skoða mál þessa mannst komst hann að því að lög­reglan hafi komið til hans nokkru áður og að haft hafi verið sam­band við aðila innan heil­brigð­is­kerf­iss­ins til að reyna að koma mann­inum úr þess­ari stöðu. „Reyna að bjarga honum frá því sem kom svo á dag­inn að gerð­ist. Þar var því miður komið að lok­uðum dyrum.“

„Öskrin sem við heyrðum voru virki­lega óhugn­an­leg.“

Hitt til­fellið sem Birgir Örn rekur er útkall vegna mik­illa öskra sem bár­ust frá íbúð. „Þegar við komum að íbúð­inni heyrðum við að þar gekk eitt­hvað mikið á. Öskrin sem við heyrðum voru virki­lega óhugn­an­leg. Við bönk­uðum og tókum okkur stöðu við hurð­ina, til­búin að takast á við snar­óðan ösk­andi mann. Okkur til undr­unar opn­að­ist hurðin rólega og fyrir framan okkur stóð algjör­lega edrú kona. Hún leit á okkur ráð­þrota en samt greini­lega fegin að sjá okkur,“ skrifar hann. Öskrin innan úr íbúð­inni komu frá mann­inum hennar, sprautu­fíkli sem væri ný fall­inn eftir margra mán­aða edrú­mennsku. „Á stofu­gólf­inu lá mað­ur­inn hennar og öskr­aði eins og hann væri í ljósum logum. Þetta minnti einna helst á atriði úr hryll­ings­mynd. Maðurinn lá öskr­andi á bak­inu, snérist í hringi og engd­ist um. Hann var algjör­lega sam­bands­laus við umheim­inn. Sjúkra­flutn­inga­menn sem höfðu líka verið kall­aðir á vett­vang treystu sér eðli­lega ekki til að flytja mann­inn í þessu ástandi og kall­aði ég því á stóran lög­reglu­bíl til að aka mann­inum á slysa­deild.“

Á slysa­deild­inni hafi lækn­ir­inn hins vegar horft á mann­inn emj­andi á gólfi lög­reglu­bif­reið­ar­innar og eftir stutta umhugsun hafi nið­ur­staðan verið sú að heil­brigð­is­kerfið gæti ekki tekið við honum í þessu ástandi. „Ég dæmi lækn­inn ekki, enda var hann ein­ungis að reyna að vinna sína vinnu innan ákveð­ins kerfis. Ég dæmi kerfið sem þvær hendur sínar af þeim sem eru veikir og þurfa bara á hjálp að halda á sinni erf­ið­ustu stundu. Við verðum að átta okkur á því að ef við ætlum eitt­hvað að byrja að ræða afglæpa­væð­ingu fíkni­efna þá verðum við að búa til miklu sterkara kerfi sem er til­búið að grípa inn í og hjálpa þeim sem þurfa hjálp. Hjálpina er ekki að finna í fanga­klefum lög­regl­unnar,“ segir Birgir.

Hann segir að í lög­reglu­starf­inu sjái hann allar hliðar mann­lífs­ins, líka þær sem fæstir vilja sjá. „ Mér finnst nauð­syn­legt að fólk heyri af því sem er brotið í sam­fé­lag­inu. Ekki til að dæma, heldur svo hægt sé að laga það. Ég tel nauð­syn­legt að þeir sem standa við lok­uðu dyrnar hafi rödd. Ef við sem stöndum við hlið þeirra trekk í trekk segjum aldrei neitt verða dyrnar bara áfram lok­aðar. Þá er svo auð­velt að halla aftur aug­unum og láta vanda­málin hverfa. Taka bjöll­una bara úr sam­bandi.

Lög­reglan á ekki að vera kerf­is­læg rusla­kista. Það á ekki að bjóða veikum ein­stak­lingum upp á það að vera gerðir að lög­reglu­máli. Það er sama hvort um er að ræða geð­veiki, fíkn, áfeng­is­sýki eða eitt­hvað annað. Maður velur sér ekki veik­indi sín. Það gæti hent þig einn dag­inn að standa á óra­löngum kerf­is­gangi þar sem allar dyr eru merktar öðrum en þér. Hvað þá?“ spyr hann að lokum. 

 

Hér er pistill Birgis Arnar í heild:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár