Árni Páll segir frá mistökum Samfylkingarinnar

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar útlistar „sam­eig­in­leg mis­tök“ flokks­ins á sama tíma og hann er gagn­rýndur fyrir sögu­lega lélegt fylgi. Hann við­ur­kennir að það hafi verið mis­tök að reyna um of að fá fólk til að borga skuld­irnar sínar „í stað þess að taka stöðu með fólki gegn fjár­mála­kerfi“.

Árni Páll segir frá mistökum Samfylkingarinnar

Árni Páll Árnason, sem hefur verið gagn­rýndur harð­lega fyrir slæma stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar, listar upp sam­eig­in­leg mis­tök flokks­manna í bréfi sem hann sendi flokks­mönnum fyrir stundu.

Fylgi við Sam­fylk­ing­una hefur aldrei mælst minna en und­an­farið. Það mæld­ist 9,2% í könnun Gallup í byrjun mán­aðar. Árni Páll seg­ist vilja sam­tal um sam­eig­in­leg mis­tök, en sam­kvæmt upp­taln­ing­unni gerði flokk­ur­inn mis­tök í flestum þeim stóru málum sem hann kom að í rík­is­stjórn. Meðal ann­ars hafi það verið mis­tök að þrýsta á of skuld­sett fólk að borga skuld­irnar sínar, í stað þess að taka afstöðu með því gegn fjár­mála­stofn­unum:

Upptalning á mistökum flokksins

„Flest okkar mis­tök fólust í því sama: Að ganga grónu kerfi á hönd án þess að gera kröfu um grund­vall­ar­breyt­ingar. Flokk­ur­inn sem var stofn­aður um ný vinnu­brögð, íbúa­lýð­ræði og almanna­rétt lok­aði að sér og forð­að­ist sam­tal og neit­aði þjóð­inni um aðkomu að stórum ákvörð­unum í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Kjarninn okkar: Við misstum það nána sam­band sem við höfðum haft við verka­lýðs­hreyf­ing­una og tal­sam­bandið við atvinnu­lífið.

Icesave: Við studdum samn­ing um Icesave sem varði ekki ítr­ustu hags­muni þjóð­ar­innar og mæltum gegn þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hann.

Aðild­ar­um­sóknin: Við byggðum aðild­ar­um­sókn að ESB á flóknu bak­tjalda­sam­komu­lagi, sem aldrei hélt, í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóð­inni til að fara í aðild­ar­við­ræður, sem hefði bundið alla flokka við umsókn­ar­ferlið.

Skuldir heim­il­anna: Þegar fólk var að drukkna í skulda­feni tókum við að okkur í of ríkum mæli að útskýra fyrir fólki að það ætti að borga skuldir sínar, í stað þess að taka okkur stöðu með fólki gegn fjár­mála­kerfi.

Fisk­veiði­stjórn­unin: Við lof­uðum breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi en týndum okkur í lang­vinnum samn­ingum fyrir luktum dyrum við sam­starfs­flokk­inn um útfærslur á breyt­ingum, sem strönd­uðu svo hver á eftir annarri. Þess í stað hefðum við sem lýð­ræð­is­flokkur átt að leita til almenn­ings um stuðn­ing í glímunni við sér­hags­muna­öflin.

Stjórn­ar­skráin: Við höfðum for­göngu um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, en drógum það alltof lengi að áfanga­skipta verk­efn­inu til að koma mik­il­væg­ustu breyt­ing­unum í höfn. Ég tók um síðir af skarið, en í stað þess að sam­talið væri lif­andi og allt uppi á borðum var upp­lifun fólks sú að ég hefði brugð­ist og fórnað mál­inu og allt hefði klúðr­ast.“

Sameiginleg ábyrgð

Þá segir Árni Páll að ræða þurfi þessi mis­tök Sam­fylk­ing­ar­innar og axla „sam­eig­in­lega ábyrgð á sam­eig­in­legum mis­tökum“:

„Þetta allt þarf að ræða til að hreinsa loftið, jafnt mín verk og allra ann­arra. Í þeirri umræðu mega ekki vera nein tabú eða helg vé. Mark­miðið er ekki að finna söku­dólg, heldur að axla sam­eig­in­lega ábyrgð á sam­eig­in­legum mis­tökum, svo þjóðin viti að við höfum lært af þeim og að kjós­endur geti óhræddir treyst Sam­fylk­ing­unni fyrir atkvæði sínu á nýjan leik. Við þurfum saman að senda skýrt þau skila­boð að við munum ekki fara aftur í rík­is­stjórn án þess að gera kröfu um grund­vall­ar­breyt­ingar,“ segir Árni Páll í bréf­inu.

Formannskjöri flýtt

Nýverið sam­þykkti fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar að flýta for­manns­kjöri til 4. júní. Í síð­asta for­manns­kjöri, fyrir tæpu ári síðan, sigr­aði Árni Páll naum­lega þegar hann fékk einu atkvæði meira en Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, mót­fram­bjóð­andi hans.

Árni Páll hefur fengið stuðn­ing úr óvæntri átt. Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók sama pól­inn í hæð­ina og Árni Páll sjálfur þegar hann sagði að vandi Sam­fylk­ing­ar­innar fælist ekki í for­mann­inum heldur stefnu flokks­ins. „Sam­fylk­ingin virð­ist hafa misst tengslin við umbjóð­endur sína – fólkið í land­inu, alþýð­una. Fólkið finnur ekki sam­hljóm með stefnu flokks­ins. Áherslan á ESB aðild­ina er dýr­keypt. Kannski þarf að leita lausna innan flokks­ins, frekar en að horfa bara á for­mann­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár