Svarar Sigmundi Davíð: Álverin skila aðeins 1% þjóðartekna

Fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri gagn­rýnir stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í orku- og auð­linda­málum.

Svarar Sigmundi Davíð: Álverin skila aðeins 1% þjóðartekna
Álver Fjarð­ar­áls Banda­ríski álris­inn Alcoa rekur álver Fjarð­ar­áls við Reyð­ar­fjörð. Mynd: Alcoa

Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, svarar orðum Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem fór fram á það að á dög­unum að stofnað yrði til nýrra virkj­ana til að standa undir bættum launa­kjörum. 

Indriði segir í grein á vef tíma­rits­ins Herðu­breiðar að við­horf Sig­mundar sýni „veru­leikafirr­ingu“ og „virð­ing­ar­leysi fyrir rökum og stað­reyndum“.

Sig­mundur Davíð tengdi saman kjara­við­ræður og áform rík­is­stjórn­ar­innar um að heim­ila fleiri virkj­anir í sjón­varps­við­tali á dög­unum. 

„Til að hægt sé að verða við veru­legum kröfum um launa­hækk­anir og vænt­ingum um áfram­hald­andi kaup­mátt­ar­aukn­ingu þá þurfum við að halda áfram að auka verð­mæta­sköpun í land­inu og þar strandar býsna margt á orku­öfl­un­inni.“

80% orkunnar - 1% þjóðartekna

„Áttatíu pró­sent raf­orku­fram­leiðslu í land­inu, sem er um 13.000 gígawattstundir, eru seldar til stór­iðju,“ segir Indriði. „Sú sala skilar Lands­virkjun litlu ef nokkru meira en fjár­magns­kostn­aði. Sölu­verð­mæti áls mun vera nokkuð yfir 200 millj­örðum króna. Þegar greiddur hefur verið hrá­efna­kostn­aður og annar rekstr­ar­kostn­aður en laun og fjár­magns­kostn­aður standa eftir um 60 millj­arðar króna. Um 17 millj­arðar fara í laun og launa­tengd gjöld. Afgang­ur­inn fer í fjár­magns­kostnað og hagnað eig­enda sem laumað er óskatt­lögðum úr landi. Þessir 17 millj­arðar (og ein­hver smá­við­bót vegna svo­kall­aðra afleiddra starfa) eru eina hlut­deild lands­ins í þeim verð­mætum sem stór­iðjan skapar. Það er um 1% þjóð­ar­tekna.“

Indriði bendir á að ein­ungis 1% vinnu­afls í land­inu starfi í álverum, sem er minna en árleg við­bót við vinnu­afl lands­ins.

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, lýsti því á dög­unum að innan nokk­urra ára megi þess vænta að Lands­virkjun skili allt að 20 millj­arða króna arði á ári. Staða Lands­virkj­unar hefur batnað hratt á síð­ustu árum. Fyr­ir­tækið borg­aði 1,5 millj­arð króna í rík­is­sjóð í arð vegna síð­asta árs. 

Fyrrverandi ríkissakttastjóri
Fyrr­ver­andi rík­is­saktta­stjóri Indriði Þor­láks­son varar við því við­horfi að virkj­anir muni nauð­syn­lega leiða til kjara­bóta meðal almenn­ings.

Segir orkuauðlindir nýtast almenningi lítið

Að mati Indriða hefur nýt­ingu orku­auð­linda hins vegar verið hagað með þeim hætti að þær eru nán­ast þýð­ing­ar­lausar fyrir efna­hags­lífið og þar með kjara­bar­áttu lands­manna.

„Orku­auð­lindir lands­ins að frá­töldum jarð­hita til upp­hit­unar eru nán­ast þýð­ing­ar­lausar fyrir íslenskt efna­hags­líf. Það stafar af þeirri stefnu núver­andi stjórn­valda að beina arð­inum af þeim í vasa þeirra sem auð­lind­irnar nýta. Þessi stefna kemur víða fram. Móast er við að setja virkt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá, skattar á hagnað fyr­ir­tækj­anna voru lækk­aðir, álver­unum veitt trygg­ing fyrir því að flytja hagnað skatt­frjálsan úr landi, nið­ur­fell­ing orku­skatts á álfyr­ir­tæki gerð að for­gangs­máli, veiði­gjöld voru lækkuð og til stendur að gefa mak­ríl­kvót­ann. Það kemur því ekki á óvart að alþing­is­maður útgerð­ar­eig­enda taki undir þessa fjar­stæðu. Meðan ekki er snúið frá þess­ari stefnu með raun­hæfum hætti og sýnt fram á efna­hags­lega hag­kvæmni þeirrar starf­semi sem nota á nýja orku eru engin rök fyrir frek­ari virkj­unum á Íslandi.“

Bjarni svarar Indriða

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, svarar grein Indriða á Facebook-síðu sinni í morgun: „Þarna segir að þeir sem vilja halda áfram að nýta sjálf­bæra orku og gera úr henni verð­mæti sýni veru­leikafirr­ingu og virð­ing­ar­leysi fyrir rökum. Sala raf­orku Lands­virkj­unar er sögð skila litlu öðru en fjár­magns­kostn­aði. Bíðum við, lækk­uðu ekki skuldir Lands­virkj­unar um 80 millj­arða á síð­ast­liðnum 5 árum? Ég held það nú. Eignir Lands­virkj­unar eru nú um 570 millj­arðar króna. Arð­greiðslur Lands­virkj­unar stefna í að vera 10-20 millj­arðar á ári,“ segir Bjarni. Hann vitnar jafn­ramt í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar þar sem segir að fram­lag álkla­s­ans til lands­fram­leiðslu sé nálægt 6,8% af lands­fram­leiðslu 2011 og 2012. 

„En Indriði, hann hefði frekar viljað sjá vatnið bara renna út í sjó. Ekkert að vera að virkja þetta. Hvað þá að halda áfram,“ segir Bjarni að lokum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Álver

Alcoa: Lagasetningin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 milljarða vaxtagreiðslur 2014 og 2015
FréttirÁlver

Alcoa: Laga­setn­ingin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 millj­arða vaxta­greiðslur 2014 og 2015

Vaxt­greiðslur álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa hafa almennt verið undir þeim við­miðum sem kveðið er á um í nýjum lögum um tekju­skatt. Laga­breyt­ingin sem á að koma í veg fyrir skattaund­an­skot slíkra fyr­ir­tækja virð­ist því ekki hafa mikil áhrif. For­stjóri Alcoa segir að fyr­ir­tækið vinni að því að kanna áhrif laga­breyt­ing­ar­innar á starf­semi álfyr­ir­tæk­is­ins.
Óskattlagðar vaxtagreiðslur Alcoa úr álverinu nema 67 milljörðum króna
FréttirÁlver

Óskatt­lagðar vaxta­greiðslur Alcoa úr álver­inu nema 67 millj­örðum króna

Vaxta­greiðslur álvers­ins á Reyð­ar­firði til félags í eigu Alcoa í Lúx­em­borg eru rúm­lega tveimur millj­örðum króna hærri en bók­fært tap álvers­ins á Íslandi. Síðasta rík­is­stjórn breytti lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir slíka skatta­snún­inga. Indriði Þor­láks­son segir að laga­breyt­ing­arnar séu ekki nægi­lega rót­tækar til að koma í veg fyrir skattaund­an­skot með lána­við­skiptum á milli tengdra félaga.
Stjórnendur álveranna væru lögbrjótar í Noregi
FréttirÁlver

Stjórn­endur álver­anna væru lög­brjótar í Noregi

Norsk meng­un­ar­lög­gjöf er með tals­vert öðru sniði en sú íslenska. Í henni eru heim­ildir fyrir því að refsa stjórn­endum fyr­ir­tækja sér­stak­lega, fremji þau ítrekað það sem kallað er „meng­un­ar­glæpi“. Reglu­legt eft­ir­lit fag­að­ila með vöktun álvera og hegn­ing fyrir brot á meng­un­ar­lögum, sem er við­tek­inn siður í Noregi, þekk­ist ekki á íslandi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár