Almenningi haldið fjarri þjóðhátíðardagskrá og foreldrum kórbarna vísað burt

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist kunna illa við girð­ingar og bendir á þjóð­há­tíð­ar­nefnd og lög­reglu. Þjóð­há­tíð­ar­nefnd kom hvergi nálægt ákvörð­unum um örygg­is­ráð­staf­anir og lög­regla segir afgirta svæðið hafa verið stækkað að beiðni for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og Alþingis.

Almenningi haldið fjarri þjóðhátíðardagskrá og foreldrum kórbarna vísað burt

Aðgangur almenn­ings var tak­maður veru­lega og nær allur Aust­ur­völlur afgirtur á meðan þjóð­há­tíð­ar­dag­skrá fór fram við stytt­una af Jóni Sig­urðs­syni í dag. 

Gripið var til þess­ara ráð­staf­ana vegna mót­mæl­anna sem haldin voru á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn í fyrra þegar þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þurfti að flytja hátíð­ar­ræðu sína undir bumbu­slætti, hrópum og köllum. 

Haft er eftir Sigurði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra á Mbl.is að for­sæt­is­ráðu­neytið hafi ekki komið að þeirri ákvörðun að stækka hið afgirta svæði, heldur ein­ungis þjóð­há­tíð­ar­nefnd Reykja­vík­ur­borgar og lög­reglan. 

Þórgnýr Thorodd­sen, for­maður þjóð­há­tíð­ar­nefndar, bendir hins vegar á að nefndin komi ekki að ákvörð­unum um örygg­is­ráð­staf­anir og innan hennar hafi engin umræða farið fram um örygg­is­gæsl­una. 

„Þessi umræða fór hvorki fram innan þjóð­há­tíð­ar­nefndar né er þessi ákvörðun á hendi hennar. Nefndin sér ein­vörð­ungu um skipu­lagn­ingu athafn­ar­innar fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og örygg­is­ráð­staf­anir eru teknar af lög­reglu,“ skrifar Þórgnýr á Facebook.

Að sama skapi segir Sóley Tóm­as­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar, að borgin hafi ekki óskað eftir girð­ing­unum. „Þvert á móti eru þessar meintu örygg­is­ráð­staf­anir okkur þvert um geð,“ skrifar hún. 

Þá er haft eftir Ágústi Svans­syni, aðal­varð­stjóra lög­reglu sem hafði yfir­um­sjón með örygg­is­gæsl­unni á Aust­ur­velli, í við­tali á Vísi.is að lög­reglan hafi ekki komið nálægt þeirri ákvörðun að stækka hið afgirta svæði „öðru­vísi en að tryggja öryggi að beiðni for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og Alþingis“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þjóðhátíð

InnlentÞjóðhátíð

Þjóð­há­tíð­ar­nefnd ákveðin að halda hátíð­ina síðar í sumar

Þjóð­há­tíð í vest­manna­eyjum verður haldin í sumar þrátt fyrir hertar sótt­varn­ar­að­gerðir. Þjóð­há­tíð­ar­nefnd ætlar að bíða í nokkrar vikur og stefnir á að halda hátíð­ina síðar í sumar. Nú er orðið ljóst að Þjóð­há­tíðin fer ekki fram um næstu helgi, Versl­un­ar­manna­helg­ina eins og alla­jafna. Hertar sótt­varn­ar­að­gerðir koma í veg fyrir að svona fjöl­menn hátíð geti farið fram. Þjóð­há­tíð­ar­nefnd sendi frá sér...
InnlentÞjóðhátíð

Svona verður veðrið á Þjóð­há­tíð

Það stytt­ist í Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum sem sett verður 30. júlí í Herj­ólfs­dal. Eftir frekar þungt sumar „sunn­an­lands“ eru margir að spá í hvernig veðrið verði á Þjóð­há­tíð, sem dregur árlega til sín þús­undir skemmt­ana­þyrstra gesta. Ef rýnt er í lang­tíma­veð­ur­spár virð­ist dæmið líta vel út; Þurrt að kalla verður á fimmtu­deg­inum 29. júlí – en þá fer fram hið...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár