Keyrði nánast á fimm ára barn: „Tíu sekúndum áður var ég að senda SMS“

Guðrún Dan­í­els­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona keyrði næstum því á fimm ára gam­alt barn í ljósa­skipt­unum í gær. Hún þakkar fyrir að hafa ekki verið í sím­anum, heldur með full­komna athygli á veg­inum.

Keyrði nánast á fimm ára barn: „Tíu sekúndum áður var ég að senda SMS“

„Þetta var góð lexía og ég er þakk­lát fyrir hana,“ segir Guðrún Dan­í­els­dóttir kvik­mynda­gerða­kona í sam­tali við Stundina, en engu mun­aði að hún hefði keyrt á fimm ára gam­alt barn í ljósa­skipt­unum í gær­kvöldi.

Guðrún skrif­aði um reynsl­una á Facebook-síðu sína í dag en þar segir meðal ann­ars: „Það eina sem ég sá var upp­lýst and­lit hans þegar hann hljóp í veg fyrir mig. Ég hef aldrei bremsað jafn fast. Allur lík­ami minn brems­aði. Bíl­beltið þrýsti mér niður og haus­inn sveigði framm eins og hefði ekið á vegg. Barnið fraus líka og í sek­úndu­brot náðum við augn­sam­bandi meðan allir góðir vættir hjálp­uðu okkur. Bíllinn stað­næmd­ist og barnið lagði hend­ina sína á húddið.

Ég hljóp út og faðm­aði hann. Hann end­ur­tók í sífellu fyr­ir­gefðu fyr­ir­gefðu. Eftir smá stund hljóp hann heim til sín end­ur­skins­laus og laf­hræddur. Ég keyrði áfram fann bíla­stæði og beið eftir að skjálft­inn í lík­ama mínum hvarf.

Akkúrat þessa stund var ég ekki að tala í sím­ann, ég var ekki að senda SMS, ég var ekki að fletta í contöktum og ég var ekki að stilla útvarpið. Athygli mín þessar handa­hófs­kenndu sek­úndur var öll á veg­inum. Ég náði að stoppa í tíma. Ég verð að við­ur­kenna að það var heppni. Ég er alltof oft að gera eitt­hvað annað meðan ég er að keyra. Alltof oft.“

„Bíllinn stað­næmd­ist og barnið lagði hend­ina sína á húddið.“

Þegar Stundin náði tali af Guðrúnu sagð­ist hún vera með hug­ann við þetta atvik og hversu heppin þau voru að ekki fór verr. „Það vant­aði hálfan meter upp á að ég myndi alla ævi vita hvað þetta barn heitir,“ segir hún. „Það sem ég sagði ekki frá í færsl­unni var að tíu sek­úndum áður var ég að senda SMS á vinnu­fé­laga, bölvandi yfir auto-correct í iPhone sím­anum mínum. Ég var með meiri athygli á staf­setn­ingu skila­boð­anna heldur en á veg­inum. Síðan setti ég sím­ann niður, hugs­aði um að ég þyrfti að fara í búð­ina og starði á veg­inn. Og allt í einu birt­ist þetta barn,“ segir hún. 

Guðrún seg­ist hafa farið út úr bílnum og talað við dreng­inn í stutta stund. Hún brýndi fyrir honum að nota end­ur­skins­merki og spurði hvort hún ætti að fylgja honum heim. Hann afþakk­aði það, enda ætti hann heima í næsta húsi.

Hún seg­ist hafa átt erfitt með að sofna í gær­kvöldi. Hún sá fyrir sér barnið upp­lýst af fram­ljós­unum og gerir sér grein fyrir því að þetta hefði getað farið mikið ver. „Ég við­ur­kenni það alveg að ég er alltaf í sím­anum. Ég er fáviti. En ég lofa að ég geri það aldrei aftur. Mér finnst eins og ég hafi fengið við­vörun, og ég held að ég fái hana ekki aftur.“   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár