Áhugaverð þingmál

Hugð­ar­efni þing­manna eru jafn ólík og þeir eru margir. Hér er yfir­lit yfir áhuga­verð frum­vörp sem hafa verið lögð fram á þessu þingi.

Áhugaverð þingmál

Frídagar að helgum

Björt Framtíð

Flutn­ings­menn: Róbert Marshall, Björt Ólafs­dóttir, Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, Guð­mundur Stein­gríms­son, Óttarr Proppé, Páll Valur Björns­son.

Róbert Marshall flutti breyt­ing­ar­til­lögu við laga­frum­varp um 40 stunda vinnu­viku, sem miðar að því að færa staka frí­daga að helgum eða næsta virka degi eftir frí.

Í rök­stuðn­ingi bendir Róbert á að slíkt yrði ekki aðeins til hag­ræðis fyrir laun­þega og fjöl­skyldur þeirra heldur einnig atvinnu­rek­endur, þar sem stakir frí­dagar draga úr fram­leiðni. Þetta fyr­ir­komu­lag sé fjöl­skyldu­vænna og auki líkur á að fólk geti nýtt fríið betur.  

Staða: Lagt var til að lögin tækju gildi 1. jan­úar 2016, en það gekk ekki eftir. Málið hefur ekki enn verið tekið til umræðu.

Styttri vinnuvika

Píratar, Samfylking, VG

Flutn­ings­menn: Björn Leví Gunn­ars­son, Ásta Guðrún Helga­dóttir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir.

Píratar mæltu fyrir frum­varpi sem kveður á um 40 stunda vinnu­vika verði stytt niður í 35 stunda vinnu­viku.

Helgi Hrafn Gunn­ars­son vís­aði í skýrslur OECD sem mæla jafn­vægi á milli vinnu og frí­tíma þar sem Ísland kemur mjög illa út og er í 27. sæti af 36. Heild­ar­vinnu­tími á Íslandi er um 500 klukku­stundum lengri en hjá Þjóð­verjum sem eru með stysta vinnu­tím­ann, en til­lagan myndi minnka heild­ar­vinnu­tím­ann um sirka 230 klukku­stundir á ári og færa Ísland upp í 10. sætið, næst á eftir Svíþjóð, sem þó er að færa sig í átt­ina að sex stunda vinnu­degi.

Þrátt fyrir það er fram­leiðni á Íslandi undir með­al­tali OECD land­anna. Í þeim löndum sem lenda efst á list­anum er fram­leiðnin alltaf meiri og launin í flestum til­vikum hærri.

Staða: Eftir fyrstu umræðu var mál­inu vísað til vel­ferð­ar­nefndar.

Spilahallir á Íslandi

Framsókn, Sjálfstæðisflokkurinn, Björt Framtíð 

Flutn­ings­menn: Willum Þór Þórsson, Elsa Lára Arn­ar­dóttir, Jóhanna María Sig­munds­dóttir, Haraldur Ein­ars­son, Páll Jóhann Pálsson, Ásmundur Einar Daðason, Brynjar Níelsson, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, Vil­hjálmur Árnason, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Guð­mundur Stein­gríms­son, Páll Valur Björns­son, Björt Ólafs­dóttir.

Samkvæmt hegn­ing­ar­lögum er refsi­vert að fram­fleyta sér með fjár­hættu­spili.  Þessu vill Willum Þór Þórsson breyta með lögum sem heim­ila starf­semi spila­halla á Íslandi, þar sem spilað er upp á pen­inga.

Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir 21 árs ald­urs­tak­marki að spila­vít­unum og að ein­stak­lingum undir áhrifum sem lík­legir eru til að valda ónæði sé mein­aður aðgangur. Í rök­stuðn­ingi segir Willum að slík lög­leið­ing yrði til að efla ferða­manna­þjón­ust­una, leiða til auk­inna tekna fyrir ríki og sveit­ar­fé­lög og koma starf­semi sem þrífst í und­ir­heimum undir opin­bert eft­ir­lit þar sem stuðlað er að ábyrgri spila­mennsku.

Staða: Málið hefur ekki verið tekið til umræðu.

Orlof húsmæðra

Sjálfstæðisflokkur, Samfylking  

Flutn­ings­menn: Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, Val­gerður Bjarna­dóttir, Vil­hjálmur Árnason, Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir.

Lög sem gera ráð fyrir því að ríki og sveit­ar­fé­lög veiti fé til orlofs­nefnda sem skipu­leggja orlof hús­mæðra hafa verið í gildi frá árinu 1958, en þá hafði verið talað fyrir því í fjórtán ár. Þá höfðu hús­mæður jafnan lítið á milli hand­anna, fengu lítil eða engin laun fyrir heim­il­is­hald, heim­ili voru oft barn­mörg og vinnan við hús­rekstur ströng. Þrátt fyrir breytta tíma eiga allar konur sem veita eða hafa veitt heim­ili for­stöðu án þess að þiggja launa­greiðslur fyrir það, óháð því hvort þær eru úti­vinn­andi eða ekki, rétt á hús­mæðra­or­lofi. Nú vill Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir afnema þessi lög og lagði fram frum­varp þess efnis. Hún tók þó fram að ekki megi gera lítið úr þeim félags­legu áhrifum sem orlofs­ferðir hús­mæðra hafa haft fyrir þær konur sem í þær hafa farið. Verði lögin afnumin geta orlofs­nefnd­irnar haldið áfram að skipu­leggja ferðir kjósi þær svo en aðkoma sveit­ar­fé­lag­anna yrði val­kvæð.

Staða: Málið hefur ekki verið tekið til umræðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár