Þýskir hermenn skipulögðu hryðjuverkaárás sem flóttamönnum yrði kennt um

Þýskur liðs­for­ingi skráði sig inn í Þýska­land sem sýr­lenskur ávaxta­sölu­maður á flótta. Hann og sam­verka­menn hans ætl­uðu að myrða vinstri­s­inn­aða stjórn­mála­menn og kenna flótta­mönnum um. Þýsk yfir­völd ótt­ast að fleiri aðilar innan hers­ins gætu verið að skipu­leggja eitt­hvað svipað.

Vildu hafa áhrif
Vildu hafa áhrif Her­menn­irnir sem skipu­lögðu árás­irnar vildu hafa áhrif á umræð­una og um leið á kosn­ing­arnar sem fram fara í land­inu í haust. Mynd: MC2 Jason Johnston

Þýskt sam­fé­lag hefur leikið á reiði­skjálfi eftir að upp komst um aðila innan þýska hers­ins sem skipu­lögðu hryðju­verka­árásir með það að mark­miði að flótta­mönnum yrði kennt um þær. Tveir her­menn hafa verið hand­teknir auk sam­verka­manna utan hers­ins, en grunur leikur á um að þeir hafi meðal ann­ars ætlað sér að myrða dóms­mála­ráð­herra Þýska­lands, Heiko Maas, sem og fyrrum for­seta lands­ins, Joachim Gauck. Rannsókn hefur leitt í ljós að menn­irnir voru hallir undir fasíska hug­mynda­fræði en þýska her­lög­reglan rann­sakar nú 275 aðila innan hers­ins sem grunur leikur á um að teng­ist öfga­fullum hópum á jaðri hægr­is­ins. Óttast yfir­völd jafn­vel að málið sem nú er til rann­sóknar sé ein­ungis topp­ur­inn á ísjak­anum.

Í þýskum fjöl­miðlum er nú spurt hvernig í ósköp­unum 28 ára gömlum liðs­for­ingja í þýska hernum tókst að lifa tvö­földu lífi í rúm­lega ár án þess að nokkur tæki eftir því? Maðurinn sem gengur ein­fald­lega undir nafn­inu Franco A í umfjöll­unum fjöl­miðla gegndi her­þjón­ustu á þýsk-franskri her­stöð í borg­inni Illkirch-Graf­fensta­den á sama tíma og hann dul­bjó sig sem sýr­lenska ávaxta­sölu­mann­inn David Benjamin og sótti um hæli í Bæj­ar­landi í jan­úar 2016. Hann fékk síðar skjól á heim­ili fyrir hæl­is­leit­endur og tók við mán­að­ar­legum fjár­stuðn­ingi frá þýska rík­inu. Svo virð­ist sem mark­miðið hafi verið að beita skot­vopni til að myrða þýska stjórn­mála­menn á vinstri væng stjórn­mál­anna og kalla þannig fram reiðiöldu sam­fé­lags­ins gagn­vart flótta­mönnum þar sem fingraförin á byss­unni hefðu vísað á sýr­lenska flótta­mann­inn David Benjamin, og það á kosn­inga­ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár