Kallar eftir því að umboðsmaður Alþingis skoði vinnubrögð borgarstjórnarmeirihlutans

„Ég tel að umboðs­maður Alþingis sé næsti vett­vangur þessa máls,“ sagði Júlíus Vífill Ingv­ars­son sem ætlar að senda umboðs­manni sér­stakt erindi vegna snið­göngu­máls­ins. Samþykkt borg­ar­stjórnar var dregin til baka í gær.

Kallar eftir því að umboðsmaður Alþingis skoði vinnubrögð borgarstjórnarmeirihlutans
Júlíus Vífill borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins Mynd: xd.is

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill „vísa inn­kaupa­banni til umboðs­manns“. Þetta kemur fram á Mbl.is í dag og er vísað til sam­þykktar borg­ar­stjórnar frá 15. sept­em­ber um að Reykja­vík­ur­borg kaupi ekki vörur frá Ísrael meðan her­nám Palest­ínu stendur yfir.

Júlíus kallar eftir því að umboðs­maður Alþingis hefji frum­kvæð­is­at­hugun á vinnu­brögðum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans. Í ljósi þess að Júlíus hefur ekki verið beittur rangs­leitni af hálfu stjórn­valds getur hann ekki sent umboðs­manni hefð­bundna kvörtun. Hins vegar ætlar hann að biðja umboðs­mann um að rann­saka verk­lag borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans á grund­velli 5. gr. laga um umboðs­mann þar sem fjallað er um frum­kvæð­is­mál. Nái vilji Júlíusar fram að ganga verður þetta fyrsta frum­kvæð­is­málið sem umboðs­maður tekur til form­legrar athug­unar á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sniðgöngumálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár