Á mörkum þess fyndna og þess drungalega

Það sem af er ári hafa verið settar upp fjórar sýn­ingar á verkum mynd­list­ar­kon­unnar Siggu Bjargar Sig­urð­ar­dóttur; í gall­eríi í Zürich, á Drawing Now-mess­unni í París, í Hafn­ar­borg í Hafn­ar­firði og nú síð­ast í Kompunni í Alþýðu­hús­inu á Siglu­firði.

Á mörkum þess fyndna og þess drungalega
Sigga Björg Henni finnst skemmti­leg­ast að fylgj­ast með við­brögðum barna við verkum hennar. Mynd: Úr einkasafni

 „Hvort þetta er venju­legt ár hjá mér? Það er eig­in­lega ekk­ert venju­legt í þessu. Stundum kemur allt á sama tíma og stundum er rólegra. Þetta er bara alls konar og maður veit aldrei,“ segir mynd­list­ar­konan Sigga Björg Sig­urð­ar­dóttir, spurð að því hvort það sé alltaf svona mikið um að vera hjá henni. Hún hefur væg­ast sagt verið á kafi í sýn­ing­ar­haldi að und­an­förnu. Fyrst ber að nefna stóra inn­setn­ingu hennar í Hafn­ar­borg sem stóð yfir frá jan­úar fram í mars. Þar gengu gestir inn í undra­heim Rósu en sýn­ingin sam­an­stóð af teikn­ingum, skúlp­t­úrum og mynd­bands­verki með ver­una Rósu í aðal­hlut­verki, auk þess sem Sigga Björg hafði málað á veggi rým­is­ins og tengt með því verkin. Mikil vinna lá í Rósu en Sigga Björg hefur þó ekki gert sér lífið auð­velt og ferð­ast með sömu sýn­ing­una safna á milli. „Ég reyni að end­ur­taka mig ekki aftur og aftur, þó að ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár