Milljónum af skattfé varið til að bæta ímynd Hönnu Birnu

Fyrr­ver­andi rit­stjóri Pressunnar hjálp­aði ráð­herra - Lög­fræði­ráð­gjöf einnig greidd af inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu

Milljónum af skattfé varið til að bæta ímynd Hönnu Birnu

Mark­aðs­stofan Argus ehf. fékk 2,4 millj­ónir króna frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu vegna ráð­gjafar í tengslum við leka­málið á árinu 2014. Hjálpaði fyr­ir­tækið Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi ráð­herra, að bæta ímynd sína í fjöl­miðlum. Þá var einnig sú lög­fræði­ráð­gjöf sem Hanna Birna fékk kostuð af skatt­greið­endum, en lög­manns­stofan LEX fékk rúm­lega eina milljón króna fyrir þjón­ustu sína.

Kjarninn greinir frá þessu í dag og upp­lýsir að beinn kostn­aður ráðu­neyt­is­ins vegna aðkeyptrar ráð­gjafar á árinu 2014 vegna leka­máls­ins nam tæpum 3,5 millj­ónum króna. 

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra ber ábyrgð á þessum útgjöldum. Ráð­herr­ann átti í miklum vanda vegna máls­ins. Óljóst er í hverju ráð­gjöfin var fólgin en inn­an­rík­is­ráðu­neytið neit­aði blaða­mönn­unum, sem héldu mál­inu gang­andi, um allar upp­lýs­ingar á síð­ari stigum. Á end­anum var aðstoð­ar­maður ráð­herra, Gísl Freyr Val­dórs­son dæmdur sekur um brot á þagn­ar­skyldu. Ráð­herr­ann sagði af sér og í jan­úar stað­festi umboðs­maður Alþingis í ítar­legu áliti að ráð­herr­ann hefði beitt lög­reglu­stjór­ann í Reykja­vík þrýst­ingi í tengslum við rann­sókn leka­máls­ins. Fyrir liggur, þrátt fyrir ráð­gjöf­ina, að allt fór á versta veg fyrir ráð­herr­ann og sam­starfs­fólk hans. Á meðal þeirra sem veittu ráð­herra ráð­gjöf­ina er Stein­grímur Sævarr Ólafsson, fyrr­ver­andi frétta­stjóri Stöðvar 2 og rit­stjóri Pressunnar. 

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér ráð­herra­emb­ætti í kjöl­far dóms­ins og umfjöll­unar DV og ann­arra miðla um leka­málið þann 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Sama dag var til­kynnt um kaup Pressunnar ehf., útgáfu­fé­lags Björns Inga, á ráð­andi hlut í DV ehf.

Mbl.is hafði eftir Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á dög­unum að hann vænti þess að Hanna Birna kæmi brátt aftur á þing.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár