Kjörin formaður bæjarstjórnar þvert á fyrirheit um að draga úr störfum

Theódóra S. Þorsteins­dóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, var í síðustu viku kjörin formaður bæjar­stjórnar Kópavogs. Fyrr á árinu sagðist hún myndu draga úr störfum sínum hjá bæjar­félaginu. Laun Theódóru nema rúmum 2,2 milljónum króna sem kjörinn fulltrúi á Alþingi og í sveitar­stjórn.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Theódóra S. Þor­steins­dóttir Gegnir þing­mennsku fyrir Bjarta fram­tíð sam­hliða því að vera for­maður bæj­ar­stjórnar Kópavogs. Mynd: Pressphotos / Geiri

Theódóra S. Þorsteins­dóttir, þingmaður Bjartrar Framtíðar, var í síðustu viku endur­kjörin formaður bæjarráðs í Kópavogi. Þrátt fyrir að þing­mennska sé álitin vera fullt starf ákvað Theódóra að gegna bæði þing­mennsku og sitja í bæjar­stjórn Kópavogs á sama tíma. Þá var hún kjörin varamaður í öldunga­ráði Kópa­vogsbæjar.

Þegar Stundin leitaði svara hjá Theódóru í janúar um hvort hún teldi þetta réttlætanlegt, út frá stöðu hennar og skyldum sem þingmaður, að sinna öðrum stöðum samhliða, sagðist hún myndu draga úr skyldum sínum hjá Kópa­vogsbæ.

„Ég er að fóta mig í þessu og sjá hvernig þetta gengur upp.  Ég hugsa að ég dragi svo sem eitthvað úr,“ sagði Theódóra.

Þá sagði Theódóra að hún myndi draga sig úr nefndar­störfum „Ég mun klárlega draga mig úr nefndar­störfum og segja mig úr stjórnum. Við erum að fara yfir þau mál hér í Kópavogi. Ég vil samt sem áður klára kjör­tímabilið sem fulltrúi í bæjar­stjórn Kópavogs, enda var ég kjörin til fjögurra ára,“ sagði Theodóra við DV í janúar.

Theódóra hefur ekki dregið úr starf­skyldum sínum á sveitar­stjórnar­stigi umfram það að gefa ekki kost á sér á ný í stjórn Isavia á aðalfundi félagsins í lok mars. Hún var endur­kjörin formaður bæjar­stjórnar í síðustu viku og er enn formaður skipulags­ráðs bæjarins. Seta í bæjar­stjórn Kópa­vogsbæjar er metin sem 33 prósent staða, formennska í bæjarráði er 45 prósent staða og svo eru greiðslur fyrir að sitja í nefndum. Þá er 15 prósent álag á þing­fararkaup fyrir formenn þing­flokka. Þannig er Theodóra í hátt í 200 prósent stöðu fyrir hið opinbera á launum frá almenningi.

Jafnréttismál

Theódóra sagði það vera jafnréttismál að hún fengi að gegna starfi bæjar­fulltrúa samhliða þing­mennsku. „Mér fannst það sama eiga að gilda um um konur,“ sagði Theódóra og vísaði þannig til fyrri fordæma þess að kjörnir fulltrúar hafi starfað bæði á landsvísu og á sveitar­stjórnar­stigi.

Hún sagði að þing­mennirnir Gunnar Birgisson, Ármann Kr. Ólafsson og Birkir Jón Jónsson hefðu einnig setið í bæjar­stjórn samhliða þing­mennsku. „Ég kynnti mér þetta sérstak­lega fyrir kosningar og fór yfir söguna hér í Kópavogi. Það eru fjölmargir bæjar­fulltrúar hér í gegnum tíðina sem hafa verið þingmenn og bæjar­fulltrúar. Og jafnvel formenn bæjarráðs. Þetta voru, held ég, allt karlmenn. Mér fannst það sama eiga að gilda um konur. Mig langar til þess að vera hér áfram bæjar­fulltrúi. Það er bara eins og allir aðrir. Mér finnst það bara út frá jafnræði. Þegar einhver getur verið læknir eða skóla­stjóri eða hvað sem er, í 100 prósent starfi, finnst mér það alveg eiga við það að vera þingmaður. Það er auðvitað þannig að ráðherrar eru í 100 prósent starfi sem ráðherrar og líka þingmenn. Og ég talaði alveg skýrt um þetta fyrir kosningar. Ég var margspurð að þessu,“ sagði hún í samtali við Stundina.

Tekjur Theódóru hækkuðu um 186 þúsund krónur á mánuði með ákvörðun bæjar­stjórnar Kópavogs um 26 prósenta launa­hækkun bæjar­fulltrúa í febrúar. Eftir launa­hækkunina námu tekjur Theódóru þannig 2,4 milljónum króna og voru til jafns við tekjur Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands. Í lok mars lét Theódóra hins vegar af störfum sem stjórnar­maður Isavia fyrir hönd Kópa­vogsbæjar og lækkuðu laun hennar við það um 160 þúsund krónur. 

Laun þingmanna og bæjarfulltrúa hækkað mikið

Laun þingmanna voru hækkuð langt umfram hækkun almennrar launa­vísitölu á kjördag, 29. október síðastliðinn. Hækkunin hefur verið rökstudd með því að þingmenn hafi orðið eftir á í kjara­þróun. Hins vegar sýnir saman­burður þing­fararkaups við þróun launa­vísitölu að þingmenn hafa hækkað 28 prósentu­stigum meira í launum en almenningur síðustu tíu árin. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ákvað að gefa launa­hækkunina til góðgerðar­mála og

skoraði á þingmenn að „vinda ofan af“ hækkuninni. „Ég bað ekki um þessa kaup­hækkun. Ég vissi ekki af þessari kaup­hækkun. Ég þarf ekki þessa kaup­hækkun. Margir þingmenn hafa lýst andúð sinni á þessari ákvörðun kjararáðs. Ég vænti þess að þingið vindi þá ofan af þessari ákvörðun,“ sagði hann.

Þingmenn urðu ekki við þeirri áskorun, en forsætis­nefnd Alþingis ákvað að endur­skoða verulegar endur­greiðslur á kostnaði til þingmanna þess í stað sem varð til þess að laun þingmanna lækkuðu um rúmar hundrað þúsund krónur á mánuði.

Á fundi bæjar­stjórnar Kópavogs í síðustu viku var þannig ljóst að Theódóra hugðist ekki draga úr starf­skyldum sínum í Kópavogi umfram það að hætta í stjórn Isavia og munu laun hennar því nema rúmum 2,2 milljónir króna á mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár