Borgarstjóri Kaupmannahafnar hættur í stjórnmálum vegna áreitnismála

Borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar og vara­for­maður danskra sós­í­alde­mókrata er hættur í pólítík, en hann hefur und­an­farna daga verið sak­aður um og við­ur­kennt kyn­ferð­is­lega áreitni. Síðast í gær sagð­ist hann hafa stuðn­ing til að sitja áfram.

Frank Jensen yfirborgarstjóri Kaupmannahafnar og varaformaður Sósísaldemókrataflokksins er hættur afskiptum af stjórnmálum.
Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar og vara­for­maður Sósís­alde­mókra­ta­flokks­ins er hættur afskiptum af stjórn­málum. Mynd: Wikimedia Commons

Frank Jensen, borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar og vara­for­maður danska Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins, er hættur afskiptum af stjórn­málum vegna ásak­ana í hans garð um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Jensen til­kynnti þetta á blaða­manna­fundi í morgun og kemur yfir­lýs­ing hans nokkuð á óvart, þar sem síð­degis í gær sagð­ist hann njóta fulls stuðn­ings til þess að sitja áfram, bæði sem borg­ar­stjóri og vara­for­maður flokks­ins. Hann hafði við­ur­kennt óvið­eig­andi hegðun í garð kvenna, en sagð­ist sjálfur vilja taka þátt í að breyta menn­ing­unni.

Í dag sagði Jensen hins vegar, sam­kvæmt frétt DR, að þessi mál kæmu til með að skyggja á stjórn­mála­störf hans og því hefði hann tekið ákvörðun um að hætta afskiptum af stjórn­málum.

„Ég hefði að sjálf­sögðu viljað enda minn póli­tíska feril á annan hátt, það segir sig sjálft,“ er haft eftir Jensen, sem hefur verið yfir­borg­ar­stjóri í Kaup­manna­höfn frá árinu 2010. Áður var hann búinn að sitja á þingi fyrir Sós­í­alde­mókrata í heil 19 ár, þar af sjö ár sem ráð­herra. Hann hefur verið vara­for­maður flokks­ins frá árinu 2012, en for­mað­ur­inn er Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra.

Frederik­sen tjáði sig um málið fyrst í gær, eftir að Jensen hafði lýst því yfir að hann hefði stuðn­ing bak­lands­ins til að sitja áfram. Hún sagð­ist taka mál­inu alvar­lega og að það væri ljóst að það væru vanda­mál hjá Sós­í­alde­mókra­ta­flokknum hvað þetta varðar. „Því ætlum við að breyta,“ sagði hún í skrif­legu svari til Ritzau-frétta­veit­unnar í gær.

Samkvæmt frétt DR var Jensen auð­sýni­lega óhress með þessar mála­lyktir og lýsir hann því yfir að hann hafi, sem fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, áhyggjur af stöðu rétt­ar­rík­is­ins, sem verði að passa upp á.

Strauk læri óumbeðinn

Á föstu­dag­inn, 16. októ­ber, birt­ist í Jót­land­s­póst­inum við­tal við Marie Gudme, sem situr í svæð­is­ráði sós­í­alde­mókrata á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu og aðra ónafn­greinda konu. Gudme lýsti því í sam­tali við blaðið að Jensen hefði strokið á henni inn­an­vert lærið árið 2012 og sú ónafn­greinda sagði svipað atvik hafa átt sér stað árið 2017. Eftir að þetta kom upp á yfir­borðið hafa margar konur til við­bótar lýst óvið­eig­andi hegðun af hálfu Jensen.

Áður hafa svipuð mál tengd Jensen verið til opin­berrar umræðu í Danmörku, en árið 2004 og 2011 var hann sak­aður um óvið­eig­andi hátt­semi í garð yngri kvenna, í bæði skiptin í tengslum við jóla­skemmt­anir.

Rétt eins og kór­ónu­veiran rís nú í annarri bylgju víða um heim má segja að önnur bylgja MeToo-bylt­ing­ar­innar gangi nú yfir Danmörku, en upp­haf hennar má rekja til ræðu sem leik- og sjón­varps­konan Sofie Linde hélt við árlega upp­skeru­há­tíð danskra gín­ara, Zulu Comedy Gala, 6. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar greindi hún meðal ann­ars frá því að hún hefði, þá átján ára gömul og í upp­hafi fer­ils síns hjá DR, orðið fyrir því að þekktur sjón­varps­maður krafð­ist þess að hún veitti honum munn­gælur, ann­ars myndi hann eyði­leggja feril hennar.

Í kjöl­farið hafa konur í fjöl­miðlum og fleiri starfs­stéttum stigið fram með allskyns sögur og kyn­ferð­is­leg áreitni og ofbeldi verið ofar­lega á baugi í danskri þjóð­mála­um­ræðu. Á stjórn­mála­svið­inu urðu þau tíð­indi 7. októ­ber að Morten Østergaard leið­togi Radikale Venstre sagði af sér sem flokks­for­maður, eftir að hafa reynt að leyna því, bæði fyrir flokks­fé­lögum og almenn­ingi, að það hefði verið hann sem hefði sett hönd á læri þing­kon­unnar Lotte Rod árið 2010, er hún var 25 ára gam­all ung­liði í flokknum.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar hefur verið breytt, til að end­ur­spegla skýrar að Jensen hefur játað að hafa hagað sér með óvið­eig­andi hætti í garð kvenna.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár