„Upplifum í fyrsta sinn að hlustað sé á okkur“

Stjórn­mála­menn eru ekki með á reiðum höndum hvernig takast eigi á við metoo-bylt­ing­una sem nú ríður yfir Danmörku – en konur í stjórn­málum stigu fram í síð­asta mán­uði og greindu frá reynslu sinni af kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi.

Metoo-bylgja reið yfir heims­byggð­ina fyrir þremur árum og nú hefur Danmörk tekið við sér. Þúsundir kvenna úr hinum ýmsu stéttum hafa skrifað undir yfir­lýs­ingar eða áskor­anir um að stöðva kyn­bundið ofbeldi og kyn­ferð­is­lega áreitni þar í landi.

Kjarninn tal­aði við Camillu Søe sem er ein úr hópi kvenna í stjórn­málum sem sagði hingað og ekki lengra. Hópurinn sem sam­an­stóð af yfir 300 konum krafð­ist þess af leið­togum stjórn­mála­flokka að útrýma áreitni og ofbeldi. Yfir­lýs­ing þess efnis birt­ist í danska blað­inu Politi­ken þann 25. sept­em­ber – í kjöl­far þess að fræg leik­kona og skemmti­kraftur greindi óvænt frá reynslu sinni í byrjun sept­em­ber. Læknar og lög­fræð­ingar eru meðal þeirra sem fylgt hafa for­dæmi þeirra og birt sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu á borð við þeirra.

Camilla er 29 ára gömul og vinnur sem almanna­teng­ill – en hún hefur verið við­riðin stjórn­mál til fjölda ára. „Ég hef verið með­limur í Venstre í um átta ár – bæði í ung­menna­hreyf­ing­unni og síðan í flokknum sjálfum.“

Camilla segir að miklar umræður og ólga hafi verið í Danmörku und­an­farnar vikur eftir að Sofie Linde, leik­kona og skemmti­kraftur, steig fram í sjón­varps­þætti á TV2 og greindi frá skammar­legri fram­komu karla gagn­vart henni. Málið vakti gríð­ar­lega mikla athygli en rúm­lega 1.600 núver­andi og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­konur lýstu í kjöl­farið stuðn­ingi við Sofie Linde og hrósuðu henni fyrir að segja frá.

Viðbrögðin yfirþyrmandi

„Við vildum hrinda af stað hreyf­ingu – ég og þrjár konur úr tveimur öðrum flokkum hér í Danmörku. Við sett­umst niður saman og ræddum málin en við vildum skrifa skoð­ana­grein um ástandið í stjórn­málum og birta í einu stærsta blað­inu í Danmörku. Við bjuggum til sam­eig­in­legt skjal og buðum konum sem við þekktum í stjórn­málum að taka þátt í fram­tak­inu,“ segir hún en tekur sér­stak­lega fram að um sam­eig­in­legt átak hafi verið að ræða.

Það sem gerð­ist næst kom Camillu mikið á óvart en fram­takið fékk strax geysi­legan stuðn­ing. Konur gátu ritað nafn sitt undir yfir­lýs­ing­una, þar sem þær hvöttu stjórn­mála­menn og for­ystu­fólk flokka til að upp­ræta kyn­ferð­is­lega áreitni og kyn­bundið ofbeldi á þessum vett­vangi. Enn fremur létu margar konur fylgja með frá­sagnir af reynslu sinni í stjórn­málum en þær inni­héldu allt frá óþægi­legum athuga­semdum karl­manna í þeirra garð til grófra kyn­ferð­is­brota. Konurnar komu úr öllum flokkum en alls skrif­uðu 322 konur undir áskor­un­ina og 79 frá­sagnir fylgdu henni.

Camilla segir að verk­efnið hafi vaxið og vaxið – og hafi við­brögðin í raun verið yfir­þyrm­andi. Áskor­unin birt­ist, sem fyrr segir, í danska blað­inu Politi­ken þann 25. sept­em­ber og segir hún að mörgum innan stjórn­mál­anna, sem og utan þeirra, hafi verið veru­lega brugðið.

Metoo-hreyfingin í Danmörku náði ekki fótfestu fyrir þremur árum

Metoo-bylt­ingin er um þriggja ára gömul en í árs­lok 2017 sögðu konur úr hinum ýmsu heims­hornum frá reynslu sinni af kyn­bundnu ofbeldi, áreitni og mis­munun sem á sér stað. Íslenskar konur gerðu slíkt hið sama en það voru einmitt konur í stjórn­málum sem riðu á vaðið og sendu frá sér áskorun í nóv­em­ber sama ár. Fjöldi starfs­stétta og sam­fé­lags­hópa gaf í kjöl­farið út yfir­lýs­ingar þar sem kyn­ferð­is­legu áreiti, ofbeldi og mis­munun var mót­mælt. Krafan var skýr: Konur vildu breyt­ingar, að sam­fé­lagið við­ur­kenndi vand­ann og hafn­aði núver­andi ástandi. Þær kröfð­ust þess að sam­verka­menn þeirra tækju ábyrgð á gjörðum sínum og að verk­ferlar og við­bragðs­á­ætl­anir yrðu gang­settar.

Camilla segir að vissu­lega hafi metoo verið til umræðu í Danmörku fyrir þremur árum og minn­ist hún sér­stak­lega á umfjöllun um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi í garð kvenna í kvik­mynda­iðn­að­inum þar í landi. Hún bendir á að það hafi þó ekki náð að ýta á konur innan ann­arra starfs­greina eða geira til þess að stíga fram og greina frá sinni reynslu.

„Þetta sner­ist aðal­lega um kvik­mynda- og fjöl­miðla­heim­inn á sínum tíma. Enginn hafði til dæmis talað um áreitni eða kyn­bundið ofbeldi sem vanda­mál í stjórn­málum – þrátt fyrir að bent hafi verið á eitt og eitt atvik. Hreyf­ingin hafði ekki náð fót­festu,“ segir hún.

Þessi menning heldur konum frá stjórnmálum

Það sem þær vildu gera núna með því að rjúfa þagn­ar­múr­inn var að benda á þá stað­reynd að kyn­ferð­is­leg áreitni væri hluti af menn­ingu innan stjórn­mál­anna. Camilla segir að þetta vanda­mál haldi konum frá því að taka þátt í póli­tísku starfi og vilji þær þar af leið­andi ekki vera hluti af danska þing­inu og öðrum póli­tískum vett­vangi. „Við vildum sanna að kynja­mis­rétti væri hluti af dönskum stjórn­málum,“ segir hún og bætir því við að við­brögðin og sam­staðan hafi komið henni algjör­lega í opna skjöldu.

Frá­sagn­irnar hljóma oft kunn­ug­lega og það er ákveð­inn sam­hljómur á milli þeirra. Ég hef heyrt að núna líði konum eins og þær séu hluti af hreyf­ingu – að þær standi ekki einar.
Camilla segir að leiðtogar stjórnmálaflokkanna viti ekki endilega hver næstu skref eigi að vera. Sumir séu mjög óttaslegnir við það að takast á við ástandið með röngum hætti.
Camilla segir að leið­togar stjórn­mála­flokk­anna viti ekki endi­lega hver næstu skref eigi að vera. Sumir séu mjög ótta­slegnir við það að takast á við ástandið með röngum hætti.

Camilla segir að við­brögðin hafi enn fremur verið mjög til­finn­inga­þrungin, sér­stak­lega varð­andi frá­sagnir kvenn­anna, og að kallað hafi verið eftir aðgerðum í fram­hald­inu. „Ég hef tekið eftir því að leið­togar stjórn­mála­flokk­anna vita ekki endi­lega hver næstu skref eigi að vera. Sumir eru mjög ótta­slegnir við það að takast á við ástandið með röngum hætti. Þeir vilja vissu­lega gera hið rétta en þeir vita ekki endi­lega hver réttu við­brögðin við þessu ákalli eru og þar af leið­andi næstu skref.“

Hún segir að við­brögðin séu ólík milli flokk­anna en þeir þrír stærstu hafa allir boðið þeim konum sem skrif­uðu undir áskor­un­ina á fund til þess að á þær verði hlustað og málin rædd. Sumar af þessum konum hafa aldrei áður greint frá sinni reynslu og segir Camilla að fund­irnir séu hugs­aðir sem vett­vangur fyrir þær að segja frá. „Miðað við það sem ég hef heyrt þá hefur þetta mál­efni – hvernig komið er fram við fólk á vinnu­stöðum og í stjórn­málum – farið sem eldur í sinu um sam­fé­lagið allt.“

Núna loksins er hlustað á raddir kvenna

Hugur er í fólki að breyta þess­ari menn­ingu – breyta hlut­unum til betri vegar, að sögn Camillu. „Nú hafa konur vett­vang til þess að ræða þessa hluti en við erum til dæmis með danskt myllu­merki #enbland­tos sem í raun þýðir „ein af okkur“. Frá­sagn­irnar hljóma oft kunn­ug­lega og það er ákveð­inn sam­hljómur á milli þeirra. Ég hef heyrt að núna líði konum eins og þær séu hluti af hreyf­ingu – að þær standi ekki einar. Núna er loks­ins hlustað á raddir kvenna hví­vetna.“ Þarna skiptir fjöld­inn máli, að hennar mati.

Til­gang­ur­inn sé þannig að gera menn­ing­ar­legar breyt­ingar en ekki ein­blína á ein­stök mál. „Menning er ekki eitt­hvað sem við sjáum með berum augum – hún er óræð­ari en það. Við stefnum á að breyta því hvernig við komum fram við hvort annað, hvernig við tölum við hvort annað og um annað fólk. Það er til­gangur okkar með hreyf­ing­unni.“

Varðandi það hvernig þessu mark­miði verði náð þá segir Camilla að hún von­ist til þess að hreyf­ingin verði inn­blástur fyrir aðrar konur. „Núna upp­lifum við í fyrsta sinn að hlustað sé á okkur og það er mjög mik­il­vægt fyrsta skref. Nú vita konur hvert á að fara með kvart­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni og kynja­mis­rétti og þá ætti að vera hægt að takast á við það með réttum aðferðum,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár