Vinstri græn högnuðust um 60 milljónir króna á síðasta ári

Flokkur forsætis­ráðherra fékk 92 prósent tekna sinna úr opinberum sjóðum á árinu 2020. Hann þáði engin framlög frá lögaðilum. Hagnaður Vinstri grænna jókst samt sem áður um 55 prósent milli ára.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rekstrar­tekjur Vinstri grænna voru 148,5 milljónir króna á árinu 2020, sem var tæplega 5,3 milljónum krónum minna en flokkurinn hafði í tekjur árið áður. Líkt og hjá öðrum stjórn­málaflokkum kom þorri tekna úr opinberum sjóðum. Alls komu 134 milljónir króna úr ríkis­sjóði og frá Alþingi og 1,9 milljónir króna frá sveitar­félögum þar sem flokkurinn á kjörinn fulltrúa. Því komu um 92 prósent tekna Vinstri grænna úr opinberum sjóðum.

Flokkurinn þáði ekki eina krónu frá lögaðilum í fyrra en voru 8,5 milljónir króna og innheimt félags­gjöld 3,3 milljónir króna.

Hagnaður Vinstri grænna var 60 milljónir króna á árinu 2020 og jókst um 55 prósent milli ára.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Vinstri grænna sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar nýverið og birtur á vef stofnunarinnar í gær. Flokkurinn fékk alls 11 þingmenn kjörna í kosningunum 2017 og 16,9 prósent atkvæða. Það gerði hann að næst stærsta flokknum á þing.

Vinstri græn töpuðu hins vegar tveimur þing­mönnum til annarra flokka á kjör­tímabilinu og fengu svo 12,6 prósent atkvæða í kosningunum í september síðastliðnum, sem skilaði Vinstri grænum átta þing­mönnum.

Búast má við því að framlög til flokksins úr ríkis­sjóði verði fyrir vikið umtals­vert lægri á þessu kjör­tímabili en á því síðasta enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkis­sjóði.

Aukin auglýsingakostnaður

Rekstrar­gjöld voru 89,4 milljónir króna og drógust saman um 24 prósent milli ára. Nær allir kostnaðar­liðir annað hvort lækkuðu eða breyttust lítillega. Laun og launa­tengdur kostnaður lækkuðu til að mynda um 12 milljónir króna. Undan­tekningin frá því var kostnaður vegna auglýsinga sem hækkaði um 40 prósent og var 22,1 milljón króna.

Vert er þó að taka fram að á árinu 2019 var haldinn lands­fundur Vinstri grænna og gefin út vegleg bók um sögu hreyfingarinnar í tilefni af 20 ára afmæli hennar. Saman­lagður kostnaður við það á því ári var rúmlega 20 milljónir króna.

Flokkurinn átti eignir upp á 118,5 milljónir króna um síðustu áramót. Þar af var handbært fé 112,8 milljónir króna en það nánast tvöfaldaðist frá árinu áður.

Vinstri græn eru skuld­léttur stjórn­málaflokkur, heildar­skuldir hans voru 3,7 milljónir króna í lok síðasta árs, og skuldirnar lækkuðu úr 9,3 milljónum krónum á síðasta ári.

Eina fasteignin sem flokkurinn á er húsnæði við Brekku­götu á Akureyri sem bókfært er á fimm milljónir króna. Fasteignamat þess er hins vegar 14,7 milljónir króna.

Helmingur framlaga frá einstaklingum á síðustu ári komu frá þing­mönnum og starfs­mönnum Vinstri grænna.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjör­tímabils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Ríkis­endurskoðun ekki birt ársreikninga eins flokks, Pírata, vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár