Eignir Sjálfstæðisflokks metnar á næstum milljarð – Ætlar að byggja 47 íbúða blokk

Rekstrar­hagnaður stærsta flokks landsins var 111 milljónir króna í fyrra. Tvær af hverjum þremur krónum sem hann hafði í tekjur koma úr opinberum sjóðum og sjávar­útvegs­fyrirtæki eru áberandi á meðal þeirra lögaðila sem styrkja flokkinn.

Rekstrar­tekjur Sjálfstæðis­flokksins á síðasta ári voru 328,4 milljónir króna og drógust saman um tæplega 16 miljónir króna milli ára. Rekstrar­gjöld voru 217 milljónir króna og rekstrar­hagnaður því 111,4 milljónir króna á árinu 2020. Þegar flokkurinn var búinn að greiða af lánum sínum stóðu eftir 85 milljónir króna í hreinann hagnað á síðasta ári, sem er 18 milljónum krónum meira en Sjálfstæðis­flokkurinn hagnaðist um árið 2019. Því hagnaðist flokkurinn um 152 milljónir króna á tveimur árum, en árið 2018 tapaði hann 35 milljónum króna.

Lang­stærsti hluti tekna Sjálfstæðis­flokksins, 195,5 milljónir króna, komu úr ríkis­sjóði. Sveitar­félög greiddu flokknum svo 20 milljónir króna í framlög til viðbótar þannig að alls komu tvær af hverjum þremur krónum sem Sjálfstæðis­flokkurinn hafði í tekjur í fyrra úr opinberum sjóðum.

Til viðbótar sótti hann 53,1 milljón króna í framlög og félags­gjöld frá einstaklingum og lögaðilum og hafði 59,6 milljónir króna í aðrar tekjur, sem að uppistöðu eru leigu­tekjur. Á meðal þeirra lögaðila sem greiddu Sjálfstæðis­flokknum hámarks­styrk upp á 550 þúsund krónur eru sjávar­útvegs­fyrirtæki mest áberandi.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Sjálfstæðis­flokksins sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar nýverið og var birtur síðdegis í dag.

Flokkurinn var með alls 16 þingmenn á síðasta kjör­tímabili eftir að hafa fengið 25,3 prósent atkvæða í kosningum 2017. Fyrir vikið var hann sá flokkur sem hafði langflesta þingmenn. Sjálfstæðis­flokkurinn tapaði lítillega, 0,9 prósentu­stigum, í síðustu kosningum en hélt sínum 16 þing­mönnum. Þeim fjölgaði í 17 þegar einn þingmaður Miðflokksins skipti yfir nokkrum dögum eftir kosningarnar.

Búast má við því að framlög til Sjálfstæðis­flokksins á þessu kjör­tímabili verði svipuð og á því síðasta enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkis­sjóði.

Fasteignamat hærra en bókfært virði

Sjálfstæðis­flokkurinn er lang­umsvifa­mesti flokkur landsins. Eignir hans eru metnar á 925 milljónir króna og hækkuðu um 77 milljónir króna milli ára. Dýrmætustu eignir flokksins eru fasteignir, sem metnar eru á 646 milljónir króna. Þær eru bókfærðar á kostnaðar­verði, en fasteignamat eigna og lóða er hærra, eða 919 milljónir króna. Þar á meðal er Valhöll, höfuð­stöðvar flokksins. Í október var samþykkt beiðni flokksins um að byggja blokk með 47 íbúð­um og at­vinnu­hús­næði á lóð Valhallar. Auk þess á flokkurinn hlut í tveimur félögum, Þorra ehf. og Íhaldi ehf., Það fyrr­nefnda hefur þann tilgang að halda utan um kaup, sölu og rekstur fasteigna, blaða­útgáfu, lána­starfsemi og aðra skylda starfsemi vegna starfs Sjálfstæðis­flokksins í Kópavogi. Hið síðarnefnda vinnur að húsnæðis­málum samtaka eða félaga sjárfsstæðismanna í Fljótsdals­héraði.

Handbært fé Sjálfstæðis­flokksins um síðustu áramót var rúmlega 195 milljónir króna og jókst um 89 milljónir króna á síðasta ári.

Skuldir flokksins lækkuðu lítillega á milli ára og voru 449 milljónir króna í lok árs 2020. Óráð­stafað eigið fé Sjálfstæðis­flokksins var því 476,2 milljónir króna um síðustu áramót.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjör­tímabils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Ríkis­endurskoðun ekki birt ársreikninga eins flokks, Pírata, vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár