Stjórnmálaflokkar fá rúmlega 3,6 milljarða króna úr ríkissjóði á fimm árum

Níu stjórn­málaflokkar skipta með sér 728 milljónum krónum úr ríkis­sjóði árlega. Áætluð framlög voru 442 milljónum krónum lægri í upphafi síðasta kjör­tímabils.

Þeir níu stjórn­málaflokkar sem fengu nægjanlegt fylgi í síðustu þing­kosningum til að fá úthlutað fjármunum úr ríkis­sjóði fá samtals 728,2 milljónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári. Þetta kemur fram í fjár­laga­frumvarpi Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, sem lagt var fram í síðustu viku.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga fulltrúa á þingi auk Sósíalista­flokks Íslands sem hlaut nægjanlegt fylgi í síðustu kosningum til að hljóta framlag.

Það er sama upphæð og flokkarnir fengu samtals í fyrra og sama upphæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætlanir stjórn­valda ráð fyrir því að hún haldist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­málaflokkar landsins alls hafa fengið 3.641 milljónir króna úr ríkis­sjóði á fimm ára tímabili.

Fram­lögin hækk­uðu veru­lega í kjöl­far þess að til­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­sent var sam­­­­þykkt í fjár­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka áttu að vera 286 millj­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­ónir króna á því ári.

Einu flokk­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

Geta sótt sér viðbótarfé og Alþingi greiðir kostnað við starfsmenn

Full­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­menn stjórn­­­­­mála­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­mál stjórn­­­­­mála­­­flokka og fram­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­mála­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­um. Hámarks­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­greindur í árs­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­ur.

Því hafa tæki­­­færi stjórn­­­­­mála­­­flokka til að taka við upp­­­hæðum frá ein­stak­l­ingum og fyr­ir­tækjum verið aukin sam­hliða því að upp­­­hæðin sem þeir fá úr rík­­­is­­­sjóði var rúm­­­lega tvö­­­­­föld­uð.

Til viðbótar við þær greiðslur er kostnaður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár