Kostnaður vegna launa aðstoðarmanna og ráðherra hækkar og verður 715 milljónir

Laun ráðherra og aðstoðar­manna þeirra hafa hækkað skarpt á undan­förnum árum og langt umfram almenna launa­þróun. Ráðherrum hefur verið fjölgað í nýrri ríkis­stjórn og því er heimild til að ráða allt að 27 aðstoðar­menn.

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.
Annað ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Stjórnarráðið

Rekstur rík­is­stjórnar Íslands, sem í fel­ast launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra, er áætl­aður 714,9 milljónir króna á næsta ári samkvæmt fyrir­liggjandi fjár­laga­frumvarpi. Það er um fimm prósent meiri kostnaður en áætlun vegna ársins 2021 gerir ráð fyrir, en þá á reksturinn að kosta 681,3 milljónir króna.

Á fyrsta heila ári fyrri rík­is­stjórn­ar­innar Katrínar Jak­obs­dóttur við völd, árið 2018, var kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna áætlaður 461 millj­ónir króna. Kostnaðurinn á næsta ári er því 55 prósent hærri í krónum talið.

Kostnaðurinn á þessu fyrsta starfsári ríkis­stjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks reyndist á endanum hærri, eða 597 milljónir króna. Því hefur kostnaðurinn vegna launa ráðherra og aðstoðar­manna þeirra alls vaxið um 117,9 milljónir króna frá 2018, eða 20 prósent.

Í fjár­laga­frumvarpinu sem lagt var fram i síðustu viku er áætlað að kostnaðurinn haldist í sömu krónutölu út árið 2024, eða 714,9 milljónum króna.

Ráðherralaun hækkað um 70 prósent frá 2016

Laun þing­manna hækkuðu síðast í sumar, um 6,2 pró­sent, og eru orðin 1.285.411 krónur á mán­uði. Frá miðju ári 2016 hafa laun þeirra hækkað um rúmlega 80 prósent. Þau laun eru greidd af öðrum lið í fjárlögum, af Alþingi sjálfu. Ráðherra­launin eru hins vegar greidd að áður­nefndum lið sem kallast ríkis­stjórn Íslands.

Grunn­laun for­sæt­is­ráð­herra sem mið af þingfara­kaupi en ofan á það legst álags­greiðsla upp á 1.074.642 krónur. Samtals eru laun Katrínar Jakobs­dóttur því 2.360.053 krónur á mánuði. Aðrir ráðherrar fá lægri álags­greiðslu ofan á þingfara­kaupið en eru samt sem áður með 2.131.788 krónur í mánaðar­laun.

Laun ráðherra hafa hækkað skarpt, og langt umfram almenna launa­þróun, á undan­förnum árum. Snemm­sumars 2016 voru almennir ráðherrar með 1.257.425 krónur í mánaðar­laun og hafa því hækkað um 874.363 krónur síðan þá, eða um 70 prósent. Hækkun ráð­herra­laun­anna nemur rúm­lega 150 pró­sent af mið­gildi heild­ar­tekna á Íslandi.

Aðstoðarmönnum fjölgað 2011

Lögum um Stjórn­ar­ráð Íslands var breytt árið 2011 með þeim hætti að heim­ild til að fjölga aðstoð­ar­mönnum ráð­herra var útvíkkuð þannig að hver og einn þeirra má ráða tvo slíka. Auk þess var sett inn heim­ild fyrir rík­is­stjórn­ina að ráða þrjá aðstoð­ar­menn til við­bótar ef þörf kref­ur. Í lög­unum segir að „meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra.“

Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­­ar­­manna­­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­­ast um að ræða nán­­ustu sam­­starfs­­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Skömmu eftir að lög­unum var breytt var ráð­herrum fækkað í átta, en þeir höfðu verið tólf þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók við völdum árið 2009.

Síðan hefur ráð­herrum verið fjölgað aftur jafnt og þétt með hverri rík­is­stjórn­inni og í dag eru þeir orðnir tólf. Það þýðir að fjöldi leyfi­legra aðstoð­ar­manna hefur líka auk­ist.

Mega ráða allt að 27 aðstoðarmenn

Alls má rík­is­stjórnin því ráða 27 aðstoð­ar­menn sem stendur. Laun og starfs­kjör aðstoð­ar­manna ráð­herra mið­ast við kjör skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum sam­kvæmt ákvörð­unum kjara­ráðs.

Aðstoð­ar­menn­irnir hafa fengið dug­lega launa­hækkun á und­an­förnum árum. Sum­arið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­­ar­­manna um 1,2 millj­­ónir króna á mán­uði. Launin hafa hækkað enn frekar síðan þá.

Nú eftir kosningar hafa þegar nokkrir þeirra sem voru aðstoðar­menn ráðherra á síðasta kjör­tímabili tilkynnt að þeir ætli ekki að halda áfram störfum. Má þar nefnda Lísu Kristjáns­dóttur, fyrr­verandi aðstoðar­mann forsætis­ráðherra, Hrannar Pétursson, fyrr­verandi aðstoðar­mann mennta- og menningar­mála­ráðherra, og Ólaf Teit Guðnason, fyrr­verandi aðstoðar­mann ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra.

Aðstoðar­maður ráðherra á samkvæmt lögum rétt á biðlaunum í þrjá mánuði eftir að hann lætur af starfi. þar segir ennfremur að hafi „aðstoðar­maður áður verið ríkis­starfsmaður á hann rétt á að hverfa aftur til fyrra starfs síns eða annars starfs eigi lakara að föstum launum í þjónustu ríkisins. Þiggi fyrr­verandi aðstoðar­maður ráðherra laun vegna annarra starfa á því tímabili sem hann á rétt á biðlaunum vegna fyrri starfa sinna sem aðstoðar­maður skerðast biðlaunin sem þeim launum nemur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár