Samfylkingin hagnaðist um 40 milljónir króna í fyrra

Kostnaður við rekstur Samfylk­ing­ar­innar jókst um 50 prósent á árinu 2020. Eigið fé flokksins er rúmlega 200 milljónir króna og jókst um 120 prósent á tveimur árum. Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru stóraukin á síðasta kjör­tímabili.

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Samfylkingarinnar á síðasta ári voru 152,4 milljónir króna. Þar af komu 114 milljónir króna í formi framlaga frá ríkis­sjóði, Alþingi og sveitar­félögum, tæplega 13 milljónir komu í form framlaga einstaklinga og rúm milljón króna frá lögaðilum. Inni í þeim tölum eru ekki innheimt flokks­gjöld, alls um fjórar milljónir króna, en þau nánast tvöfölduðust milli ára.

Þorri þeirra einstaklinga sem gáfu yfir 300 þúsund krónur til flokksins er fólk úr forystu­sveit hans. Má þar nefna formanninn Loga Einarsson, vara­formanninn Heiðu Björg Hilmis­dóttur og Dag B. Eggertsson, borgar­stjóra í Reykjavík.

Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Samfylkingarinnar sem skilað var inn til Ríkis­endur­skoðunar fyrir skemmstu. Flokkurinn var með átta þingmenn í lok síðasta kjör­tímabils eftir að Rósa Björk Björk Brynjólfs­dóttir gekk til liðs við hann. Hann fékk hins vegar sjö kjörna árið 2017 og 12,1 prósent atkvæða, en atkvæða­magnið segir til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkis­sjóði. Samfylkingin tapaði 2,2 prósentu­stigum í síðustu kosningum og er nú með sex þingmenn. Framlög til flokksins úr ríkis­sjóði munu því dragast saman á þessu kjör­tímabili.

Launakostnaður jókst um 46 prósent

Launa­kostnaður flokksins jókst umtals­vert á árinu 2020, eða um 46 prósent, og var 41,7 milljónir króna. Hjá flokknum störfuðu þrír starfs­menn á árinu 2020. Í raun jókst allur kostnaður við rekstur flokksins, alls um 50 prósent milli ára, og var 110,2 milljónir króna. Það þýðir samt sem áður að rekstrar­hagnaður af rekstri Samfylkingarinnar var 42,2 milljónir króna á árinu 2020 og hreinn hagnaður tæplega 40 milljónir króna.

Handbært fé í árslok. var 113,6 milljónir króna og heildar­virði eigna flokksins var metið á 245,6 milljónir króna. Samfylkingin skuldaði lítið um síðustu áramót, alls 42,2 milljónir króna, og lækkuðu skuldirnar um rúmlega 34 milljónir króna milli ára. Þar skiptir mestu að skuldir við lána­stofnanir rúmlega helminguðust.

Eigið fé flokks jafnaðar­manna var 203,5 milljónir króna um síðustu áramót og jókst um tæplega 39 milljónir króna milli ára. Frá árslokum 2018 og til loka síðasta árs jókst eigið fé flokksins um 110,5 milljónir króna, eða um 120 prósent.

Framlög til flokka úr ríkissjóði hækkuð gríðarlega

Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjör­tímabils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Ársreikningar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

]Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Ríkis­endurskoðun ekki birt ársreikninga þriggja flokka; Sjálfstæðis­flokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár