Eigið fé Framsóknar enn neikvætt en staðan batnaði verulega á síðasta kjörtímabili

Í árslok 2018 var eigið fé Framsóknar­flokksins neikvætt um 56 milljónir króna og skuldir hans 239 milljónir króna. Stóraukin framlög úr ríkis­sjóði hafa lagað stöðuna og eigið féð um síðustu áramót var neikvætt um einungis 233 þúsund krónur.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Framsóknar­flokksins voru 109,5 milljónir króna á síðasta ári. Alls komu 74 prósent þeirra úr ríkis­sjóði, rúmlega tíu prósent frá Alþingi og rúmlega þrjú prósent frá sveitar­félögum. Því komu rúmlega 87 prósent tekna flokksins úr opinberum sjóðum.

Aðrar tekjur voru að uppistöðu framlög einstaklinga og lögaðila og almenn félags­gjöld, sem næstum tvöfölduðust milli ára og voru 6,3 milljónir króna. Af þeim 2,9 milljónum króna sem komu inn frá lögaðilum kom uppi­staðan frá fyrir­tækjum í útgerð, Kaup­félagi Skagfirðinga Vísi og Síldar­vinnslunni, og fiskeldis­fyrir­tækjunum Arnarlaxi, Fiskeldi Aust­fjarða og Löxum eignarhalds­félagi.

Rekstur skrif­stofa flokksins var þyngsti hlutinn á gjalda­hliðinni á árinu 2020, en hann kostaði 78,1 milljónir króna og jókst um 21,3 prósent milli ára.

Rekstrar­hagnaður var 40,2 milljónir króna sem þýðir að tæplega 37 prósent af tekjum Framsóknar­flokksins á síðasta ári fór í rekstur hans. Flokkurinn er hins vegar nokkuð skuld­settur og greiddi því tæplega 21 milljón króna í fjármagns­gjöld á árinu 2020. Því var hagnaður hans eftir fjármagns­gjöld 19,2 milljónir króna.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Framsóknar­flokksins sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokkurinn var með alls átta þingmenn á síðasta kjör­tímabili eftir að hafa fengið 10,7 prósent atkvæða í kosningum 2017. Hann var hinsvegar sigurvegari síðustu kosninga, bætti við sig 6,6 prósentu­stigum og fimm þing­mönnum.

Því munu framlög til Framsóknar­flokksins, sem er nú næst stærsti flokkurinn á þingi, aukast verulega á þessu kjör­tímabili enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkis­sjóði.

Arion banki tók yfir hluta af fjármögnun flokksins

Eignir flokksins voru metnar á 211,2 milljónir króna á síðasta ári. Þær eru að uppistöðu fasteignir, sem metnar voru á 126,7 milljónir króna. Verð­mætasta eignin er Hverfis­gata 33, höfuð­stöðvar Framsóknar­flokksins, sem vistuð er inni í dóttur­félaginu Skúla­garði ehf. Fasteignamat hússins var 107 milljónir króna í lok síðasta árs þótt bókfært virði sé einungis 42,3 milljónir króna, en á eigninni hvíla lán upp á 125 milljónir króna samkvæmt ársreikningi Skúla­garðs. Árið 2017 var fasteignin sett að veði fyrir 50 milljón króna láni frá Kviku banka á fjórða veðrétti. Á fyrsta veðrétti var Lands­bankinn, vegna láns þar sem upphaf­legur höfuð­stóll var 20 milljónir króna, og á öðrum og þriðja var Afl Spari­sjóður, vegna lána sem upphaf­lega voru upp á samtals um 60,4 milljónir króna.

Í lok árs 2019 veitti Spari­sjóður Austur­lands flokknum lán upp á 15 milljónir króna á fjórða veðrétti og var þá búið að gera upp lánið við Lands­bankann. Það lán var greitt upp nokkrum dögum síðar ásamt láninu frá Kviku banka þegar Framsókn tók 70 milljóna króna lán hjá Arion banka á þriðja veðrétti, á eftir skuldinni við Afl Sparisjóð, seint í desember 2019.

Framsóknar­flokkurinn átti líka útistandandi skammtíma­kröfur upp á 47,2 milljónir króna í lok síðasta árs sem hann eignfærði og sjóð og banka­innistæðu upp á 29,1 milljón króna.

Skuldir flokksins í heild voru 211,4 milljónir króna en lækkuðu um tæplega 22 milljónir króna milli ára.

Eigið fé félagsins var neikvætt um síðustu áramót, líkt og það hafði verið árin á undan, en nú einungis um 233 þúsund krónur. Til saman­burðar var það neikvætt um 19,2 milljónir króna árið áður og 56 milljónir króna í lok árs 2018.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjör­tímabils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Ríkis­endurskoðun ekki birt ársreikninga þriggja flokka; Sjálfstæðis­flokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síðasta árs. Kjarninn hefur fjallað um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á síðustu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár