Miðflokkurinn hagnaðist um 140 milljónir á þremur árum – Þorri tekna úr ríkissjóði

Launa­kostnaður Miðflokksins jókst um 125 prósent í fyrra og flokkurinn keypti sé fasteign. Tekjur flokksins, sem koma að uppistöðu úr ríkis­sjóði, munu dragast verulega saman eftir afhroð hans í síðustu kosningum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Miðflokksins voru 111 milljónir króna á árinu 2020. Alls komu 74 prósent þeirra úr ríkis­sjóði, 16 prósent frá Alþingi og 3,5 prósent frá sveitar­félögum. Því komu 93,5 prósent af tekjum flokksins úr opinberum sjóðum í form framlaga.

Það sem upp á vantar voru að uppistöðu framlög einstaklinga og lögaðila og félags­gjöld. Framlög lögaðila rúmlega helminguðust milli ára og þeir einstaklingar sem greiddu flokknum hámarks­framlög koma nær allir úr forystu hans. Þar á meðal er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Bergþór Ólason, hinn þingmaður hans.

Þá var flokkurinn með 2,4 milljónir króna í tekjur í fyrra vegna vaxta­tekna á banka­innistæðum.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Miðflokksins sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokkurinn var fjórði stærsti stjórn­mála­flokkurinn á þingi á síðasta kjör­tímabili. Eftir að tveir þingmenn gengu í flokkinn úr Flokki fólksins snemma árs 2019 voru níu í þing­flokknum. Miðflokkurinn beið hins vegar afhroð í síðustu kosningum, fékk 5,4 prósent atkvæða og þrjá menn kjörna. Einn þeirra yfirgaf flokkinn áður en kjör­bréfum var úthlutað og því telur þing­flokkurinn tvo. Því munu framlög til flokksins dragast verulega saman á þessu kjör­tímabili enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkis­sjóði.

Keyptu sér fasteign

Rekstrar­kostnaður jókst umtals­vert á milli ára, eða um 35 prósent, og var 69,3 milljónir króna. Þar munar mest um að laun og launa­tengd gjöld jukust um 125 prósent milli ára og voru 26,5 milljónir króna.

Hagnaður af rekstri flokksins var samt sem áður 43,7 milljónir króna, sem þýðir að tæplega 40 prósent tekna enduðu sem hreinn hagnaður. Það var heldur minna en hann hagnaðist um árið 2019 þegar 66,8 milljónir króna sátu eftir þegar búið var að greiða fyrir allan rekstur Miðflokksins. Hagnaður flokksins árið 2018 var 30,6 milljónir króna og því var saman­lagður hagnaður Miðflokksins á fyrstu þremur árum síðasta kjör­tímabils 141,1 milljónir króna.

Miðflokkurinn keypti sér fasteign á síðasta ári, Í Hamraborg í Kópavogi, sem er metin á 74 milljónir króna í ársreikningum flokksins. Hún myndar, ásamt 104,8 milljónir króna handbæru fé, uppi­stöðuna í eignum flokksins, sem metnar voru á 181 milljón króna um síðustu áramót.

Skuldir Miðflokksins jukust mikið á síðasta ári vegna áður­nefndra fasteigna­kaupa, en flokkurinn skuldaði enn 53 milljónir króna vegna þeirra í lok árs 2020. Alls námu skuldir hans 56 milljónum króna og óráð­stafað eigið fé flokksins því 125,1 milljón króna um síðustu áramót.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjör­tímabils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Ríkis­endurskoðun ekki birt ársreikninga þriggja flokka; Sjálfstæðis­flokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár