Flokkur fólksins átti 93 milljónir til ráðstöfunar um síðustu áramót

Auglýsinga- og kynningar­kostnaður Flokks flokksins tæplega fimm­faldaðist í fyrra. Um 98 prósent tekna hans á síðasta ári kom úr ríkis­sjóði eða frá Alþingi. Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru stóraukin á síðasta kjör­tímabili.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Flokks fólksins voru 62,2 milljónir króna á árinu 2020. Alls komu 98 prósent þeirra til vegna framlaga frá ríkis­sjóði og Alþingi. Um 1,1 milljón króna var framlag frá Reykja­víkurborg, þar sem flokkurinn á borgar­fulltrúa, og 87 þúsund krónur skiluðu sér í formi félags­gjalda. Það er um 30 prósent þeirrar upphæðar sem félags­gjöld skiluðu árið 2019.

Kostnaður Flokks fólksins jókst umtals­vert á síðasta ári, eða um rúmlega 50 prósent. Þar skipti mestu að launa­kostnaður jókst um 65 prósent og var 17 milljónir króna, og að auglýsinga- og kynningar­kostnaður fór úr 1,7 milljón króna í 8,1 milljón króna. Hann tæplega fimm­faldaðist. Alls var fjöldi ársverka hjá flokknum 1,6 á síðasta ári.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Flokks fólksins sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokkurinn var minnstur stjórn­málaflokka á þingi á síðasta kjör­tímabili. Eftir að tveir þingmenn hans voru reknir úr flokknum í lok árs 2018 voru tveir í þing­flokknum. Flokkur fólksins styrkti hins vegar stöðu sína í síðustu kosningum, fékk 8,8 prósent atkvæða og sex menn kjörna. Því munu framlög til flokksins aukast á þessu kjör­tímabili enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkis­sjóði.

Hagnaður alls 99 milljónir króna á þremur árum

Hagnaður Flokks fólksins var 29,4 milljónir króna á síðasta ári sem þýðir að tæplega helmingur af tekjum hans endaði sem hagnaður. Einungis þurfti að nota 53 prósent af framlögum hins opinberra til flokksins til að standa undir rekstri hans.

Þetta er þó minni hagnaður en var á árinu 2019 þegar flokkurinn hagnaðist um 43 milljónir króna. Á því ári var hagnaðurinn 68 prósent af tekjum. Árið 2018 var hagnaður flokksins tæplega 27 milljónir króna, sem var rétt rúmlega helmingur af öllum tekjum hans.

Á þeim þremur árum síðasta kjör­tímabils sem ársreikningar Flokks fólksins liggja fyrir hagnaðist flokkurinn því samtals um 99 milljónir króna.

Óráð­stafað eigið fé Flokks fólksins um síðustu áramót var 93,4 milljónir króna. Það var 21,8 milljónir króna í lok árs 2018. Félagið á engar aðrar eignir en það fé og skuldaði nánast ekkert, eða 1,2 milljónir króna í skammtíma­skuldir. Eigið féð var því 93,4 milljónir króna í lok árs 2020.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjör­tímabils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Ríkis­endurskoðun ekki birt ársreikninga eins flokks, Pírata, vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár