Auglýsingakostnaður Viðreisnar rúmlega áttfaldaðist á árinu 2020

Greidd félags­gjöld til Viðreisnar á síðasta ári voru 15 þúsund krónur. Rekstrar­kostnaður jókst umtals­vert og hagnaður flokksins dróst saman um 20 milljónir króna milli ára. Framlög til flokka úr ríkis­sjóði voru stóraukin á síðasta kjör­tímabili.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Rekstrar­tekjur Viðreisnar í fyrra voru 72,5 milljónir króna. Nánast öll upphæðin kom úr opinberum sjóðum og mest úr ríkis­sjóði, eða 54,9 milljónir króna. Þá voru 8,5 milljónir króna framlög frá Alþingi og tæplega 2,8 milljónir króna komu frá sveitar­félögum þar sem Viðreisn á sveitar­stjórnar­fulltrúa.

Fjár­framlög lögaðila námu 1,8 milljón króna og einstaklingar gáfu flokknum 4,8 milljónir króna í fyrra. Einu tveir einstaklingarnir sem gáfu meira en 300 þúsund voru þing­mennirnir Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, sem er líka formaður flokksins, og Jón Steindór Valdimarsson, sem missti þingsæti sitt í síðustu kosningum.

Aðrar tekjur flokksins voru félags­gjöld og vörusala upp á 15 þúsund krónur. Sá liður skrapp mikið saman milli ára, en hann skilaði Viðreisn 565 þúsund króna tekjum 2019.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Viðreisnar sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir skemmstu. Flokkurinn var með alls fjóra þingmenn á síðasta kjör­tímabili eftir að hafa fengið 6,7 prósent atkvæða í kosningum 2017. Viðreisn bætti við sig 1,6 prósentu­stigi í síðustu kosningum og einum þingmanni. Því munu framlög til flokksins aukast á þessu kjör­tímabili enda segir atkvæða­magnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkis­sjóði.

Kostnaður jókst um 41 prósent milli ára

Kostnaður við rekstur flokksins jókst um 20,2 milljónir króna milli ára, eða um 41 prósent, Sú hækkun var vegna launa og launa­tengdra gjalda, sem hækkuðu um 12,7 milljónir króna á síðasta ári, eða um 63 prósent, og annars rekstrar­kostnaðar sem jókst um 7,5 milljónir króna, eða 26 prósent.

Þeir liðir sem flokkast sem annar kostnaður flokksins drógust í flestum tilfellum saman. Einn hækkaði hins vegar verulega en auglýsinga­kaup fóru úr 1,9 milljónum króna árið 2019 í 15,8 milljónir króna í fyrra. Þau rúmlega áttfölduðust því milli ára.

Hagnaður Viðreisnar í fyrra var 3,5 milljónir króna og dróst mikið saman frá fyrra ári þegar hann var 23,8 milljónir króna. Árið 2018 var hagnaður Viðreisnar 2,3 milljónir króna og því hagnaðist flokkurinn samtals um 29,6 milljónir króna á fyrstu þremur árum kjör­tímabilsins.

Eignir Viðreisnar eru nær einvörðungu reiðufé. Flokkurinn átti 25,1 milljón króna í handbært fé og 592 þúsund krónur í útistandandi skammtíma­kröfum. Flokkurinn er að sama skapi skuld­léttur, en skuldir hans voru 4,6 milljónir króna um síðustu áramót. Inni í þeirri tölu voru viðskipta­skuldir, ógreiddur kreditkorta­reikningur og óuppgerð stað­greiðsla og lífeyris­sjóðs­greiðslur.

Fram­lög til flokka úr rík­is­sjóði hækkuð gríð­ar­lega

Framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjör­tímabils. Til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórn­mála­flokkar sem fengu nægj­an­legt fylgi í síð­ustu þing­kosn­ingum til að fá úthlutað fjár­munum úr rík­is­sjóði fá sam­tals 728,2 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.

Um er að ræða þá átta flokka sem eiga full­trúa á þingi auk Sós­í­alista­flokks Íslands sem hlaut nægj­an­legt fylgi í síð­ustu kosn­ingum til að hljóta fram­lag.

Það er sama upp­hæð og flokk­arnir fengu sam­tals í fyrra og sama upp­hæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætl­anir stjórn­valda ráð fyrir því að hún hald­ist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórn­mála­flokkar lands­ins alls hafa fengið 3.641 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á fimm ára tíma­bil­i.

Til við­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­manna þing­flokka greiddur af Alþingi.

Árs­reikn­ingar nú birtir í heild

Full­­­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­­­­menn stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka, lögðu svo sam­eig­in­­­­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­­­­­­­mál stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka og fram­­­­bjóð­enda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þing­­­­lok þess árs.

Á meðal breyt­inga sem það stuð­l­aði að var að leyfa stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­l­ing­­­­um. Hámarks­­­­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krón­­­­ur.

Auk þess var sú fjár­­­­hæð sem ein­stak­l­ingur þarf að gefa til að vera nafn­­­­greindur í árs­­­­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­­­­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krón­­­­ur.

Þá var ákveðið að láta stjórn­­­mála­­flokk­anna skila árs­­reikn­ingum sínum til rík­­is­end­­ur­­skoð­anda fyrir 1. nóv­­em­ber ár hvert í stað 1. októ­ber líkt og áður var. Sú grund­vall­­ar­breyt­ing fylgdi með að Rík­­is­end­­ur­­skoðun hætti að birta tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar úr reikn­ingum flokk­anna, svo­­kall­aðan útdrátt, og átti þess í stað að birta árs­­reikn­ing­anna í heild sinni árit­aða af end­­ur­­skoð­end­­um.

Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokk­arnir þó ekki að sæta því að árs­reikn­ingar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri fram­kvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.

Sem stendur hefur Ríkis­endurskoðun ekki birt ársreikninga þriggja flokka; Sjálfstæðis­flokkur, Vinstri græn og Píratar vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár