Brynjar þrætti fyrir að hafa verið lögmaður Bóhems en sendi bréf sem slíkur

Brynjar Níelsson, formaður stjón­skip­unar- og eftirlits­nefndar, sagði upplýsingum um að hann hefði starfað fyrir nektar­dansstaðinn Bóhem hafa verið „plantaðar í gagna­grunn“ Google og þær væru rangar. Brynjar starfaði hins vegar fyrir skemmti­staðinn eins og fram kemur í bréfi sem hann sendi fyrir hönd staðarins.

Brynjar Níelsson
Brynjar Níelsson Þvertók fyrir að hafa starfað fyrir nekt­ar­dans­stað­inn Bóhem en und­ir­ritun hans á bréf til borg­ar­ráðs Reykja­víkur bendir til ann­ars. Mynd: Pressphotos

Brynjar Níelsson, alþingis­maður og formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar, vildi ekki kannast við að hafa starfað fyrir nektar­dansstaðinn Bóhem í færslu á Facebook vegna umræðu um bakgrunn hans í tengslum við meðferð nefndarinnar á máli manns sem fékk uppreist æru og hafði verið lögmaður Bóhem. Brynjar sagði að upplýsingum um að hann hefði verið lögmaður Bóhem hefði verið „plantað í gagna­grunn“ Google. Brynjar starfaði hins vegar fyrir nektar­staðinn eins og fram kemur í bréfi sem hann sendi fyrir hönd staðarins til Reykja­víkurborgar árið 2003.

Bréfið til borg­ar­ráðsBrynar sendi borg­ar­ráði bréf fyrir hönd Bóhems þar sem hann fór fram á að borg­ar­ráð end­ur­skoð­aði reglu­verk sitt við veit­ingu áfeng­is­leyfa.

Bergur Þór Ingólfsson, faðir eins af fórnar­lömbum Róbert Downey, vakti fyrst athygli á því að Brynjar og Robert hefðu báðir sinnt lögmann­störfum fyrir staðinn. Þá velti hann því fyrir sér hvort Brynjar væri hafinn yfir grun um að vera hæfur til að sinna störfum í stjónskipunar- og eftirlits­nefnd, en þar er nú farið yfir ferlið sem veitti Roberti uppreist æru.

Brynjar brást ókvæða við umfjöllun fjölmiðla um málið. „Því er unnið hörðum höndum að sá tortryggni í minn garð og Sjálfstæðis­flokksins og látið að því liggja að við séum að verja Róbert Downey, sem mun vera einn af þeim fjölmörgu sem hafa fengið uppreist æru síðustu áratugi,“ sagði Brynjar í færslunni.

„Þótt bent hafi verið á að þarna hafi röngum upplýsingum verið plantað í gagna­grunn herra Google hefur enginn netsóðinn iðrast og fær því ekki uppreist æru hja mér.“

Þá segir Brynjar að þær upplýsingar um að hann hafi sinnt störfum fyrir Bóhem hafi verið „plantað í gagna­grunn herra Google“ og þær séu rangar. Brynjar var hins vegar titlaður lögmaður nektar­staðarins Bóhem í Morgun­blaðinu í nóvember 2007 og svo í Frétta­blaðinu á sama tíma, þar sem hann fordæmdi ákvörðun borgar­ráðs að leggjast gegn starfsemi nektar­dansstaða í Reykjavík.

Brynjar kallar það fólk sem vakið hefur athygli á málinu netsóða. „Nú herra Google upplýsti sóðana um að Róbert þessi hefði verið lögmaður eiganda Bóhem 2001 og að ódámurinn Brynjar Nielsson hefði verið lögmaður þessa félags í máli á árinu 2007. Glöddust tröllin nú mjög yfir þessum upplýsingum, sem sýndu ótvírætt að ég væri spilltur og fullkomlega vanhæfur sem formaður nefndarinnar, og auðvitað varð að deila þessari vitneskju um alla netheima. Þótt bent hafi verið á að þarna hafi röngum upplýsingum verið plantað í gagna­grunn herra Google hefur enginn netsóðinn iðrast og fær því ekki uppreist æru hja mér. Svo er mér einnig hulið hvernig það gæti valdið vanhæfi, hvað þá að það væri merki um spillingu, þótt allt hefði verið rétt hjá herra Google,“ segir Brynjar.

Eins og fram kemur í bréfinu starfaði Brynjar fyrir nektar­dansstaðinn Bóhem árið 2003. Í bréfinu sem Brynjar undir­ritar er óskað eftir því að borgarráð breyti máls­meðferðar­reglum vegna vínveitinga­leyfa þannig að Bóhem verði heimilað að hafa staðinn opinn til 05:30 alla daga. Borgarráð féllst ekki á að breyta reglunum.

Gerir lítið úr málinu

Þá sagði Bergur, í færslu sinni á Facebook, Brynjar hafa að undan­förnu margoft gert lítið úr glæpum Róberts Árna Hreiðars­sonar í fjöl­miðlum og um leið smættað afleiðingar þeirra. Þannig sagði Brynjar í viðtali við mbl.is að hægt væri að brjóta með alvarlegri hætti gegn börnum en Robert Downey gerði gagnvart fórnar­lömbum sínum. Robert var árið 2008 dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðis­brot gegn fjórum unglings­stúlkum og hlaut uppreist æru í október í fyrra. „Það eru til al­var­legri brot held­ur en þessi gagn­vart börn­um,“ sagði Brynjar. Þá staðhæfði hann við mbl.is að margir barna­níðingar hefðu fengið uppreist æru.

„Eng­inn sagði neitt þá. Þetta komst bara í umræðuna því hann ætlaði að sækja um starfs­rétt­indi sín aft­ur. Menn hafa fengið upp­reist æru sem hafa myrt ann­an mann,“ bætti Brynjar við.

Þá hefur Brynjar lýst því yfir að honum þyki eðlilegt að Róbert fái að starfa við það sem hann er menntaður til. „Hann er búinn að afplána og hann fær í þessu tilviki meiri refsingu því hann missir starfs­réttindin.  Hann hefur ekki brotið af sér. Hann fór í sérstaka meðferð í betrun sinni og þá finnst mér ósköp eðlilegt að menn eigi möguleika á því að snúa aftur og starfa við það sem þeir eru menntaðir til,“ sagði Brynjar í samtali við Vísi.

Bróðir Brynjar, Gústaf Adolf Níelsson sagn­fræðingur, hefur að sama skapi tjáð sig um málið. Í færslu á Facebook sagði Gústaf að stúlkurnar hafi „spilað á veikleika Róberts til að hafa af honum peninga“ og „gert hann sér að féþúfu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár