Samkaup kaupa Fjarðarkaup í Hafnarfirði

Fjarð­ar­kaup, sem hafa verið rekin sem sjálf­stæð mat­vöru­verslun í Hafn­ar­firði um ára­tuga skeið, eru að kom­ast í eigu Samkaupa. Fast­eigna­fé­lagið Kaldalón kaupir jafn­framt hús­næði versl­un­ar­innar við Hóls­hraun fyrir rúma tvo millj­arða króna og hyggst verja 350 millj­ónum til end­ur­bóta. Kaupin eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Fjarðarkaup
Fjarð­ar­kaup Samkaup hafa samið um kaup á Fjarð­ar­kaupum í Hafn­ar­firði. Kaupin eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Samkaup hafa samið um kaup á Fjarð­ar­kaupum í Hafn­ar­firði, sem hafa verið rekin sem sjálf­stæð mat­vöru­verslun um ára­tuga skeið. Kaupin marka því tíma­mót í sögu versl­un­ar­innar, en þau eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Kaup­verðið liggur ekki fyrir.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu fast­eigna­fé­lags­ins Kalda­lóns til Kaup­hall­ar­innar í morgun. Þar er greint frá því að Kaldalón hafi und­ir­ritað samn­ing um kaup á öllu hlutafé í félag­inu 1717 ehf., sem á fast­eign­ina að Hóls­hrauni 1 í Hafn­ar­firði, þar sem Fjarð­ar­kaup hafa verið til húsa.

Samhliða fast­eigna­við­skipt­unum hefur 1717 ehf. gert lang­tíma­leigu­samn­ing við Samkaup, sem eru dótt­ur­fé­lag Dranga hf., um alla fast­eign­ina. Samkaup munu taka við rekstri í hús­næð­inu sam­hliða kaupum sínum á Fjarð­ar­kaupum.

Heild­ar­virði fast­eigna­fé­lags­ins 1717 ehf. í við­skipt­unum er tæpir 2,4 millj­arðar króna. Að teknu til­liti til frá­dráttar vegna tekju­skatts­skuld­bind­ingar er virði fast­eign­ar­innar sjálfrar metið á um 2,16 millj­arða króna.

Kaldalón hefur skuld­bundið sig til að …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár