Eze í áfalli: „Ég er eiginlega bara hvergi“

Útlend­inga­stofnun hefur synjað beiðni Eze Okafor um dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum. Stofn­unin telur hann ekki í sér­stakri hættu í heima­land­inu Nígeríu þrátt fyrir að þar hafi hann verið ofsóttur af með­limum hryðju­verka­sam­tak­anna Boko Haram. Prestur inn­flytj­enda gagn­rýnir stofn­un­ina harð­lega fyrir vinnu­brögðin.

„Ég er eig­in­lega bara hvergi,“ segir Eze Okafor, hæl­is­leit­andi frá Nígeríu, sem er í miklu áfalli eftir að Útlend­inga­stofnun synj­aði honum um dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum jafn­vel þótt hann eigi unn­ustu og nána vini á Íslandi og að lífi hans sé ógnað verði hann sendur aftur til heima­lands­ins. „Ég veit ekki hvað ég á að gera á þessum tíma­punkti, ég er svo ráð­villtur, ég veit ekki hvert ég á að fara,“ segir Eze sem hefur látið lítið fyrir sér fara í Svíþjóð alveg síðan honum var vísað frá Íslandi í maí í fyrra.

Sjá einnig: Ofsóttur af Boko Haram en Útlend­inga­stofnun telur öruggt að senda hann til Nígeríu

Líkt og Stundin greindi frá á mið­viku­dag hefur Útlend­inga­stofnun synjað umsókn Eze um dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum en stofn­unin telur að honum sé ekki hætta búin í heima­land­inu. Eze flúði Nígeríu árið 2011 eftir að liðs­menn Boko Haram hryðju­verka­sam­tak­anna höfðu veitt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár