Bíða eftir skipun nefndar meðan ráðherra herðir útlendingastefnuna

„Þetta kemur mér á óvart,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, um nýja reglugerð Sigríðar Andersen sem þrengir að réttindum útlendinga.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, segist andvígur nýrri reglugerð Sigríðar Andersen dómsmála­ráðherra um málefni útlendinga og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður sama flokks, segir að reglu­gerðin komi sér mjög á óvart. Taka verði gagnrýni Rauða krossins alvarlega og tryggja að framkvæmd útlendinga­laga sé í anda þeirra mannúðar­sjónarmiða sem lágu að baki breytingum á útlendinga­lögum sem gerðar voru síðasta haust.

Andrés og Kolbeinn horfa til þess að málið verði tekið upp í þver­pólitískri nefnd um endur­skoðun laga og laga­framkvæmdar um útlendingamál sem brátt verður skipuð í samræmi við stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnarinnar. Nefndin hefur ekki komið saman, enda hafa ekki allir flokkar stjórnar­andstöðunnar tilnefnt fulltrúa í hana.

Stundin greindi frá því í gær að dómsmála­ráðherra hefði nýlega sett reglugerð sem felur í sér að hert er á skilyrðum þess að stjórn­völd geti tekið umsóknir hælis­leitenda til efnis­meðferðar vegna heilsufars­ástæðna.

Í reglu­gerðinni er því meðal annars slegið föstu að heilsufar hælis­leitenda skuli hafa „takmarkað vægi“ nema ákveðin skilyrði séu uppfyllt, til dæmis að þeir glími við „mikil og alvarleg veikindi, svo sem skyndi­legan og lífs­hættulegan sjúk­dóm og meðferð við honum [sé] aðgengileg hér á landi en ekki í viðtöku­ríki“. 

Rauði krossinn hefur gagnrýnt reglu­gerðina harðlega og bent á að hertu skilyrðin ná bæði til full­orðinna og barna. „Þannig virðist vera gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúkdómi sem ekki nær þeim alvarleika­þröskuldi að teljast skyndi­legur og lífs­hættulegur skuli endursend til viðtöku­ríkis, jafnvel þó að foreldrar barnsins muni þurfa að greiða fyrir meðferð við sjúk­dómnum í viðtöku­ríki, án þess að frekara mat fari fram á einstaklings­bundnum aðstæðum barnsins,“ segir í umsögn Rauða krossins um reglugerð Sigríðar.

Helga Vala Helga­dóttir, þingkona Samfylkingarinnar og formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar, gerði málið að umtals­efni í umræðum á Alþingi í morgun. Hún benti á að þegar útlendinga­lögum var breytt á síðasta kjör­tímabili hefði sá vilji löggjafans verið sérstak­lega áréttaður að ávallt skyldi taka hælis­umsóknir til efnis­meðferðar þegar umsækjandi væri í sérstak­lega viðkvæmri stöðu. 

„Ég tel að það þurfi einstaka hæfileika til að sjá ekki hvílík mann­vonska felst í slíkum reglum“

„Ég held að engan hafi grunað þegar lögunum var breytt að ráðherra færi þá bara í það, ein og eftir sínu marg­umrædda brjóst­viti, að breyta reglugerð til að skerða réttindi barna og annarra sem eru í sérstak­lega viðkvæmri stöðu þannig að þetta undan­tekningar­ákvæði gilti eingöngu fyrir þau börn og aðra sem eru nánast við dauðans dyr og aðra ekki,“ sagði Helga Vala. „Með hinni nýju reglugerð gerir ráðherrann enn strangari kröfur til stjórn­valda um að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að taka ekki til efnis­meðferðar umsóknir um alþjóð­lega vernd. Ég tel að það þurfi einstaka hæfileika til að sjá ekki hvílík mann­vonska felst í slíkum reglum.“

Tekur gagnrýni Rauða krossins alvarlega

Stundin innti Kolbein Óttarsson Proppé og  Andrés Inga Jónsson eftir afstöðu þeirra til nýju reglu­gerðarinnar. Ekki náðist í Bjarkeyju Olsen Gunnars­dóttur, þing­flokks­formann Vinstri grænna, við vinnslu fréttarinnar en hún er erlendis. Áður hefur Bjarkey talað fyrir því að hert útlendinga­stefna Sigríðar Andersen verði tekin til umræðu á vettvangi þver­pólitísku þingmanna­nefndarinnar sem brátt verður skipuð.

Andrés er einn af tals­mönnum barna á Alþingi og Kolbeinn hefur talað fyrir mannúð í hælis­leitenda­málum og meðal annars gagnrýnt sjónarmið og orðræðu Sjálfstæðis­manna í málefnum útlendinga. 

„Þetta kemur mér á óvart og ég tel mjög mikilvægt að þetta verði tekið fyrir á hinu pólitíska sviði sem fyrst og rætt þar. Það er mjög mikilvægt að framkvæmd laganna sé í anda þeirrar mannúðar sem lagt var upp með og ég tek ábendingar Rauða krossins mjög alvarlega í þessum efnum og hef horft til hans þegar kemur að þessum mála­flokki,“ segir Kolbeinn Proppé í samtali við Stundina.

„Það er miður að enn hafi ekki verið skipuð þver­pólitísk nefnd um endur­skoðun útlendinga­laga. Mér skilst að tveir flokkar eigi eftir að tilnefna nefndina, en sú nefnd á ekki aðeins að fara í endur­skoðun á útlendinga­lögunum heldur einnig að fylgjast með framkvæmd laganna. Svo þetta mál, sem lýtur að framkvæmd laganna, er eitthvað sem þarna yrði tekið upp. Ég ítreka að mér finnst mjög brýnt að það verði rætt á hinu pólitíska sviði.“  

– Nú er þetta ekki í fyrsta sinn sem Sigríður Andersen notar sín stjórn­tæki sem ráðherra útlendinga­mála til að þrengja að réttindum hælis­leitenda. Hún gerði þetta líka í fyrra, setti reglugerð sem fór að fréttast núna í janúar að hefðu haft sérstakar afleiðingar fyrir hælis­leitendur, í stjórnartíð ríkis­stjórnar Katrínar Jakobs­dóttur. Hefurðu beitt þér eitthvað fyrir því að þessi reglugerð verði felld úr gildi eða henni breytt, eða hugsarðu þetta alltsaman út frá umræddri nefnd?

„Já, það er kveðið á um það í stjórnar­sáttmálanum að þessi nefnd verði skipuð, ekki aðeins til að ráðast í endur­skoðun útlendinga­laga heldur einnig til að fjalla um framkvæmd laganna.“ 

– Er þá Sigríði Andersen ekki treystandi, sem ráðherra málefna­sviðsins, til að ákveða hvernig laga­framkvæmdinni er háttað með reglu­gerðum og slíku?

„Þetta er einfald­lega fyrir­komulag sem stjórnar­flokkarnir komu sér saman um. Að málefni hælis­leitenda væru svo mikilvæg að réttast væri að taka þau fyrir með þessum hætti, í þver­pólitískri nefnd. Ég vona að þeir flokkar sem eiga eftir að tilnefna í nefndina geri það sem fyrst, svo nefndin geti tekið til starfa og við getum farið að ræða þetta á hinum pólitíska vettvangi.“ 

„Ég vona að þeir flokkar sem eiga eftir
að tilnefna í nefndina geri það sem fyrst“

– En er það ekki áhyggju­efni að nú, eftir alla þessa mánuði, og væntanlega einhverja daga eða vikur í viðbót, séu hælis­leitendur upp á náð og miskunn sitjandi dómsmála­ráðherra komnir þegar kemur að þessari laga­framkvæmd?

„Ég ítreka að ég tel brýnt að í þessum málum sem öðrum sé mannúð höfð að leiðar­ljósi, og það er andi þeirra laga sem um mála­flokkinn fjalla. Því fyrr sem við getum farið að ræða þetta í þessum þver­pólitíska hópi því betra.“ 

Vissi ekki af reglugerðinni þegar hann studdi Sigríði

– Vissirðu af þessari nýju reglugerð þegar greidd voru atkvæði um stöðu Sigríðar Andersen sem ráðherra?

„Nei.“ 

– En hefði það breytt afstöðu þinni ef þú hefðir vitað það?

„Ég ætla ekki að vera í þáskildagatíð. Eins og ég fór skilmerki­lega yfir í atkvæða­greiðslu þá er ég enn jafn ósáttur með þær embættis­færslur sem lágu undir vantrausts­tillögunni en ég styð ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur.“

– En í ljósi atvika undan­farna mánuði, þar sem fyrri reglugerð Sigríðar Andersen er komin til framkvæmda og farin að bitna á hælis­leitendum, og nú er komin ný hert reglugerð, voru það ekki mistök hjá VG, sem talaði fyrir mannúð í útlendinga­málum fyrir kosningar, að treysta Sigríði Andersen fyrir þessu málefna­sviði þegar ríkis­stjórnin var mynduð og forseta­úrskurður samþykktur o.s.frv.?

„Eins og ég segi, eitt af því sem náðist saman um í stjórnar­sáttmálanum, sem ég tel að við eigum að vera ánægð með og nýta, er að um þessi mál verði skipuð þver­pólitísk nefnd og því fyrr sem hún  fer að fjalla um þetta, því betra.“ 

Segir nefndina besta farveginn til að leysa úr málinu

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, segir að nýja reglu­gerðin sé varhuga­verð en því miður í takt við það hvernig hægt og bítandi hafi verið þrengt að réttindum hælis­leitenda. Hann segist andvígur setningu reglu­gerðarinnar og ætla að beita sér fyrir réttar­bótum til handa hælis­leitendum. Aðspurður hvort óánægju gæti innan Vinstri grænna vegna málsins segist Andrés ekki geta tjáð sig um það.

„Þetta er sá mála­flokkur þar sem stefnur Vinstri grænna og Sjálfstæðis­flokks eru mjög fjarri hvor annarri, það eru sennilega fáir mála­flokkar þar sem jafnt langt er á milli. Ég mun ekki draga af mér í þessum mála­flokki þó við séum í stjórnar­samstarfi með Sjálfstæðis­flokknum, því fer fjarri. Það er talað um það í stjórnar­sáttmála að skipa eigi þingmanna­nefnd til að fara yfir framkvæmd laganna og endur­skoða eftir þörfum. Ég myndi líta á það sem besta farveginn til að ná fram varanlegum úrbótum á reglu­verkinu. Það hlýtur að fara að bresta á að sú nefnd verði skipuð.“

– En liggur þá ábyrgðin að þínu mati ekki hjá dómsmála­ráðherra sem slíkum, heldur kannski frekar í stefnu Sjálfstæðis­flokksins í heild sinni í mála­flokknum?

„Mögulega. Þetta birtist undir lok þings í haust, þegar verið var að afgreiða laga­breytingu sem snerist um akkúrat þetta. Hvernig ætti að líta til sérstakra aðstæðna fólks þegar verið væri að meta og afgreiða hælis­umsóknir. Þá greiddi Sjálfstæðis­flokkurinn atkvæði gegn þeirri breytingu. Þessar embættis­færslur Sigríðar eru því bara úr sömu átt og við þekkjum frá Sjálfstæðis­flokknum.“

Fyrri reglugerðin aldrei rædd í allsherjar- og menntamálanefnd

– Á síðasta ári, 30. ágúst, setti dómsmála­ráðherra reglugerð sem að sviptir hælis­leitendur réttinum til fram­færslu ef umsókn þeirra um hæli hér á landi er synjað. Hefur þú beitt þér fyrir því að sú reglugerð verði endur­skoðuð?

„Það er alveg spurning hvort allsherjar- og menntamála­nefnd þurfi ekki að skoða þessar reglu­gerðir báðar. Sú sem þú nefnir hér að framan hefur ekki verið tekin upp í nefndinni. Hún féll dálítið í skuggann af því að þáverandi ríkis­stjórn féll. Þannig að þessi mál hafa því miður ekki verið tekin upp af neinu viti í þinginu.“

– Vissi þing­flokkur Vinstri grænna af því að til stæði að setja þessa reglugerð sama dag og umræða og atkvæða­greiðsla um vantraust á hendur Sigríði Andersen fór fram? Vissir þú af því?

„Hún var í opnu kynningar­ferli tveimur vikum fyrr og ég vissi af henni þá. Ég sá að í henni fælust breytingar í slæma átt. En ég vissi ekki að það ætti að setja hana þennan dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár