Trond Giske stígur til hliðar - Misnotaði aðstöðu sína gegn konum

Vara­formanni norska Verkamanna­flokksins hefur verið gert að stíga til hliðar eftir að ásakanir um kynferðis­lega áreitni komu fram.

Trond Giske
Trond Giske Mynd: EPA

Trond Giske, vara­formaður norska Verkamanna­flokksins, hefur sagt af sér vegna ásakana um kynferðis­lega áreitni gegn konum.

Mikill þrýstingur hefur verið á hann að segja af sér frá því málið komst upp í desember síðastliðnum. Nokkrar konur stigu fram og greindu frá áreitinu en ekki liggur fyrir hversu margar þær eru eða hvers eðlis brotin eru.

Jonas Gahr Stoere, leiðtogi Verkamanna­flokksins, segir í yfir­lýsingu vegna málsins að vegna krefjandi aðstæðna flokksins og eðli málsins samkvæmt þá hafi hann og Giske tekið þá ákvörðun í sameiningu að hann myndi stíga til hliðar sem vara­formaður flokksins um óákveðinn tíma. Til stendur hjá Verkamanna­flokknum að funda vegna málsins í dag.

Giske hefur verið í veikinda­leyfi síðan málið kom upp fyrir jól.

Baðst afsökunar

Giske vísaði full­yrðingum kvennanna á bug fyrst um sinn en baðst þó afsökunar á hegðun sinni síðastliðinn fimmtudag. „Ég held að ég þurfi að viðurkenna það að ég hafi ekki verið nægilega tillits­samur gagnvart konum. Það á við þegar um aðstöðu- eða aldursmun er að ræða eða í félags­legum aðstæðum þar sem áfengi er við hönd,“ sagði hann í sjónvarps­þætti á stöðinni NRK í Noregi.

Í viðtalinu sagði hann hegðunina óviðeigandi eða óþægilega. Hann sagði að hann yrði að taka ábyrgð á henni og að þetta væri engum nema honum sjálfum að kenna. Hann væri í miklu uppnámi vegna málsins. Hann sagðist jafnframt ekki muna eftir þessum sérstöku tilfellum en þó reka minni til þeirra aðstæðna sem lýst er.

Sinnuleysi gagnrýnt

Nokkur gagnrýni hefur verið á forystu flokksins vegna málsins fyrir að aðhafast lítið en Line Oma var fyrsti meðlimur flokksins til að krefjast þess að Giske myndi segja af sér. Hún gagnrýndi þögnina í flokknum og sagðist vera orðin þreytt á tali um skrifræði, valda­brölti og klíka innan flokksins.

Henni finnst það skýrt að ekki væri hægt að hafa mann í forystu flokksins sem hagar sér með þessum hætti. Ekki væri hægt að látast ekki sjá fílinn í herberginu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár