Formenn allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins mæla fyrir breytingum á útlendingalöggjöf

Frum­varpið skiptir sköpum fyrir barna­fjölskyldur sem sótt hafa um hæli á Íslandi.

Formenn allra stjórn­málaflokka á Alþingi nema Sjálfstæðis­flokksins eru flutnings­menn frumvarps til laga um breytingar á útlendinga­lögum sem lagt var fram í dag. 

Frum­varpið felur í sér réttar­bætur fyrir barna­fjölskyldur sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd á Íslandi og gæti skipt sköpum fyrir afdrif stúlknanna Haniye og Mary og fjöl­skyldna þeirra sem talsvert hafa verið til umfjöllunar í fjöl­miðlum, en jafnframt fjöl­skyldunnar frá Ghana sem fjallað var um í gær. 

Breytingarnar, sem lagðar eru til, taka til barna sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd hérlendis fyrir gildis­töku laganna og ekki yfirgefið landið. 

Samkvæmt núgildandi útlendinga­lögum ber stjórn­völdum að taka umsókn um alþjóð­lega vernd til efnis­meðferðar ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóð­lega vernd barst fyrst íslenskum stjórn­völdum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs. Í hinu nýframlagða frumvarpi er lagt til að þessi frestur verði styttur úr tólf mánuðum í níu. „Í því felst að hafi meira en níu mánuðir liðið frá því að umsókn barns um alþjóð­lega vernd barst fyrst íslenskum stjórn­völdum skuli almennt taka hana til efnislegrar meðferðar. Jafnframt væri þá almennt eðlilegt að taka til efnislegrar meðferðar umsókn foreldra sem fara með forsjá barnsins, og eftir atvikum systkina, á grund­velli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laganna,“ segir í greinar­gerð. 

Þá er lagt til að frestur í 1. málsl. 2. mgr. 74. gr. laganna verði styttur úr átján mánuðum í fimmtán. „Í því felst að heimilt verður að veita barni sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd og ekki fengið niður­stöðu í máli sínu á stjórnsýslu­stigi innan fimmtán mánaða frá því að það sótti fyrst um alþjóð­lega vernd hér á landi dvalar­leyfi á grund­velli mannúðar­sjónarmiða, að uppfylltum öðrum skilyrðum. Jafnframt væri þá almennt eðlilegt að veita foreldrum sem fara með forsjá barnsins, og eftir atvikum systkinum, dvalar­leyfi á grund­velli 1. mgr. 74. gr. laganna til að tryggja einingu fjöl­skyldunnar, að uppfylltum öðrum skilyrðum.“

Í greinar­gerð frum­varpsins er sérstak­lega áréttaður sá vilji löggjafans að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóð­lega vernd ef umsækjandi er í sérstak­lega viðkvæmri stöðu. 

Lagt er til að breytingarnar taki að sinni aðeins til umsókna sem borist hafa fyrir gildis­töku laganna. „Segja má að með því móti gefist níu mánaða svigrúm frá gildis­töku laganna til að ákveða æskilegt framhald enda væri það fyrst níu mánuðum eftir gildis­töku sem breytingar af þessu tagi gætu haft bein áhrif á umsóknir sem berast eftir gildis­töku. Að mati flutnings­manna er eðlilegt að veita slíkt svigrúm svo að unnt verði að meta betur áhrif breytinganna og nýtt þing geti tekið afstöðu til þess hvernig æskilegt sé að málinu verði fram haldið,“ segir í greinar­gerðinni.

Flutnings­menn eru þau Katrín Jakobs­dóttir, Birgitta Jóns­dóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Benedikt Jóhannesson, Óttarr Proppé og Logi Einarsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár