Kristrún: Pólitískur leikur hjá Lilju að draga Icesave inn í umræðu um Íslandsbankasöluna

Formaður Samfylk­ing­ar­innar spurði menningar- og viðskipta­ráðherra hvort allt hjá ríkis­stjórninni í banka­sölumálinu snerist um ráðherra­stóla og pólitíska leiki. Í svari ráðherra sagði að það hefði ekki verið pólitískur leikur að segja nei við Icesave.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Eyþór Árnason

Kristrún Frosta­dóttir, formaður Samfylkingarinnar, spurði Lilju D. Alfreðs­dóttur, menningar- og viðskipta­ráðherra, í óundirbúnum fyrir­spurnum í dag hvort það væru engin prinsipp innan ríkis­stjórnarinnar þegar kæmi að afstöðu til niður­stöðu skýrslu Ríkis­endur­skoðunar um sölu­ferlið á Íslands­banka. Hún sagði að skýrslan væri sláandi. „„Hún er einn stór áfellis­dómur yfir verklagi Banka­sýslunnar og verklagi hæstvirts fjármála­ráðherra.“

Það sem hafi valdið Kristrúnu mestum vonbrigðum sé sá pólitíski leikur sem stjórnar­liðar séu að spila eftir að niður­staða Ríkis­endur­skoðunar liggi fyrir. „Þetta er allt einhver pólitískur spuna­leikur fyrir þeim. Þau eru sigri hrósandi yfir því að Ríkis­endur­skoðandi noti ekki orðið lögbrot í skýrslunni, þótt það hafi aldrei verið hlutverk Ríkis­endur­skoðanda að leika dómara og kveða á um sekt eða sýknu.“

Hún óskaði eftir því að umræðan yrði hafin á hærra plan. „Það er einfald­lega allt of mikið í húfi og þjóðin er orðin þreytt á pólitískum leikjum.“ „Fólkið í landinu hugsar „Æ, enn eitt málið, aftur sami maðurinn, ekkert breytist“.

Fjármála- og efnahags­ráðherra hafi tekið risastóra ákvörðun um tug milljarða króna hagsmuni íslenskra skatt­greiðenda „með bundið fyrir augum án þess að afla fullnægjandi gagna og leggja mat á þau. [...] Snýst þetta allt um persónur, og ráðherra­stóla og pólitíska leiki fremur en traust til embætta og stofnana sem hér eru undir?“

Lilja svaraði því til að hún vildi upplýsa Kristrúnu „um það að það er sannarlega ekki pólitískur leikur að koma með 600 milljarða inn í ríkissjóð á sínum tíma í formi stöðugleika­framlaga. Það er ekki pólitískur leikur að setja á fjármagns­höft til að tryggja hagsmuni Íslands. Það er ekki pólitískur leikur að segja nei við Icesave. Það sem við höfum verið að gera á síðustu átta árum er að tryggja hagsmuni Íslands.“

Eitt af því sem hafi gerst hafi í þeirri vegferð, þegar stöðugleika­framlögin komu inn, hafi verið að ríkið eignaðist Íslands­banka. Nú sé búið að selja eignar­hluti í honum fyrir að jafnvirði yfir 100 milljarða króna. „Hvað erum við að gera við þessa fjármuni? Jú, við erum að styðja við heilbrigðis­kerfið, við erum að styðja við mennta­kerfið og menninguna. Þetta er ekki pólitískur leikur [...] Ég fullyrði að ef það hefði ekki verið Framsóknar­flokkur, Sjálfstæðis­flokkur og Vinstri græn, þá hefði þetta aldrei tekist.“

Um hvað erum við eiginlega að tala hérna?

Kristrún veitti andsvar og sagðist ekki sjá betur „en að það sé pólitískur leikur að draga Icesave inn í umræðuna um söluna á Íslands­banka frá því í vor. Um hvað erum við eiginlega að tala hérna? Af hverju getum við ekki rætt um verklagið í þessu ferli? Það er öllu þjóðin að fylgjast hér með hvernig þið bregðist við verklagi í þessu ferli og þið farið að ræða um Icesave í þessu samhengi? Skiptir engu máli hvernig hlutirnir eru gerðir? Það er það sem þjóðin vill vita.“

Hún rifjaði upp að Lilja hafi sagt í viðtali fyrr í vikunni að þeir sem báru ábyrgð á þessari framkvæmd séu ekki að fara að bera ábyrgð á næstu framkvæmd. Um leið hafi hún sagt í fjöl­miðlum í gær að Bjarni Benediktsson hefði þegar axlað ábyrgð á „banka­sölu­klúðrinu með því að óska eftir umræddri skýrslu og viðurkennir þannig að ábyrgðin liggi hjá honum.“

Hún spurði í kjölfarið hvort Lilja treysti Bjarna til að bera ábyrgð á áfram­haldandi sölu á Íslands­banka.

Lilja svaraði því til að um væri að ræða eru stjórnmál. „Fyrir hvað við stöndum í stjórn­málum. Erum við tilbúin að verja íslenska hagsmuni, í raun og veru sama á hverju gengur. Fyrir það stendur til dæmis minn flokkur og hefur gert allan tímann. Staðið í lappirnar gegn því að það sé verið að veikja landið okkar. Í aðdrag­anda hrunsins og í hruninu, voru fjölmargir stjórn­málaflokkar sem voru ekki tilbúnir til þess að gera það. Þeir voru ekki tilbúnir að segja: „Þetta Icesave, þetta er ekki reikningur þjóðarinnar“. Þetta skiptir máli vegna þess að þetta segir fyrir hvað við stöndum.“

Hún sagðist treysta Bjarna til að fara í frekari sölu en vildi ítreka að enn ætti eftir að fá niður­stöðu Fjármála­eftirlitsins á þeim anga sölu­ferlisins sem það rannsakar til að fá heildar­mynd á því hvernig til tókst.

Síðast kosið um Icesave 2011

Ices­a­ve-­reikn­ing­arnir voru net­reikn­ingar sem bank­inn bauð upp á í Hollandi og Bret­landi sem báru mun hærri inn­láns­vexti en aðrir voru að bjóða upp á. Því flykkt­ust við­skipta­vinir til Lands­bank­ans vegna þeirra, enda ávöxtun á fé mun hærri þar en ann­ars­stað­ar.

Þessi mikla aðsókn leiddi til þess að Ices­a­ve-inn­láns­söfn­unin varð að risa­vax­inni alþjóða­deilu þegar ljóst var að hinn gjald­þrota Lands­banki gat ekki greitt inn­stæðu­eig­endum eignir sínar strax eftir banka­hrun. Inn­stæðu­trygg­inga­sjóðir land­anna tveggja greiddu hluta inn­stæð­anna til baka og við það eign­uð­ust þeir kröfu á Lands­bank­ann.

Alls voru gerðir þrír Ices­a­ve-­samn­ingar milli íslenskra stjórn­valda ann­ars vegar og Hol­lend­inga og Breta hins veg­ar um greiðslu þeirrar skuldar. Tveir þeirra fóru í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu eftir að Ólafur Ragnar Gríms­son, þá for­seti Íslands, neit­aði að skrifa undir lög­in. Seinni þjóðar­atkvæða­greiðslan fór fram í apríl 2011, fyrir rúmlega ellefu árum síðan.

Ices­a­ve-­málið fór á end­anum fyrir EFTA dóm­stól­inn þar sem Ísland var sýknað af kröfum Breta og Hol­lend­inga í upp­hafi árs 2013.

Í janúar 2016 fékk slitabú Lands­bank­ans und­an­þágu frá Seðla­banka Íslands­ frá fjár­magns­höft­um til að greiða síðustu greiðsluna Hollands og Bretlands og þar með Icesave-skuldina að fullu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár