Mynd: Íslandsbanki

„Horft til fullyrðinga frá fjárfestunum sjálfum um að þeir teldust hæfir fjárfestar“

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið og Banka­sýslan upp­lýstu ekki nægi­lega vel hvað fólst í settum skil­yrðum um „hæfa fjár­festa“ við söl­una í Íslands­banka. Upp­lýs­ingar um hvort fjár­festar væru hæfir byggðu í ein­hverjum til­fellum á upp­lýs­ingum frá þeim sjálfum.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið og Banka­sýslan upp­lýstu ekki nægi­lega vel hvað fólst í settum skil­yrðum um „hæfa fjár­festa“ við söl­una í Íslands­banka. Upp­lýs­ingar um hvort fjár­festar væru hæfir byggðu í ein­hverjum til­fellum á upp­lýs­ingum frá þeim sjálfum, en eng­inn mið­lægur gagna­grunnur er til um slíka fjár­festa á Íslandi. Mat sölu­ráð­gjafa á hæfi fjár­festa sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Rík­is­end­ur­skoðun telur að upp­lýsa hefði þurft með afdrátt­ar­lausum hætti í minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar frá 20. jan­úar 2022, grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar ,fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna fram­halds á sölu á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka, og í kynn­ingum fyrir þeim þing­nefndum Alþingis sem veittu grein­ar­gerð­inni umsögn, hvað fólst í settum skil­yrðum um hæfa fjár­festa. Það er hver vænt­an­legur kaup­enda­hópur á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka yrði. Það var ekki gert.

Þess í stað var not­ast við óljósu hug­tökin „hæfir fjár­festar“ eða „hæfir fag­fjár­festar“, en bæði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Banka­sýsla rík­is­ins voru sam­mála um að bjóða slíkum einka­fjár­festum aðkomu að söl­unni þrátt fyrir að slíkt sé óvenju­legt. Við mat á þeim var meðal ann­ars horft til full­yrð­inga frá fjár­fest­unum sjálfum um að þeir teld­ust hæfir fjár­festar. Þessi hluti sölu­ferl­is­ins sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands.

Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar varð með því til hætta á að með­limir þing­nefnd­anna tveggja sem fjöll­uðu um málið, og aðrir sem vildu kynna sér áform um sölu­ferlið, stæðu í þeirri trú að þar væri ein­göngu um að ræða fjár­festa sem hafa að aðal­starfi að fjár­festa í fjár­mála­gern­ingum. „Rík­is­end­ur­skoðun vekur í því sam­bandi athygli á að á fundi með sér­fræð­ingi á sviði verð­bréfa­miðl­unar kom fram að þegar áform Banka­sýsl­unnar um sölu til „hæfra fjár­festa“ voru fyrst kynnt í jan­úar 2022 hafi hann sjálfur talið að þar væri ein­göngu um að ræða stofn­ana­fjár­festa. Af opin­berri umræðu og umfjöllun fyrir fjár­laga­nefnd Alþingis að sölu lok­inni má einnig ráða að ólíkur skiln­ingur hafi ríkt um kaup­enda­hóp­inn.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem verður birt opin­ber­lega síðar í dag.

Þrír starfsmenn með enga reynslu af sölufyrirkomulaginu

Þar segir enn fremur að inn­lendir umsjón­ar­að­ilar, sölu­ráð­gjafar og sölu­að­ilar Banka­sýsl­unnar höfðu litla ef nokkra reynslu af sölu­ferli með til­boðs­að­ferð, þar sem eign­ar­hlutur er seldur í lok­uðu útboði til val­inna við­skipta­vina, líkt og valið var að gera með 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka í mars. Slíkt fyr­ir­komu­lag tíðkast víða erlendis á fjár­mála­mörk­uðum en hefur aldrei áður verið við­haft við sölu á rík­is­eign á Íslandi. Rík­is­end­ur­skoðun telur að Banka­sýsla rík­is­ins hafi van­rækt að tryggja að vinna umsjón­ar­að­ila, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila við sölu­ferlið væri sam­stillt og skil­virk.

Rík­is­end­ur­skoðun telur líka að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og stofn­unin hefðu þurft að und­ir­búa betur skipu­lagða upp­lýs­inga­gjöf til þing­nefnda og almenn­ings frá því að til­laga Banka­sýsl­unnar um sölu­með­ferð­ina var lögð fyrir ráð­herra. „Skipu­lögð upp­lýs­inga­gjöf var sér­stak­lega nauð­syn­leg í ljósi þess að til­boðs­fyr­ir­komu­lagi hafði aldrei áður verið beitt sem sölu­að­ferð á eign­ar­hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tæki. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyti mátti vera ljóst að hjá Banka­sýslu rík­is­ins störf­uðu ein­ungis þrír starfs­menn með enga reynslu af sölu rík­is­eigna með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi og tak­markað svig­rúm til almennrar upp­lýs­inga­gjafar. Slíkt hefði getað dregið úr þeim óróa sem skap­að­ist daga og vikur eftir að söl­unni lauk.“

Þeim sem boðið var að vera með

Á fjöl­mörgum stöðum í skýrsl­unni er vísað í þætti í sölu­ferl­inu sem lúta eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands, sem er einnig með banka­söl­una til rann­sóknar. Þegar það er gert er það iðu­lega í kjöl­far fram­settrar gagn­rýni Rík­is­end­ur­skoð­unar á verk­lagi eða ákvörð­unum.

Þetta er til að mynda afar sýni­legt í kafla sem fjallar um val á þeim 207 fjár­festum sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka, en 85 pró­sent þeirra voru á end­anum inn­lendir. Hóps sem skil­greindur var sem „hæfir fjár­festar“.

Leiðin sem var valin til að selja hlut­inn kall­ast, líkt og áður sagði, til­boðs­aðferð. Hún er fram­kvæmd á nokkrum klukku­tímum og ákveðið var að ein­blína á það sem kallað var „hæfir fjár­fest­ar“. Síðar var vísað í að þar sé um að ræða þá sem skil­grein­ast sem fagjár­festar sam­kvæmt lög­um. Til þess þarf að upp­fylla tvö af þremur skil­yrð­um: að hafa átt ákveðið mörg við­skipti á árs­fjórð­ungi, að fjár­­­­­mála­­­gern­ingar þeirra og inn­­i­­­stæður væru sam­an­lagt virði 500 þús­und evra (um 70 milljón króna) eða meira eða að fjár­­­­­festir hafi gegnt eða gegni, í að minnsta eitt ár, stöðu í fjár­­­­­mála­­­geir­­­anum sem krefst þekk­ingar á fyr­ir­hug­uðum við­­­skiptum eða þjón­ust­u.

Rök­semd­ar­færslan fyrir því að fara þessa leið var meðal ann­ars sú að það myndi spara kostn­að og laða að erlenda fjár­festa. Ekki þyrfti að ráð­ast í útboðs­lýs­ingu til að upp­fylla upp­lýs­inga­skil­yrði fyrir almenna fjár­festa, venju­legt fólk. Bara þeir sem hefðu óskil­greindan betri skiln­ingi á því sem þeir væru að kaupa, var boðið að vera með.

Margir fengu ekki boð

Tvær grímur runnu á marga þegar kom í ljós að margir þess­ara aðila voru ekki það sem kalla mætti stofn­ana­fjár­festar sem hefðu burði til að styðja við bank­ann til lengri tíma né voru að kaupa í því magni að nauð­syn­legt væri að velja þá til þátt­töku í lok­uðu útboði umfram almenna fjár­festa. Tor­tryggni vakn­aði strax og til­kynn­ingar um kaup stjórn­enda og stjórn­ar­manna Íslands­banka, eða aðila sem tengd­ust þeim, voru birtar í Kaup­höll til að mæta til­kynn­ing­ar­skyldu um inn­herj­a­við­skipti. Þar voru ein­stak­lingar að kaupa fyrir nokkrar millj­ónir króna. Þrýst­ingur var settur á að fá frek­ari upp­lýs­ingar um hverjir hafi fengið að kaupa og við hvert skref sem var stigið í að opin­bera það vökn­uðu fleiri spurn­ing­ar.

Þeir sem keyptu fyrir minna en 30 millj­ónir króna voru 59 tals­ins. Þeir sem keyptu fyrir minna en 50 millj­ónir voru 79. Alls 167 aðilar keyptu fyrir 300 millj­ónir króna eða minna. Sá sem keypti fyrir lægstu upp­hæð­ina, starfs­maður Íslands­banka, keypti fyrir 1,1 milljón króna. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarn­inn hefur aflað er ljóst að sumir þeirra sem sölu­ráð­gjaf­arnir flokk­uðu sem fag­fjár­festa eru ekki skil­greindir sem slíkir í öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Í því birt­ist það vanda­mál að fyr­ir­tæki í verð­bréfa­miðlun eru með það hlut­verk sam­kvæmt lögum að meta sjálf hvort við­skipta­vinir þeirra upp­fylli skil­yrði þess að telj­ast slík­ur.

Þá liggur fyrir að margir, bæði inn­lendir og erlend­ir, fag­fjár­festar fengu ekki boð um að vera með þrátt fyrir að sumir þeirra hafi leitað beint eftir því. Hefur Kjarn­inn til að mynda undir höndum tölvu­póst­sam­skipti milli aðila og Banka­sýsl­unnar þar sem leitað var eftir því að stór alþjóð­legur fjár­fest­ing­ar­sjóður fengi að taka þátt í útboð­inu 22. mars. Engin svör bár­ust. Umræddur aðili sem sendi póst­inn er ekki á meðal þeirra sölu­ráð­gjafa sem valdir voru til að sjá um útboð­ið.

Horft til fullyrðinga frá fjárfestunum sjálfum

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur fram að mið­lægur gagna­grunnur um hæfa fjár­festa er ekki til hér á landi. Umsjón­ar­að­ilar, sölu­ráð­gjafar og sölu­að­ilar Banka­sýsl­unnar gátu því ekki flett upp öðrum til­boðs­gjöfum en við­skipta­vinum sínum til að sann­reyna full­yrð­ingar þeirra um að þeir væru hæfir fjár­festar. Flokkun fjár­festa í sölu­ferl­inu var því fram­kvæmd hjá hverju fjár­mála­fyr­ir­tæki fyrir sig.

Samkvæmt Íslands­banka, einum af þremur umsjón­ar­að­ilum Banka­sýsl­unnar í sölu­ferl­inu, höfðu fjár­festar sem voru ekki í við­skiptum við bank­ann fram að sölu­deg­inum mögu­leika á að sækja um og eftir atvikum fá flokkun hjá honum sem hæfir fjár­festar á meðan á söl­unni stóð. „Að auki var horft til full­yrð­inga frá fjár­fest­unum sjálfum um að þeir teld­ust hæfir fjár­festar en bank­inn þurfti að meta upp­lýs­ingar þess efnis sjálf­stætt. Rík­is­end­ur­skoðun kann­aði ekki hvernig þessu var háttað hjá öðrum umsjón­ar­að­ilum, sölu­ráð­gjöfum eða sölu­að­ilum við mat þeirra á hæfum fjár­festum. Þessi hluti sölu­ferl­is­ins sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands.“

Innri reglur Íslandsbanka komu ekki í veg fyrir hagsmunaárekstra

Þá segir í skýrsl­unni að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá meðal ann­ars fjár­mála­ráð­gjafa Banka­sýsl­unnar sé óvenju­legt að einka­fjár­festum sem sam­þykktir hafa verið sem fag­fjár­festar sé boðin þátt­taka í sölu með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi. „Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyti og Banka­sýslan voru hins vegar sam­mála um að gera ráð fyrir þátt­töku einka­fjár­festa sem upp­fylltu skil­yrði sem hæfir fjár­festar í sölu­ferl­inu.“

Banka­sýslan hefur í svörum sínum til Rík­is­end­ur­skoð­unar vísað til þess að fjár­mála­fyr­ir­tækjum beri lögum sam­kvæmt að setja sér innri reglur um ráð­staf­anir gegn hags­muna­á­rekstrum. „Stofn­unin mat það svo að reglu­verk fjár­mála­mark­að­ar­ins væri með þeim hætti að slíkar innri reglur umsjón­ar­að­ila, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila kæmu í veg fyrir hags­muna­á­rekstra í söl­unni. Ljóst er að innri reglur Íslands­banka komu ekki í veg fyrir slíkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár