Mynd: Kjarninn

Ríkisendurskoðun segir fjölþætta annmarka hafa verið á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar er sölu­ferlið á Íslands­banka gagn­rýnt harka­lega. Standa hefði betur að söl­unni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn. Ákveðið var að selja á und­ir­verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundnum.

„Ann­markar sölu­ferl­is­ins sem Rík­is­end­ur­skoðun fjallar um í þess­ari úttekt eru fjöl­þættir og lúta bæði að und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd söl­unnar. Ljóst má vera að orð­sporðs­á­hætta við sölu opin­berra eigna var van­metin fyrir sölu­ferlið 22. mars af Banka­sýslu rík­is­ins, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og þing­nefndum sem um málið fjöll­uðu í aðdrag­anda söl­unnar.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem nú liggur fyrir, og Kjarninn hefur undir höndum. Beiðni um skýrsl­una var sett fram af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, 7. apríl í síð­ast­lið­inn og upp­haf­lega átti að skila henni til Alþingis fyrir lok júní. Nú liggur fyrir að skýrslan verður gerð opin­ber á morgun, eftir að Rík­is­end­ur­skoðun hefur kynnt hana fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd á fundi hennar síð­degis á morgun.

Þar segir ein­fald­lega að standa hefði þurft betur að und­ir­bún­ingi og sölu á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka, sem fór fram þann 22. mars 2022. Hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir bank­ann en það sem selt var á, kynn­ingar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Banka­sýslu rík­is­ins á því fyr­ir­komu­lagi sem beitt var við söl­una fyrir Alþingi og almenn­ingi eru gagn­rýndar sem og það að Banka­sýslan sinnti ekki með full­nægj­andi hætti lög­bundnu hlut­verki sínu um að tryggja gagn­sæi í allri ákvarð­ana­töku varð­andi þátt­töku rík­is­ins í fjár­mála­starf­semi og tryggja virka upp­lýs­inga­miðlun til almenn­ings. „Stofn­un­inni tókst ekki að miðla upp­lýs­ingum um fyr­ir­hug­aða sölu með skýrum og árang­urs­ríkum hætti. Sama má segja um upp­lýs­inga­gjöf fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við birt­ingu grein­ar­gerðar ráð­herra vegna fram­halds á sölu á hlutum, rík­is­ins í Íslands­banka.“

Verðinu haldið niðri fyrir erlenda fjárfesta

Í skýrsl­unni segir að íslenska ríkið hafi ein­fald­lega ekki þurft að gefa 2,25 millj­arða króna afslátt af hluta­bréfum í Íslands­banka þegar það seldi 22,5 pró­sent hlut í honum með rúm­lega fjög­urra pró­senta afslætti þann 22. mars síð­ast­lið­inn. Tilboð bár­ust í allan eign­ar­hlut­inn á dagsloka­gengi Íslands­banka þann dag, 122 krónur á hlut, eða á hærra verði.

Samkvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar voru skýr merki um að end­an­legt sölu­verð hafi „fyrst og síð­ast ráð­ist af eft­ir­spurn erlendra fjár­festa“ og að frek­ari hækkun gæti haft nei­kvæð áhrif á þróun hluta­bréfa­verðs bank­ans að sölu lok­inni. „Stofn­unin [Banka­sýsla rík­is­ins] tók þá ákvörðun, að ráði ráð­gjafa sinna, að leggja til við ráð­herra að eign­ar­hlut­ur­inn skyldi seldur á lægra verði að því er virð­ist til að ná fram öðrum mark­miðum en for­gangs­mark­miði sínu og meg­in­reglu laga nr. 155/2012 um hag­kvæmni eða hæsta verð.“

Þeir erlendu sjóðir sem tóku þátt í útboð­inu stöldr­uðu ekki lengi við. Sam­kvæmt hlut­haf­alista Íslands­banka þann 11. apríl höfðu Silver Point, Fiera Capital og KeySquare Partners þegar selt allan þann hlut sem þeim var úthlutað í lok­aða útboð­inu í mar­s. Hluta­bréfa­verð í Íslands­banka hækk­aði dag­anna á eftir útboðið og 5. apríl hafði það hækkað um 6,5 pró­sent.

Lárus Blöndal er stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins og Jón Gunnar Jónsson er forstjóri hennar. Mynd: Skjáskot
Lárus Blöndal er stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins og Jón Gunnar Jónsson er for­stjóri hennar. Mynd: Skjáskot

Þrátt fyrir þessa, og aðra, ann­marka á sölu­ferl­inu dregur Rík­is­end­ur­skoðun ekki í efa að fjár­hags­leg nið­ur­staða sölu­ferlis á hlut rík­is­sjóðs í Íslands­banka hafi á end­anum verið rík­is­sjóði almennt hag­felld, enda fékk rík­is­sjóður 52,65 millj­arða króna fyrir hlut­inn. Það á einnig við um þróun á gengi bréfa í bank­anum á eft­ir­mark­aði í kjöl­far söl­unnar. „Þó er ekki hægt að full­yrða að salan hafi verið rík­is­sjóði eins hag­kvæm og verða mátti.“

Eftirspurn reiknuð með villandi hætti

Athuga­semdir Rík­is­end­ur­skoð­unar eru fjöl­margar og alvar­legar. Í skýrsl­unni segir til að mynda að í til­boðs­bók sem Banka­sýslan sendi Rík­is­end­ur­skoðun í maí 2022 hafi eft­ir­spurn og umfram­eft­ir­spurn verið reiknum með röngum og vill­andi hætti. Þá segir í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar að Rík­is­end­ur­skoðun vilji vekja athygli á „að fram að umsagn­ar­ferli þess­arar úttektar í októ­ber 2022 hafði emb­ættið ekki fengið neinar upp­lýs­ingar frá Banka­sýsl­unni þess efnis að fundur þar sem ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð var tekin hafi staðið yfir lengur en til kl. 20:30. Í umsagn­ar­ferl­inu kom fram hjá Íslands­banka og síðar Banka­sýsl­unni að verð­á­kvörð­unin hafi byggð á upp­færðu skjali kl. 20:36 og að fund­inum hafi lokið kl. 20:38.“ Þegar upp­færða skjalið sem var vistað kl. 20:36 á sölu­deg­inum, og barst Rík­is­end­ur­skoðun frá Íslands­banka 31. októ­ber, er skoðað kom í ljós að „á þeim tíma­punkti var komin fram mun meiri eft­ir­spurn en ætla mátti af fyrri svörum Banka­sýsl­unnar. Það skýrist af því að villur í skrán­ingu til­boða höfðu á umræddum tíma­punkti verið lag­færðar og ný til­boð borist.“

Svör Banka­sýslu rík­is­ins til Rík­is­end­ur­skoð­unar og Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands í maí 2022 stað­festu, að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar, að stofn­unin var ekki með­vituð um hver heild­ar­eft­ir­spurn fjár­festa var þegar ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð var tekin. „Vegna þessa hafði stofn­unin ekki full­nægj­andi upp­lýs­ingar um raun­veru­legt umfang eft­ir­spurnar fjár­festa við þá ákvörðun. Rík­is­end­ur­skoðun telur að ítar­legri grein­ing gagna, t.d. með notkun sér­hann­aðra upp­lýs­inga­kerfa við utan­um­hald til­boða, hefði getað veitt betri yfir­sýn um raun­veru­lega eft­ir­spurn og lagt grunn að nákvæmara mati á verð­myndun.“

Þegar Banka­sýslan sendi til­lögu á fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra klukkan 21:40 þetta kvöld, ein­ungis tíu mín­útum eftir að söl­unni lauk, kom fram að á bil­inu 150 til 200 fjár­festar hefðu skráð sig fyrir meira en 100 millj­örðum króna. „Í ljósi þess að tekið var við til­boðum til klukkan 21:30 bjó stjórn Banka­sýsl­unnar ekki yfir end­an­legum upp­lýs­ingum um eft­ir­spurn fjár­festa þegar hún sam­þykkti umrætt orða­lag. Heild­ar­eft­ir­spurn fjár­festa miðað við gengið 117 kr. á hlut var í reynd 148,4 ma. kr. við lok sölu­ferl­is­ins.“ Það er því nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar að „upp­lýs­ingar til ráð­herra í rök­studda mat­inu voru óná­kvæmar bæði hvað varðar fjölda þeirra fjár­festa sem skráðu sig fyrir hlutum og heild­ar­fjár­hæð til­boða. Ákvörðun ráð­herra byggði því á óná­kvæmum upp­lýs­ingum.“

Reyndu „samkvæmt bestu getu“ að flokka fjárfesta

Þá er óljóst hvernig til­boð voru metin. Í svörum Banka­sýsl­unnar til Rík­is­end­ur­skoð­unar kom fram að hún og ráð­gjafar hennar hefðu reynt „sam­kvæmt bestu getu“ að ákveða hvaða fjár­festa mætti ann­ars vegar flokka sem lang­tíma­fjár­festa og hins vegar sem skamm­tíma­fjár­festa. Fyrir liggur, sam­kvæmt sam­an­tekt Banka­sýsl­unnar, að 34 þeirra 207 fjár­festa sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka höfðu minnkað eign­ar­hlut sinn í bank­an­um þann 11. apríl. Þessi hópur hafði saman losað um 1,1 pró­sentu­stig af heild­ar­hlutafé Íslands­banka. Auk þess birt­ust 60 fjár­festar ekki á hlut­hafa­skrá á þeim tíma.

Banka­sýslan hefði þurft að ákveða áður en sölu­ferlið hófst með hvaða hætti skyldi leggja mat á til­boð ef önnur atriði en hæsta verð áttu að ráða. „Æskilegt hefði verið að slík við­mið væru skráð og að fyrir lægi hvernig ætti að beita þeim. Und­ir­bún­ingur af því tagi var nauð­syn­legur í ljósi fjöl­breyti­leika þeirra við­miða sem stofn­un­inni var falið að taka til­lit til, fjölda til­boðs­gjafa í sölu­ferl­inu og þess skamma tíma sem gafst við úthlutun hluta­bréf­anna eftir að söfnun til­boða lauk. Slíkur und­ir­bún­ingur hefði verið í sam­ræmi við góða stjórn­sýslu­hætti og til þess fall­inn að skapa traust á fram­kvæmd söl­unnar.“

List frekar en vísindi

Í úttekt­ar­vinnu Rík­is­end­ur­skoð­unar kom ítrekað fram af hálfu full­trúa Banka­sýslu rík­is­ins og fjár­mála­ráð­gjafa stofn­un­ar­innar að úrvinnsla sölu­ferlis eftir til­boðs­fyr­ir­komu­lagi væri frekar í ætt við list en vís­indi. „Í því sam­bandi er þá m.a. horft til þess með hvaða hætti selj­andi vinnur úr og metur hinar ýmsu upp­lýs­ingar sem fram koma í sölu­ferl­inu, mögu­lega út frá ólíkum mark­miðum sem þurfi að sætta þannig að við­un­andi heild­ar­nið­ur­stöðu verði náð. Þá geta vænt­ingar um þróun verðs á eft­ir­mark­aði haft áhrif á þetta mat, rétt eins og þær upp­lýs­ingar sem verða til í sölu­ferl­inu um mögu­lega fjár­festa og verð­myndun út frá til­boðum þeirra.“

Til­boðs­fyr­ir­komu­lagið ber rík ein­kenni starfs­hátta sem tíðkast á fjár­mála­mark­aði en sam­rým­ist að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar illa starfs­háttum opin­berrar stjórn­sýslu. „Sölu­ferli eftir til­boðs­fyr­ir­komu­lagi er um margt óform­legt og háð, undir miklu tíma­á­lagi, hug­lægu mati margra aðila sem að söl­unni koma, m.a. aðila sem starfa á mark­aði. Eins og því var beitt 22. mars 2022, gefur til­boðs­fyr­ir­komu­lagið sig ekki vel að end­ur­skoðun og prófun líkt og ákvarð­anir stjórn­valda þurfa jafnan að gera.“

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra og fer með eignarhluti ríkisins í bönkum.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í bönkum.

Rík­is­end­ur­skoðun telur jafn­framt að upp­lýsa hefði þurft með afdrátt­ar­lausum hætti í minn­is­blaði Banka­sýsl­unnar, grein­ar­gerð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og í kynn­ingum fyrir þing­nefndum Alþingis, hvað fólst í settum skil­yrðum um hæfa fjár­festa. Það er hvers eðlis vænt­an­legur kaup­enda­hópur á eign­ar­hlut rík­is­ins yrði. „Með því að not­ast við hug­tökin „hæfir fjár­festar“ eða „hæfir fag­fjár­festar“ varð hætta á að nefnd­ar­menn sem fjöll­uðu um málið, og aðrir sem vildu kynna sér áform um sölu­ferlið, stæðu í þeirri trú að þar væri ein­göngu um að ræða fjár­festa sem hafa að aðal­starfi að fjár­festa í fjár­mála­gern­ingum. Sú upp­lýs­inga­gjöf hefði þó verið þeim tak­mörk­unum háð að þátt­taka lít­illa einka­fjár­festa í sölu­ferl­inu kom Banka­sýsl­unni á óvart.“

Fimm ábendingar

Alls eru gerðar fimm ábend­ingar í skýrsl­unni. Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar þarf öfl­ugan rík­is­að­ila til að fylgja eftir eig­enda­stefnu rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki. Ljóst má vera að Rík­is­end­ur­skoðun telur Banka­sýsl­una, í þeirri mynd sem hún hefur verið, ekki vera þann aðila. „Tryggja verður að sá rík­is­að­ili sem lögum sam­kvæmt fer með sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum búi yfir nauð­syn­legum mannauði til að rækja hlut­verk sitt, sem og grunn­þekk­ingu á þeirri sölu­að­ferð sem ákveðið er að beita hverju sinni. Þá er brýnt að hann gefi þeim sem ráðnir eru til að ann­ast sölu­ferlið skýr fyr­ir­mæli og leið­bein­ingar um fram­kvæmd þess.“

Í öðru lagi þarf að tryggja full­nægj­andi upp­lýs­inga­gjöf þegar rík­is­eign í fjár­mála­fyr­ir­tæki eru seld. Í þriðja langi þar að setja skýr við­mið um mats­kennda þætti þannig að mat á úrlausn sölu­ferla hvíli sem minnst á hug­lægum for­sendum.

Í fjórða lagi þarf að passa upp á að ákvarð­anir séu skjal­festar og gagn­sæi sé tryggt. Í fimmta lagi að fyr­ir­byggja hags­muna­á­rekstra og orð­spors­á­hættu þar sem að við sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tæki geti sú til­högun að við­kom­andi fyr­ir­tæki komi með beinum hætti að söl­unni (sem umsjón­ar­að­ili, sölu­ráð­gjafi eða sölu­að­ili) verið til þess fallin að grafa undan vægi lög­bund­inna sjón­ar­miða um jafn­ræði og hlut­lægni. „Áhætta vegna hags­muna­á­rekstra eykst sem og orð­spors­á­hætta rík­is­ins.“

Ekki tæmandi rannsókn á söluferlinu

Í skýrsl­unni kemur fram að stjórn­sýslu­út­tektin sé ekki tæm­andi rann­sókn á söl­unni á Íslands­banka. Þar er ekki tekin afstaða til þess hvort rétt­mætt hafi verið að selja hlut rík­is­ins í bank­anum á þeim tíma sem það var gert eða til þeirra 207 aðila sem fengu að kaupa.

Þá er ekki tekin afstaða til þess hvort beita hafi átt annarri sölu­að­ferð né lagt mat á hvort vinnu­brögð umsjón­ar­að­ila sölu­ferl­is­ins, sölu­ráð­gjafa og sölu­að­ila, hafi verið í sam­ræmi við lög og gild­andi reglur. Þar með talið er hvort söl­unni hafi verið beint að öðrum en hæfum fjár­festum, en fyrir liggur að alls 59 aðilar fengu að kaupa fyrir minna 30 millj­ónir króna í útboð­inu. „Það síð­ast­nefnda sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands,“ segir í skýrsl­unni en það hefur verið með ákveðna anga söl­unnar til rann­sóknar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er meðal ann­ars verið að skoða hluta­bréfa­við­skipti í aðdrag­anda útboðs­ins á tíma þar sem fjár­festar áttu ekki að vita að sala á hlut í Íslands­banka væri yfir­vof­andi.

Fjöl­margir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn köll­uðu eftir því að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að fara yfir sölu­ferlið, en slík nefnd hefur víð­tæk­ari heim­ildir. Því var hafnað af stjórn­ar­flokk­unum en margir þing­menn þeirra sögðu að þeir myndu styðja skipun rann­sókn­ar­nefndar ef spurn­ingum væri ósvarað eftir að Rík­is­end­ur­skoðun lyki sinni vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár