Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Hans ráðuneyti ber ábyrgð á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hans ráðu­neyti ber ábyrgð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Mynd: Skjáskot

Skýrslan sem átti ekki að taka langan tíma og vinnast hratt væntanleg eftir sjö mánaða meðgöngu

Allt bendir til þess að almenn­ingur fái loks að sjá skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferlið á Íslands­banka eftir helgi.

Skýrsla rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á Íslands­banka í vor er til­búin og verður send á stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í dag eða á morgun, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Áður en skýrslan verður gerð opin­ber almenn­ingi þarf Rík­is­end­ur­skoðun að halda kynn­ingu á henni fyrir nefnd­ina og ef hún berst ekki fyrr en á föstu­dag verður sá fundur ekki fyrr en eftir helgi, á mánu­dag, þar sem nefnd­ar­menn þurfa að und­ir­búa sig fyrir fund­inn.

Beðið var um skýrsl­una snemma í apríl. Upp­runa­lega átti skýrslan, sem fjallar um sölu á eign rík­is­ins þann 22. mars í lok­uðu útboði, að vera til­búin í júní.

Því liggur fyrir að næstum átta mán­uðir verða liðnir frá því að salan átti sér stað þegar skýrslan verður birt og sjö mán­uðir og sjö dagar verða liðnir frá því að beðið var um hana. Skilin hafa frest­ast um fjóran og hálfan mánuð.

Hrósaði Bankasýslunni fyrir góða niðurstöðu

Þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gaf munn­lega skýrslu um söl­una á hlut í Íslands­banka á þingi þann 30. mars 2022, sagði hann ánægju­legt að eiga umræða á þeim tíma. „Með tveimur sölum á hlut rík­is­ins í Íslands­banka höfum við náð miklum árangri fyrir sam­fé­lagið allt og það sem meira er, við höfum náð öllum helstu mark­miðum okkar með söl­unni; dreift eign­ar­hald, að uppi­stöðu fjár­festar sem horfa til lengri tíma, mikil þátt­taka almenn­ings, skrán­ingu í kaup­höll hefur styrkt hluta­bréfa­mark­að­inn, ríkið hefur dregið úr þátt­töku sinni á sam­keppn­is­mark­aði og fengið gott verð fyrir.“

Síðar sagði hann að útboðið sem fór fram átta dögum áður, 22. mars, hefði gengið „vel á alla mæli­kvarða“. „Af öllu þessu má sjá að það er óneit­an­lega full ástæða til að hrósa Banka­sýslu rík­is­ins fyrir góða nið­ur­stöðu.[...] Góður árangur í söl­unni, jafnt nú sem síð­asta sumar, raun­gerð­ist ekki fyrir til­viljun. Und­ir­bún­ingur máls­ins alls hefur verið umfangs­mik­ill og vand­aður.“

Í ræðu hans sagð­ist Bjarni líka að rík­is­stjórnin vildi ljúka sölu Íslands­banka fyrir lok næsta árs, 2024, því salan skipti sköpum „í sam­hengi rík­is­fjár­mál­anna á næstu árum og þar með talið fyrir vaxta­byrð­ina og kom­andi kyn­slóðir.“

Kaupendalistinn sem gerði allt vitlaust

Þá þegar var hins vegar komin fram marg­háttuð gagn­rýni á sölu­ferlið. Í því var 22,5 pró­­­sent hlutur rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka seldur til 207 fjár­­­­­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­­­arða króna, sem var undir mark­aðsvirði þess tíma. Þrýst­ingur var á að list­inn yfir þá sem valdir voru til að kaupa yrði gerður opin­ber.

Sama dag og Bjarni flutti munn­lega skýrslu fyrir þingið um sölu­ferlið, 30. mars, óskaði hann eftir því með bréfi til Banka­sýslu rík­is­ins að hún skil­aði sér yfir­liti yfir kaup­endur. Þrátt fyrir að telja að það færi gegn lögum um banka­leynd afhenti stofn­unin list­ann 6. apríl. Sama dag var list­inn birtur.

Þar kom í ljós að á meðal kaup­enda voru starfs­­­­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litlir fjár­­­­­­­festar sem rök­studdur grunur var um að upp­­­­­­­fylltu ekki skil­yrði þess að telj­­­­ast fag­fjár­­­­­­­fest­­­­ar, erlendir skamm­­­­tíma­­­­sjóðir sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir höfðu engan áhuga á að vera lang­­­­tíma­fjár­­­­­­­festar í Íslands­­­­­­­banka, fólk í virkri lög­­­­­­­reglu­rann­­­­sókn, útgerð­ar­menn, aðilar sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og faðir fjár­­­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Við þetta varð allt vit­laust.

Vildi tryggja að „ekkert sé í skugganum“

Degi síðar, 7. apríl, óskaði Bjarni eftir því að Rík­is­end­ur­skoðun gerði úttekt á því hvort sala á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka í mars hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­háttum.

Í umræðum um málið á þingi sagði hann þetta vera gert vegna þeirrar gagn­rýni sem fram hafði komið. „Þá held ég að það sé lang­best til þess að tryggja einmitt að það sé ekk­ert í skugg­anum og það sé bara vel farið yfir þá fram­kvæmd sem við höfum hér nýgengið í gegnum að við fáum Rík­is­end­ur­skoðun til að taka út fram­kvæmd útboðs­ins og fara yfir það fyrir þingið með hvaða hætti lög og fyr­ir­mæli voru fram­kvæmd við þetta útboð. Ég tel, miðað við það sem ég veit, að það muni koma vel út fyrir alla fram­kvæmd­ina.“

Stjórn­ar­and­stæð­ingar gagn­rýndu þetta harð­lega og köll­uðu eftir að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis, sem hefur mun víð­tæk­ari heim­ildir, yrði skipuð til að fara yfir málið. Rík­is­end­ur­skoðun hefði tak­mark­aðar heim­ildir til að skýra það sem farið hafði fram.

Sama dag sagði sam­flokks­maður Bjarna og þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Óli Björn Kárason, í ræðu á þingi að hann heyrði það sem stjórn­ar­and­staðan væri að segja. „Að fólk virð­ist ekki hafa trú á því að það séu nægar heim­ildir hjá rík­is­end­ur­skoð­anda til að gera það. Ef það kemur í ljós í vinnu rík­is­end­ur­skoð­anda að það þurfi frek­ari heim­ildir þá lýsi ég því aftur yfir, svo það sé alger­lega skýrt: Ég mun ekki skor­ast undan því að styðja það að sett verði á fót sér­stök rann­sókn­ar­nefnd til að kafa betur ofan í það vegna þess að ég tel afar mik­il­vægt að hér sé öllum steinum velt við.“ Málið sner­ist um traust og „við skynjum það alveg á umræð­unni hér og í sam­fé­lag­inu og í fjöl­miðlum að það ríkir ekki full­komið traust um þetta.“

„Ekkert að fela“

Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, tók í svip­aðan streng og sagði að ef hug­mynd Bjarna um skoðun Rík­is­end­ur­skoð­unar á mál­inu væri ekki nóg „þá tek ég heils hugar undir með þeirri hug­mynd að setja á fót sér­staka rann­sókn í mál­inu, bara heils hugar. Það er allra hagur að þetta mál sé upp­lýst ef ein­hver vafi er um ferlið þannig ég tek heils hugar undir það, svo það komi skýrt fram.“

Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna.
Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna.

Jóhann Friðrik Frið­riks­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, steig líka í pontu og sagði að það gæti vel verið staðan að þingið þyrfti að skoða sölu­ferlið betur. „Við höfum fengið kynn­ingar á mál­inu. Ég held að á heild­ina litið hafi þetta tek­ist mjög vel og til að eyða allri tor­tryggni finnst mér sjálf­sagt að fara í slíkt hér innan þings­ins og styð það heils hugar.“

Í annarri ræðu sagð­ist hann þó bera traust til Rík­is­end­ur­skoð­unar. „Ég myndi halda að sú til­laga sem fjár­mála­ráð­herra kom hér upp með fyrr í dag ætti að vera fyrsta skref. En ég er jafn­framt að sjálf­sögðu, eins og ég hef sagt hér áður, opinn fyrir því að þingið taki málið í ein­hverjar aðrar áttir og mun heils hugar styðja það, enda mik­il­vægt þegar banki í eigu rík­is­ins er seldur, þegar horft er til þess sem á undan er gengið í þeim hrak­förum sem hér voru fyrir tíu árum síðan, að við eyðum allri tor­tryggni um þetta mál.“

Guðrún Haf­steins­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og verð­andi dóms­mála­ráð­herra, sagð­ist ekki ótt­ast það að rann­saka ferlið frá A til Ö og hvatti til þess að það yrði gert. „Hér er ekk­ert að fela.“

Ætti ekki að tala langan tíma og verður unnið hratt

Gagn­rýnin hélt hins vegar áfram og áköll um frek­ari rann­sókn urðu hávær­ari. Þann 8. apríl var áfram rætt um málið á Alþingi. Hand­fylli stjórn­ar­þing­manna stóðu áfram vakt­ina og tóku upp hansk­ann fyrir það ferli sem skoðun á sölu­ferl­inu hafði verið sett í. Óli Björn kom í pontu og sagði Rík­is­end­ur­skoð­anda vera og verða alltaf sjálf­stæðan í öllum sínum vinnu­brögðum og að Alþingi þyrfti að tryggja að svo yrði áfram. „Hann starfar í okk­ar umboði og hann starfar á okk­ar ábyrgð. Ég hef sagt og ætla að end­ur­taka það hér að ef það verður nið­ur­staða þings­ins að út­tekt rík­is­end­ur­skoð­anda, sem ætti ekki að taka lang­an tíma, dugi ekki til þá mun ég styðja það að komið verði á fót sjálf­stæðri rann­sókn­ar­nefnd.“

Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Vinstri grænna
Ingi­björg Isaksen, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna

Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, sagð­ist sagð­ist vera þeirra skoð­unar að það væri algjör­lega réttur far­vegur að hefja rann­sókn á mál­inu hjá Rík­is­end­ur­skoðun. „Það getur svo alveg þýtt það að einnig verði í kjöl­farið skipuð rann­sókn­ar­nefnd ef við teljum þær upp­lýs­ingar sem koma frá Rík­is­end­ur­skoðun á ein­hvern hátt ekki nægi­lega yfir­grips­miklar. [...] Ég vil ítreka að það hefur ekk­ert verið fallið frá því að koma á fót sjálf­stæðri rann­sókn­ar­nefnd. [...] Ég hef trú á því, vegna þess að Rík­is­end­ur­skoðun er í sífellu að fara yfir mál og fram­kvæmd þeirra, að nið­ur­staðan úr slíku máli geti legið fyrir nokkuð hratt og örugg­lega, og það skiptir máli. Það skiptir máli að fá ein­hverjar nið­ur­stöður og umfjöllun um það sem gerð­ist hratt. [...] Sjálf­stæð rann­sókn­ar­nefnd, sem ég held að sé einnig góð hug­mynd, vinnur öðru­vísi og mun taka lengri tíma í störfum sínum.“

Ingi­björg Isaksen, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks, var á svip­uðum slóðum og sagði að sér fynd­ist eðli­legt að fyrst yrði leitað til eft­ir­lits­stofn­unar rík­is­ins, Rík­is­end­ur­skoð­unar. „Það hefur verið sagt hér í pontu að það ferli muni ekki taka langan tíma og held ég að við ættum að ýta eins mikið á eftir því og hægt er. Gefi sú nið­ur­staða eitt­hvert til­efni til þess að skoða þetta enn frekar mun ekki standa á þing­flokki Fram­sóknar að stofna rann­sókn­ar­nefnd til þess að skoða þetta.“

Frá því að Óli Björn og Ingi­björg sögðu að úttekt rík­is­end­ur­skoð­anda ætti ekki að taka langan tíma og Steinunn Þóra sagði að Rík­is­end­ur­skoðun myndi vinna hratt eru liðnir rúmir sjö mán­uðir.

Síðasta rannsóknarnefnd skilaði af sér innan tíu mánaða

Síðasta rann­sókn­ar­nefnd Alþingis sem skipuð var rann­sak­aði þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum á 45,8 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands. Skipun hennar var sam­þykkt 2. júní og einn maður, Kjartan Bjarni Björg­vins­son dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, var falið að stýra rann­sókn­inni.

Þann 1. sept­em­ber sama ár var Finnur Þór Vil­hjálms­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara, ráð­inn starfs­maður við rann­sókn­ina. Þeir skil­uðu skýrslu um málið 29. mars 2017, tæp­lega tíu mán­uðum eftir að nefndin var skipuð. Starf hennar, sem fólst í því að varpa ljósi á flókna atburða­rás sem átt hafði sér næstum 15 árum áður, tók því þremur mán­uðum lengri tíma en það hefur tekið Rík­is­end­ur­skoðun að vinna sína stjórn­sýslu­út­tekt á Íslands­banka­söl­unni. Í því sam­hengi verður að hafa í huga að þeir fjórir ein­stak­lingar sem nefndin vildi taka skýrslu af neit­uðu upp­haf­lega að mæta til hennar og þurfti að leita atbeina dóm­stóla til að knýja skýrslu­tökur fram. Það tafði fram­gang rann­sókn­ar­innar veru­lega.

Varpaði algjörlega nýju ljósi á atburðarás

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar lýsti allt öðrum veru­leika en tvær skýrslur Rík­is­end­ur­skoð­unar sem fjöll­uðu um sölu­ferli Bún­að­ar­bank­ans höfðu gert. Hún opin­ber­aði að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut í Bún­­að­­ar­­bank­­anum hafi verið blekk­ing. Kaup­­þing fjár­­­magn­aði kaupin að fullu, að baki lágu bak­­samn­ingar sem tryggðu Hauck & Auf­häuser fullt skað­­leysi, þókn­ana­­tekjur upp á eina milljón evra fyrir að leppa og sölu­rétt á hlutnum eftir að þýski lepp­­bank­inn var búinn að halda á honum í tæp tvö ár. Til­gang­ur­inn var að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann svo hægt yrði að sam­eina hann Kaup­þingi og búa til stærsta banka á Íslandi. Það var gert nokkrum mán­uðum eftir einka­væð­ingu.

Kjartan Bjarni Björgvinsson og Finnur Þór Vilhjálmsson kynntu skýrslu rannsóknarnefndarinnar innan við tíu mánuðum eftir að hún var skipuð.
Kjartan Bjarni Björg­vins­son og Finnur Þór Vil­hjálms­son kynntu skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar innan við tíu mán­uðum eftir að hún var skipuð.

Til við­­bótar lá fyrir í flétt­unni, sem var kölluð „Puffin“, að hagn­aður sem gæti skap­­ast hjá réttum eig­enda hlut­­ar­ins, aflands­­fé­lags­ins Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­­areyj­un­um, myndi renna til tveggja aflands­­fé­laga, skráð á sama stað, sem áttu það félag. Annað þeirra aflands­­fé­laga var Marine Choice Limited, í eigu Ólafs Ólafs­­son­­ar, eins þeirra sem leiddi kaupin á Bún­að­ar­bank­anum. Hann hagn­að­ist um 3,8 millj­­arða króna á flétt­unni. Hitt félag­ið, Dekhill Advisors, hagn­að­ist um 2,9 millj­­arða króna á „Puffin“ verk­efn­inu. Á virði árs­ins 2017 var sam­eig­in­­legur hagn­aður félag­anna tveggja rúm­­lega 11 millj­­arðar króna. Íslensk skatta­yf­ir­völd telja að bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir, oft­ast kenndir við Bakkavör, hafi verið eig­endur Dekhill Advisors.

Stjórnarþingmenn lofuðu stuðningi við rannsóknarnefnd ... seinna

En förum á ný fram til 8. apríl 2022. Þann dag var lögð fram beiðni um skipun rann­sókn­ar­nefndar í fund­ar­lotu for­seta Alþingis með þing­flokks­for­mönnum stjórn­ar­liða og stjórn­ar­and­stöðu þar sem reynt var að lenda nið­ur­stöðu sem hefði hleypt þing­mönnum í páska­frí.

Helga Vala Helga­dóttir, þáver­andi þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði þá í þing­pontu að stjórn­ar­liðar hafi ekki fall­ist á ein­læga ósk stjórn­ar­and­stöðu um að sett yrði af stað rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að fara ofan í saumana á sölu á hlut í Íslands­banka. „Við höfum lagt það til ítrekað vegna þess að rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hefur sam­kvæmt lögum víð­tækar heim­ildir til rann­sóknar til að kalla eftir upp­lýs­ingum, til að veita fólki vernd sem gefur upp­lýs­ingar þrátt fyrir að hafa tekið þátt í ólög­mætum lög­gern­ingi, getur skyldað fólk til að koma til skýrslu­gjafar o.s.frv. En nei, stjórn­ar­liðar vilja frekar fara þá leið sem hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra lagði til í gær og hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra tók undir, að hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra fari sjálfur fram á að Rík­is­end­ur­skoðun skoði störf hans, til­lögur hans, og hefur rík­is­end­ur­skoð­andi fall­ist á það með þær tak­mörk­uðu heim­ildir sem hann hefur til rann­sóknar. Þetta var nið­ur­staða fund­ar­ins. Þetta eru gríð­ar­leg von­brigði. Það eru von­brigði að stjórn­ar­liðar skuli ekki átta sig á alvar­leika máls­ins. Ég verð að segja það og það hryggir mig að félagar okkar í Vinstri grænum skuli fara með í þennan leið­angur.“

Orri Páll, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, var á meðal þeirra sem svör­uðu. Í ræðu hans sagði hann að það væri aug­ljóst að ekki ríkti traust um málið. „Þær heim­ildir sem við höfum, og bæði þingið og ein­staka ráð­herrar geta nýtt, eru einmitt að fá til þess eft­ir­lits­stofnun Alþingis sem er Rík­is­end­ur­skoðun. Það var m.a. rætt á þessum fundi, og ég svo sem kannski tók ekki rétt eftir svari við því, hvort það væri þá ekki hægt að tengja betur saman eft­ir­lits­nefnd þings­ins, stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, með þess­ari vinnu rík­is­end­ur­skoð­anda án þess að hafa áhrif á það hvernig hann vinnur með sínum sjálf­stæðu vinnu­brögðum. Ég fékk ekki svar við þeirri hug­mynd að við nýtum tæki­færið og tím­ann, að rík­is­end­ur­skoð­andi fái að klára sína vinnu en sam­hliða sé unnið að því að reyna að móta hug­myndir um það hvernig rann­sókn­ar­skýrsla myndi líta út leiði rík­is­end­ur­skoð­andi eða mat því sam­hliða í ljós að það þurfi að fara í þá veg­ferð. Og bara svo ég bæti því við þá hef ég sagt það hér að ég tel mik­il­vægt að velta við öllum steinum í þessu máli, svo ég ítreki það.“

Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, var fyrirferðamikill í umræðum um málið á þingi í vor.
Óli Björn Kárason, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, var fyr­ir­ferða­mik­ill í umræðum um málið á þingi í vor.

Óli Björn end­ur­tók þá skoðun sína að það væri skyn­sam­lega að verki staðið að fela óháðum aðila sem vinni í umboði þings­ins og á ábyrgð þings­ins að gera úttekt á sölu­ferl­inu. „Á grund­velli þeirrar úttektar, leiði hún í ljós frek­ari þörf eða að eitt­hvað athuga­vert hafi komið í ljós, þá mun ég standa við það að styðja til­lögu um að sett verði á fót rann­sókn­ar­nefnd á vegum þings­ins sam­kvæmt lögum. Það stendur. “

„Ég vildi óska þess að þetta hefði ekki farið svona“

Ein síð­asta ræðan sem flutt var áður en Alþingi var for­seti þess hringdi inn páska­fríið var flutt af Jóhanni Páli Jóhanns­syni, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Þar sagði hann þing­menn vera að fara í frí í skugga mjög alvar­legs hneyksl­is­máls. „Ég vil bara upp­lýsa fólk sem fylgist með Alþingi um það að við í stjórn­ar­and­stöðu höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til þess að knýja fram ráð­staf­anir til að end­ur­heimta traust í sam­fé­lag­inu, knýja það fram að skipuð verði óháð rann­sókn­ar­nefnd til að fara yfir söl­una á Íslands­banka. Við erum búin að ham­ast í dag en við lentum á vegg. Hér er nefni­lega mjög sterkur stjórn­ar­meiri­hluti. Hér er fjöldi þing­manna úr þremur flokkum, þing­manna sem fylkja sér á bak við sinn ráð­herra og beita sér af alefli fyrir því að hans drauma­leið, hans drauma­far­vegur á þessu máli verði að veru­leika. Við munum halda áfram að gera okkar besta. Ég vildi óska þess að þetta hefði ekki farið svona. — Gleði­lega páska.“

Átta af hverjum tíu landsmönnum vildi rannsóknarnefnd

Í könnun sem Gallup birti í apríl síð­ast­liðnum var meðan ann­ars spurt að því hvort rann­sókn­ar­nefnd Alþingis ætti að gera úttekt á söl­unni, líkt og þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar hefði lagt til. Nið­ur­staðan þar var sú að 73,6 pró­sent lands­manna töldu að það ætti að skipa rann­sókn­ar­nefnd en 26,4 pró­sent töldu nægj­an­legt að Rík­is­end­ur­skoðun geri úttekt á söl­unni, líkt og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafði þegar falið henni að gera.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins skáru sig úr þegar kom að þessu, en 74 pró­sent þeirra voru á því að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar nægði til. Tæp­lega þriðj­ungur kjós­enda hinna stjórn­ar­flokk­anna var á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þyrfti rann­sókn­ar­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­endur stjórn­ar­and­stöðu­flokka voru nær allir á því að rann­sókn­ar­nefnd væri nauð­syn­leg.

Í sömu könnun sögðu næstum níu af hverjum tíu svar­endum að þeir töldu að illa hefði verið staðið að söl­unni, sjö af hverjum tíu töldu að lög hefðu verið brotin og alls 88,4 pró­sent töldu að óeðli­legir við­skipta­hættir hefðu verið við­hafðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár