Mynd: Íslandsbanki

Tíu staðreyndir um skoðun íslensku þjóðarinnar á sölu ríkisstjórnar á Íslandsbanka

Þann 22. mars seldi íslenska ríkið 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði til 207 fjár­festa á 52,65 millj­arða króna. Kannanir hafa verið gerðar um skoðun þjóð­ar­innar á banka­sölu.

1. Þorri Íslendinga fylgjandi því að ríkið eigi banka

Starfs­hópur sem vann Hvítbók um fram­tíð­ar­sýn fjár­mála­kerf­is­ins, sem birt var í des­em­ber 2018, lét gera ýmsar kann­anir fyrir sig við gerð hennar. Þar var meðal ann­ars spurt um hvort fólk væri jákvætt gagn­vart því að íslenska ríkið væri eig­andi við­skipta­banka. Alls svör­uðu 61,2 pró­sent því ját­andi, 13,5 pró­sent neit­andi en 25,2 pró­sent sögð­ust ekki hafa sér­staka skoðun á því.

2. Hræðsla við spillingu, græðgi og slæm endalok

Í sömu könnun var fólk spurt hver væri helsta ástæða þess að það væri jákvætt gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­skipta­banka. Algeng­ustu svörin voru þau að ríkið væri betri eig­andi en einka­að­ili, að slíku eign­ar­haldi fylgdi öryggi og traust, að arð­ur­inn af fjár­mála­starf­semi myndi þá fara til þjóð­ar­innar og að minni líkur væru á spill­ingu, græðgi og slæmum enda­lok­um. Í könn­un­inni kom einnig fram að flestir Íslend­ingar ósk­uðu þess að banka­­kerfi fram­­tíðar yrði sann­­gjarnt og rétt­látt, traust, með góða þjón­ustu, hag­­kvæmt, heið­­ar­­legt, gagn­­sætt og fyrir almenn­ing.

Svo sögð­ust ein­ungis 16 pró­sent lands­manna treysta banka­kerf­inu, sem þó var á þeim tíma og er enn, að langstærstu leyti í eigu íslensku þjóð­ar­inn­ar. Og 57 pró­sent sögð­ust alls ekki treysta því. Í könnun sem Gallup gerði í byrjun árs 2022 hafði hlut­fall þeirra sem treysti banka­kerf­inu vaxið upp í 23 pró­sent, en það var samt á nið­ur­leið á ný og það næst minnsta sem mæld­ist gagn­vart stofnun eða kerfi sem spurt var um.

3. Næstum níu af hverjum tíu telja að illa hafi verið staðið að sölunni

Í könnun sem Gallup birti í vik­unni kom fram að 87,2 pró­sent lands­manna telja að staðið hafi verið illa að útboði og sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í síð­asta mán­uði. Einungis 6,4 pró­sent telja að það hafi vel tek­ist til. Aðspurðir sem eru 60 ára eða eldri voru lík­leg­astir til að þykja salan hafa heppn­ast vel, en ell­efu pró­sent þeirra var á þeirri skoðun. Þegar horft er á menntun vour þeir sem eru með háskóla­próf ólík­leg­astir til að vera ánægðir með hvernig tókst til, en ein­ungis fjögur pró­sent þeirra eru á þeirri skoðun. Kjós­endur allra ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks voru nær alfarið á því að útboðið og salan hefði verið klúður, eða 89 til 97 pró­sent þeirra. Hjá kjós­endum flokks Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var staðan önnur. Þar töldu 26 pró­sent að útboðið og salan á hlutnum í Íslands­banka hefði verið vel heppnuð en 62 pró­sent að illa hefði tek­ist til.

4. Kjósendur allra annara flokka en Sjálfstæðisflokks vilja rannsóknarnefnd

Gallup spurði einnig að því hvort rann­sókn­ar­nefnd Alþingis ætti að gera úttekt á söl­unni, líkt og þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar hefur lagt til. Nið­ur­staðan þar var sú að 73,6 pró­sent lands­manna telur að það eigi að skipa rann­sókn­ar­nefnd en 26,4 pró­sent telur nægj­an­legt að Rík­is­end­ur­skoðun geri úttekt á söl­unni, líkt og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur þegar falið henni að gera. Aftur skera kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sig úr þegar kemur að þessu, en 74 pró­sent þeirra er á því að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar nægi. Tæplega þriðj­ungur kjós­enda hinna stjórn­ar­flokk­anna er á þeirri skoðun en um tveir þriðju á því að skipa þurfi rann­sókn­ar­nefnd. Ekki þarf að koma á óvart að kjós­endur stjórn­ar­and­stöðu­flokka eru nær allir á því að rann­sókn­ar­nefnd sé nauð­syn­leg.

Bjarni Benediktsson er sá ráðherra sem tók ákvörðun um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Bjarni Bene­dikts­son er sá ráð­herra sem tók ákvörðun um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka.

5. Átta af hverjum tíu sjálfstæðismönnum telja að lög hafi ekki verið brotin

Í könnun Gallup var líka spurt hvort fólk telji að lög hefðu verið brotin við sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Mikill meiri­hluti lands­manna, 68,3 pró­sent, telja að sölu­ferlið hafi falið í sér lög­brot, en 31,7 pró­sent að svo sé ekki. Athygli vekur að 77 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna telja að lög hafi verið brotin og 67 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þegar kemur að kjós­endum þriðja stjórn­ar­flokks­ins snýst staðan að venju við, en 77 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru sann­færðir um að engin lög hafi verið brotin.

6. Næstum níu af hverjum tíu telja að óeðlilegir viðskiptahættir hafi verið viðhafðir

Aðspurð hvort óeðli­legir við­skipta­hættir hafi verið við­hafðir við söl­una sögðu 88,4 pró­sent svar­enda svo vera. Einungis 11,6 pró­sent töldu við­skipta­hætt­ina hafa verið eðli­lega.

Nær allir kjós­endur ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks­ins (89 til 99 pró­sent) telja söl­una hafa verið fram­kvæmda með óeðli­legum við­skipta­háttum, en 41 pró­sent stuðn­ings­manna flokks fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra telja að eðli­legum háttum hafi verið beitt.

7. Alls 83 prósent óánægð með söluna á Íslandsbanka

Áður hafði Prósent gerð könnun um söl­una á Íslands­banka fyrir Frétta­blaðið, en nið­ur­stöður hennar voru birtar 20. apríl. Þar kom fram að rúm­lega átta af hverjum tíu lands­mönn­um, alls 83 pró­sent aðspurðra, segj­ast óánægð með fyr­ir­komu­lag á sölu. Einungis sjö pró­sent voru ánægð og þar af þrjú pró­sent mjög ánægð. Athygli vakti að nán­ast allir hópar sam­fé­lags­ins virð­ast jafn óánægðir með söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Í Frétta­blað­inu sagði að það sé nán­ast eng­inn mark­tækur munur er á afstöðu fólks er kemur að kyni, aldri, búsetu, tekjum eða mennt­un.

Þeir sem kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn voru þó mark­tækt ánægð­ari með söl­una en kjós­endur ann­arra flokka, sam­kvæmt könnun Prósents. Alls sögð­ust 30 pró­sent þeirra að þeir væru ánægðir með hana en 44 pró­sent sögð­ust óánægð­ir. Til sam­an­burðar mæld­ist óánægja með söl­una að minnsta 78 pró­sent á meðal kjós­enda allra ann­arra flokka í land­inu. Hjá hinum stjórn­ar­flokk­un­um, Vinstri grænum og Fram­sókn, var vart mæl­an­leg ánægja með söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Ein­ungis eitt pró­sent kjós­enda Vinstri grænna, flokks Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, sögð­ust ánægð með söl­una og fimm pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar, flokks Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra.

8. Traust á leiðtoga stjórnarinnar hrunið og 71 prósent vantreysta Bjarna

Hvernig til tókst með söl­una á Íslands­banka hefur haft umtals­verðar póli­tískar afleið­ingar. Í könnun sem Maskína gerði um traust til ráð­herra kom í ljós að traust á helstu ráða­menn þjóð­ar­innar hefur hríð­fallið á skömmum tíma. Frá því í des­em­ber 2021 og fram í apríl 2022 hefur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tapað fjórð­ungi þess trausts sem hún mæld­ist með fyrir nokkrum mán­uðum og fjöldi þeirra sem van­treysta henni hefur næstum tvö­fald­ast.

Sigurður Ingi og Katrín þegar þau mynduðu fyrst saman ríkisstjórn árið 2017. Traust á þau bæði hefur hrunið á síðustu vikum.
Sigurður Ingi og Katrín þegar þau mynd­uðu fyrst saman rík­is­stjórn árið 2017. Traust á þau bæði hefur hrunið á síð­ustu vikum.

Traust á Sig­urð Inga Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra hefur hrunið um næstum 40 pró­sent og fjöldi þeirra sem van­treysta honum hefur rúm­lega tvö­fald­ast. Verst hefur þó Bjarni Bene­dikts­son farið út úr aðstæð­unum, en í könnun Maskínu kom fram að 71 pró­sent lands­manna van­treysta honum. Van­traustið á for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur auk­ist um 27 pró­sentu­stig frá því í des­em­ber og hann hefur aldrei verið óvin­sælli frá því að hann hóf stjórn­mála­þátt­töku.

9. Ríkisstjórnin kolfallin og allir vel undir kjörfylgi

Afleið­ing­arnar birt­ast líka í fylgi stjórn­ar­flokk­anna á lands­vísu. Í könnun Prósents sem birt var í vik­unni kom fram að rík­is­stjórnin væri kol­fallin, að þing­manna­fjöldi hennar myndi skreppa saman um tólf ef kosið yrði í dag og að sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja sem að henni standa myndi ekki ná 40 pró­sent.

Mestu fylgi tapar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann mælist með 17,9 pró­sent fylgi sem myndi skila tólf þing­mönn­um. Flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2021 og tapar því 6,5 pró­sentu­stig­um. Það er í fyrsta sinn sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með undir 18 pró­sent fylgi í stórri fylgiskönn­un.

Hinir stjórn­ar­flokk­arnir tveir tapa líka miklu fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað 4,9 pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum í fyrra­haust og mælist með 12,4 pró­sent fylgi. Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, mælist með 9,6 pró­sent fylgi sem er þremur pró­sentu­stigum minna en þau fengu upp úr kjör­köss­unum í sept­em­ber 2021.

10. Áhrif bankasölunnar sýnileg í baráttunni um borgina

Þótt það hafi verið rík­is­stjórnin sem seldi hlut­inn í Íslands­banka þá teygja áhrif óánægj­unnar vegna söl­unnar sig líka yfir í sveit­ar­stjórn­ar­málin, en þar verður kosið eftir sléttar tvær vikur. Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans kemur fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í Reykja­vík sé að tapa fylgi hratt, en fylgi hans mælist nú 21,9 pró­sent. Það er 8,9 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2018. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 12,6 pró­sent fylgi í höf­uð­borg­inni, sem er mikil bæt­ing frá því sem hann fékk í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018 og svipað og flokk­ur­inn fékk í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum í þing­kosn­ing­unum í fyrra­haust. Vinstri græn mæl­ast með ein­ungis 6,2 pró­sent fylgi, sem er betra en 2018 en langt frá því fylgi sem flokk­ur­inn fékk í Reykja­vík í síð­ustu kosn­ingum til Alþingis. Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna í höf­uð­borg­inni mælist nú 40,7 pró­sent, sem er nán­ast sama sam­eig­in­lega fylgi og þeir njóta á lands­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár