Mynd: Skjáskot af frétt Morgunblaðsins.

Ríkisendurskoðun hefur áður gefið út falskt heilbrigðisvottorð á einkavæðingu banka

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur beðið Rík­is­end­ur­skoðun um að skoða sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka til hóps fjár­festa í lok­uðu útboði fyrir rúmum tveimur vikum. Stofn­unin hefur tví­vegis áður skoðað banka­sölu og sagt hana í lagi.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sendi í gær beiðni til Rík­is­end­ur­skoð­unar um að stofn­unin gerði úttekt á því hvort sala á 22,5 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­háttum.

Salan fór fram í gegnum lokað útboð og alls 207 aðilar fengu að kaupa hlut­inn með sam­tals 2,25 millj­arða króna afslætti. Listi yfir kaup­endur var birtur fyrr í vik­unni og kom þá meðal ann­ars í ljós að starfs­menn sölu­ráð­gjafa, aðilar sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og faðir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra voru á meðal kaup­enda.

Fram­kvæmd útboðs­ins hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir ýmis­legt annað. Engin sýni­leg ástæða hafi til að mynda hafi verið fyrir því að hleypa mörgum minni fjár­festum að í slíku útboði, þeir gætu ein­fald­lega keypt bréf á eft­ir­mark­aði og á mark­aðs­verði. Þá hefur kostn­aður við útboðið, um 700 millj­ónir króna, verið gagn­rýndur og sú ákvörðun að selja erlendum skamm­tíma­sjóðum sem tóku líka þátt í almenna útboð­inu í fyrra­sumar, en seldu sig nær strax niður í kjöl­far þess, umtals­verðan hlut í bank­anum á afslætti.

Tvær úttektir

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rík­is­end­ur­skoðun er beðin um að skoða sölu á hlut íslenska rík­is­ins í banka. Skömmu eftir að stór hlutur í tveimur rík­is­bönkum, Lands­banka Íslands og Bún­að­ar­banka Íslands, var seldur til kjöl­festu­fjár­festa síðla árs 2002 og snemma árs 2003, gaf hún út heil­brigð­is­vott­orð á þá fram­kvæmd.

Rík­is­end­ur­skoðun vann skýrslu árið 2003 um einka­væð­ingu rík­is­eigna þar sem nið­ur­staðan var sú að „ís­lensk stjórn­völd hafi í meg­in­at­riðum náð helstu mark­miðum sínum með einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja á árunum 1998-2003.“ Sér­stak­lega var gagn­rýnt á þeim tíma að engar athuga­semdir hafi verið gerðar við það hvernig staðið var að sölu á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til svo­kall­aðs S-hóps­ og að aðkoma þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser hafi alls ekki verið tor­tryggi­leg.

Í mars 2006 vann Rík­is­end­ur­skoðun síðan átta blað­síðna sam­an­tekt í kjöl­far fundar Vil­hjálms Bjarna­son­ar, fyrr­ver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem hann lagði fram nýjar upp­lýs­ingar um söl­una á Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins. Vil­hjálmur hafði lengi verið þeirrar skoð­un­ar, og taldi sig hafa gögn til að sýna fram á, að aðkoma þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser, sem var sagður hluti af S-hópnum, hafi aldrei verið raun­veru­leg, heldur hafi hann leppað sinn hlut fyrir aðra og blekkt um leið selj­endur til að halda að erlend fjár­mála­stofnun kæmi að kaup­unum.

Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar var sú að ekk­ert sem lagt hafi verið fram í mál­inu hefði stutt víð­tækar álykt­anir Vil­hjálms. „Þvert á móti þykja liggja óyggj­andi upp­lýs­ingar og gögn um hið gagn­stæða,“ segir í skýrslu henn­ar.

Því sendi Rík­is­end­ur­skoðun tví­vegis frá sér skýrslu eða sam­an­tekt þar sem stofn­unin vott­aði að ekk­ert athuga­vert hafi verið við söl­una á hluti rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins.

Allir blekktir

Í mars 2017 opin­ber­aði rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is, með til­vísun í gögn, að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut í Bún­að­ar­bank­anum hafi verið blekk­ing. Kaup­þing fjár­magn­aði kaupin að fullu, að baki lágu bak­samn­ingar sem tryggðu Hauck & Auf­häuser fullt skað­leysi, þókn­ana­tekjur upp á eina milljón evra fyrir að leppa og sölu­rétt á hlutnum eftir að þýski lepp­bank­inn var búinn að halda á honum í tæp tvö ár.

Til við­bótar lá fyrir í flétt­unni, sem var kölluð „Puffin“, að hagn­aður sem gæti skap­ast hjá réttum eig­enda hlut­ar­ins, aflands­fé­lags­ins Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um, myndi renna til tveggja aflands­fé­laga, skráð á sama stað, sem áttu það félag. Annað þeirra aflands­fé­laga var Marine Choice Limited, í eigu Ólafs Ólafs­son­ar. Hann hagn­að­ist um 3,8 millj­arða króna á flétt­unni. Hitt félag­ið, Dekhill Advisors, hagn­að­ist um 2,9 millj­arða króna á „Puffin“ verk­efn­inu. Á núvirði er sam­eig­in­legur hagn­aður félag­anna tveggja rúm­lega 11 millj­arðar króna.

Í mars 2017 opin­ber­aði rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is, með til­vísun í gögn, að aðkoma Hauck & Aufhäuser að kaup­unum á hlut í Bún­að­ar­bank­anum hafi verið blekk­ing.
Í mars 2017 opin­ber­aði rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is, með til­vísun í gögn, að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á hlut í Bún­að­ar­bank­anum hafi verið blekk­ing.

Íslensk skatta­yf­ir­völd telja að end­an­legir eig­endur félags­ins Dekhill Advisors Limited, aflands­fé­lags skráð til heim­ilis á Tortóla-eyju, séu bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­syn­ir, oft­ast kenndir við Bakka­vör. Þeir eru á meðal þeirra sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði 22. mars síð­ast­lið­inn.

Vildi ekki draga mat sitt til baka

Eftir að skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar var gerð opin­ber beindi Kjarninn fyr­ir­spurn til Rík­is­end­ur­skoð­unar um nið­ur­stöðu hennar.

Vilhjálmur Bjarnason og Ólafur Ólafsson þegar sá síðarnefndi mætti fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins 2017.
Vil­hjálmur Bjarna­son og Ólafur Ólafsson þegar sá síð­ar­nefndi mætti fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins 2017.

Í svari stofn­un­ar­innar sagð­ist hún fagna nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um þátt­töku Hauck & Afhäuser og þeirri „skýru nið­ur­stöðu sem rann­sókn­ar­nefndin kemst að í krafti aðgangs nefnd­ar­innar að tölvu­póstum sem sýndu fram á mik­il­væga bak­samn­inga sem haldið hafði verið leynd­um. Það er alltaf mik­il­vægt að draga sann­leik­ann fram.“

Rík­is­end­ur­skoðun taldi hins vegar ekki ástæðu til að draga til baka það mat sitt að gögn þau sem Vil­hjálmur Bjarna­son afhenti Rík­is­end­ur­skoðun 22. febr­úar 2006 væru ekki nægj­an­leg til að sýna fram að Hauck & Afhäuser hafi ekki verið raun­veru­legur eig­andi þess eign­ar­halds­fé­lags sem mynd­aði stóran hluta S-hóps­ins svo­kall­aða sem keypti 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­an­um.

„Breytir engu í því sam­bandi þó rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hafi nú á grund­velli upp­lýs­inga og ábend­inga, sem bár­ust umboðs­manni Alþingis sl. vor undir þeim for­merkjum að hann gætti trún­aðar um upp­runa þeirra, og á grund­velli víð­tækra rann­sókn­ar­heim­ilda sinna, sýnt fram á að gögn þau sem Rík­is­end­ur­skoðun afl­aði sér í kjöl­farið hafi verið lögð fram í blekk­ing­ar­skyn­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár