Hvorki fjármálaráðuneytið né Bankasýslan telja sig hafa gert neitt rangt við bankasölu

Rík­is­end­ur­skoðun telur fjöl­þætta ann­marka hafa verið á sölu­ferl­inu á Íslands­banka. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið og Banka­sýsla rík­is­ins fengu að bregð­ast við ábend­ingum. Hvorugur aðili telur sig hafa gert neitt rangt.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Ráðuneyti hans fer með eignarhluti ríkisins í bönkum og ber ábyrgð á sölu þeirra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ráðu­neyti hans fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í bönkum og ber ábyrgð á sölu þeirra. Mynd: hag / Haraldur Guðjónsson / Ljósmynd/hag

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið segir, í við­brögðum sínum við fjöl­þættum athuga­semdum Rík­is­end­ur­skoð­unar við sölu­ferlið á 22,5 pró­sent hlut Íslands­banka í mars að ekki verði annað séð en af umfjöllun skýrsl­unnar en að „sá þáttur sölu­með­ferð­ar­innar sem var á ábyrgð ráð­herra hafi sam­ræmst lögum og meg­in­reglum stjórn­sýslu­réttar.“

Að mati ráðu­neyt­is­ins varði þeir mis­brestir á und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd sem Rík­is­end­ur­skoðun bendir á „einkum afmörkuð atriði við fram­kvæmd söl­unnar sem meðal ann­ars voru í verka­hring eft­ir­lits­skyldra aðila.“

[links]Þá ítrekar ráðu­neytið þau sjón­ar­mið sem áður hafi komið fram að betur hefði þurft að standa að kynn­ingu á sölu­með­ferð­inni gagn­vart almenn­ingi. „Líkt og fram hefur komið hafa for­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar ákveðið að leggja til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Horft verður til nið­ur­staða skýrsl­unnar og ábend­inga sem í henni koma fram við þá vinnu.“

Kjarninn greindi frá því fyrr í kvöld að sam­kvæmt nið­ur­stöðu Rík­is­end­ur­skoð­unar vor ann­markar sölu­ferl­is­ins fjöl­þættir og lúta bæði að und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd söl­unn­ar. Þar segir meðal ann­ars að ljóst megi vera að „orð­sporðs­á­hætta við sölu opin­berra eigna var van­metin fyrir sölu­ferlið 22. mars af Banka­sýslu rík­is­ins, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og þing­nefndum sem um málið fjöll­uðu í aðdrag­anda söl­unn­ar.“

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu um helstu nið­ur­stöður Rík­is­end­ur­skoð­unar hér. Skýrslan, sem Kjarninn hefur undir höndum, verður gerð opin­ber á morgun eftir að Rík­is­end­ur­skoðun hefur kynnt hana fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Skoða megi hvort frekari aðkoma ráðuneytisins að sölu sé til bóta

Rík­is­end­ur­skoðun setur fram alls fimm ábend­ingar í skýrslu sinni. Sú fyrsta snýr að því að öfl­ugan rík­is­að­ila þurfi til að fylgja eftir eig­enda­stefnu rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið ítrekað að búið sé að boða að Banka­sýsla rík­is­ins, sem hefur það hlut­verk í dag, verði lögð niður og að ráðu­neytið sé með í smíðum frum­varp sem feli í sér sam­ein­ingu á umsýslu eign­ar­halds allra rík­is­fyr­ir­tækja á eina hendi í sam­ræmi við leið­bein­ingar OECD. „Ljóst er að jafn­vel þó að öll umsýsla eign­ar­halds rík­is­fyr­ir­tækja færi fram í sér­stakri stofnun þá myndi sú ein­ing verða til­tölu­lega fámenn. Varðandi fram­kvæmd við frek­ari sölu eign­ar­hluta má skoða, ásamt öðrum kostum, hvort aukin aðkoma fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis og/eða Rík­is­kaupa geti orðið til þess að styrkja þann þátt.“

[adspot]Ráðu­neytið gengst við því að bæði Banka­sýslan og það sjálft hafi getað staðið betur að því að tryggja virka upp­lýs­inga­miðlum til almenn­ings varð­andi söl­una, en um það snýst önnur ábend­ing stofn­un­ar­innar. „Ráðu­neytið getur á hinn bóg­inn ekki tekið undir það að upp­lýs­ingar til nefnda Alþingis í grein­ar­gerð ráð­herra og í kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins og Banka­sýsl­unnar fyrir nefnd­unum hafi verið ófull­nægj­andi um eðli sölu­að­ferð­ar­innar og meg­in­reglur og mark­mið. Sem dæmi má nefna að í þessum gögnum og á kynn­ing­ar­fundum kom fram að ein­stak­lingar gætu verið meðal kaup­enda ef þeir teld­ust hæfir fjár­festar, að vænta mætti að veittur yrði til­tek­inn afsláttur frá síð­asta skráða gengi og að við söl­una yrði horft sér­stak­lega til mark­miða um fjöl­breytt, heil­brigt og dreift eign­ar­hald.“

Telja mikið gert úr huglægum forsendum

Þriðja ábend­ing Rík­is­end­ur­skoð­unar snýst um þörf á því að setja skýr við­mið um mats­kennda þætti í söl­unni. Ráðu­neytið telur á köflum nokkuð mikið gert úr meintum hug­lægum for­sendum í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. „Að því marki sem hlut­lægum við­miðum var ekki fyrir að fara virð­ist í úrlausn sölu­ferla hafa verið byggt á þekk­ingu reynslu­mik­illa og sér­fróðra erlendra sem inn­lendra aðila sem komu að vinn­unni. Enn fremur telur ráðu­neytið að öll við­mið sem stuðst var við í ferl­inu hafi átt sér við­hlít­andi stoð í lögum nr. 155/2012. Af hálfu ráð­herra voru við­mið sett í þeim mark­miðum sem fram koma í grein­ar­gerð og ákvörðun hans.“

Fjórða ábend­ingin sner­ist um ábend­ingar um að ákvarð­anir yrðu skjal­festar og að gagn­sæi yrði tryggt við söl­una. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið tekur undir þessi sjón­ar­mið um að æski­legt sé að við­mið sem fram­kvæmda­að­ili sölu­með­ferðar hyggst beita við mat á til­boðum séu fyr­ir­fram skil­greind og skráð „eftir því sem raun­hæfur kostur er þannig að hægt verði að meta nið­ur­stöð­una með hlið­sjón af þeim.“

Skoðað að setja skorður við að fyrirtæki sem er til sölu sé söluráðgjafi

Í fimmta lagi benti Rík­is­end­ur­skoðun á að fyr­ir­byggja yrði hags­muna­á­rekstra og orð­spors­á­hættu við sölu á banka. Líkt og með aðrar ábend­ingar tekur ráðu­neytið undir þetta sjón­ar­mið og segir raunar að slíkum hafi verið velt upp bæði fyrir frumút­boðið á hlutum í Íslands­banka sum­arið 2021 og í lok­aða útboð­inu sem fram fór í mars. „Almennt hefur verið lögð á það rík áhersla af hálfu ráðu­neyt­is­ins við und­ir­bún­ing á laga­breyt­ingum sem varða með­ferð, ráð­stöfun og sölu eigna rík­is­ins að vand­lega sé gætt að meg­in­reglum um hlut­lægni, gagn­sæi, jafn­ræði og hag­kvæmni. Við und­ir­bún­ing laga­breyt­inga verður sá mögu­leiki skoð­aður að settar verði skorður við því að það fyr­ir­tæki sem til sölu er gegni hlut­verki sölu­ráð­gjafa. Verka­skipt­ing laga nr. 155/2012 kveður á um að það sé hlut­verk Banka­sýslu rík­is­ins að gera samn­inga við utan­að­kom­andi ráð­gjafa.“

Starfsmenn með haldgóða menntun

Í skýrsl­unni er einnig að finna við­brögð Banka­sýslu rík­is­ins við ábend­ingum Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Sú fyrsta felur í sér að stofn­unin telji Banka­sýslu rík­is­ins ekki vera öfl­ugan rík­is­að­ili sem geti fylgt eftir eig­enda­stefnu rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki. Því er Banka­sýslan ósam­mála. Í við­brögðum hennar segir að hún hafi sinnt þessu hlut­verki frá árinu 2009. „Starfs­menn stofn­un­ar­innar hafa í senn hald­góða háskóla­menntun á sínum sér­fræðisviðum sem og mikla reynslu af umsýslu og sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og af störfum á fjár­mála­mark­aði, hér­lendis og erlendis. Benda má á að stofn­unin hefur þrisvar sinnum selt eign­ar­hluti í fjár­mála­fyr­ir­tækjum með þremur mis­mun­andi aðferðum og aflað þannig rík­is­sjóði rúm­lega 130 ma.kr. Þá hefur stofn­unin leitt sam­ein­ingar fjög­urra spari­sjóða inn í Lands­bank­ann hf.“

Í skýrslu­drög­unum komi ekki fram hvaða atriði eða ákvarð­anir í ferl­inu hafi ekki verið í sam­ræmi við eig­enda­stefnu rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki, að mati Banka­sýsl­unnar. „Skortir því á tengsl á milli efn­is­legrar umfjöll­unar um hlut­verk og ákvarð­anir stjórn­valda og hvað hafi farið úrskeiðis í ferl­inu að þessu leyti.“

Varðandi aðra ábend­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar, að tryggja þurfi full­nægj­andi upp­lýs­inga­gjöf og gagn­sæi, þá seg­ist Banka­sýslan sig hafa upp­lýst þing­nefndir með full­nægj­andi hætti. „Stofn­unin áréttar að fram­kvæmd söl­unnar 21.–23. mars sl. var með nákvæm­lega sama hætti og henni var lýst í minn­is­blaði stofn­un­ar­innar þann 20. jan­úar sl. og í kynn­ingum fyrir þing­nefndir þann 21. og 24. febr­úar.“

„Lengra verður vart gengið í kröfum um ex post facto prófun“

Þriðja ábend­ing Rík­is­end­ur­skoð­unar snýr að því að setja þurfi skýr við­mið um mats­kennda þætti í banka­söl­unni. Áfram sem áður telur Banka­sýslan sig hafa gert þetta og að ákvarð­anir hennar hafi verið vel rök­studdar með vísun í lög. „Aftur á móti verður jafn­framt að hafa í huga, eins og ítar­lega hefur verið rakið í athuga­semdum stofn­un­ar­innar, að þegar ráð­ist er í sölu á hlutum í skráðu félagi, og þá sér­stak­lega þegar óvissa ríkir á fjár­mála­mörk­uðum, er eðli þeirra verk­efna sem um ræðir þannig að óger­legt er að vita það fyrir fram hvaða þættir verði veiga­meiri en aðrir í end­an­legri ákvörðun um útboðs­verð, útboðs­magn og úthlutun til fjár­festa. Að því leyti er verk­efnið frá­brugðið mörgum öðrum verk­efnum hins opin­bera, m.a. þar sem um er að ræða hefð­bundna sölu á eignum rík­is­ins.“

[adspot]Rík­is­end­ur­skoðun benti á, í fjórða lagi, að tryggja verði að ákvarð­anir séu skjal­festar og gagn­sæi tryggt. Banka­sýslan telur sig hafa gert það og að salan hafi verið að fullu í sam­ræmi við lög og reglur sem um hana gilda „sem og lýs­ingu þar að lút­andi í minn­is­blaði Banka­sýslu rík­is­ins til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra frá 20. jan­úar sl., grein­ar­gerð ráð­herra frá því í febr­úar sl. og í kynn­ingum Banka­sýslu rík­is­ins fyrir fjár­laga­nefnd 21. febr­úar og efna­hags- og við­skipta­nefnd 24. febr­úar á þessu ári sem og ákvörðun ráð­herra frá 18. mars.“

Þá hafi end­an­legt sölu­verð og stærð eign­ar­hlut­ar­ins ákveðin af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að und­an­gengnu rök­studdu mati Banka­sýslu rík­is­ins.

„Stað­reynd máls­ins er sú að Banka­sýsla rík­is­ins hefur með mál­efna­legum rökum og vísan til gagna rök­stutt sér­hverja ákvörðun sem tekin var í sölu­ferl­inu. Lengra verður vart gengið í kröfum um ex post facto prófun og gagn­sæi.“

Segist hafa lagt „sérstaka áherslu á orðspor íslenska ríkisins“

Í fimmta og síð­asta lagi benti Rík­is­end­ur­skoðun á að fyr­ir­byggja yrði hags­muna­á­rekstra og orð­spors­á­hættu þegar verið er að selja hluti rík­is­ins í bönkum.

Banka­sýslan segir í við­brögðum sínum að hún hafi í allri sinni fram­kvæmd lagt sér­staka áherslu á orð­spor íslenska rík­is­ins sem eig­anda og selj­anda í þeim útboðum sem stofn­unin hefur séð um fyrir hönd ráð­herra. „Banka­sýsla rík­is­ins tekur einnig undir að fyr­ir­byggja þurfi hags­muna­á­rekstra og má til við­bótar við þær rök­semdir sem hér hafa verið raktar benda á að hún fékk til starfa sjálf­stæðan fjár­mála­ráð­gjafa við úrlausn verk­efn­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár