Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri stofn­un­ar­innar. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Velta með bréf í Íslandsbanka þurrkaðist upp á sama tíma og enginn átti að vita af yfirvofandi sölu

Banka­sýsla rík­is­ins full­yrðir að ekk­ert hafi lekið út um að til stæði að selja stóran hlut í Íslands­banka eftir að hún hafði veitt 26 fjár­festum inn­herj­a­upp­lýs­ingar um það.

Velta með hluta­bréf í Íslands­banka var nán­ast engin síð­ustu tvo dag­anna áður en að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, til­kynnti um það eftir lokun mark­aða þann 18. mars 2022 að ríkið myndi selja hlut í bank­anum næst þegar mark­aðs­að­stæður yrði hag­stæðar. Daganna á undan, þann 15. og 16. mars, hafði verið nálægt fimm millj­arða króna velta með bréf í bank­anum dag­lega. Þrátt fyrir að velta með bréf Íslands­banka hafi hrunið þessa daga í mars þá voru umtals­verð við­skipti með bréf í Arion banka, sem er svip­aður að stærð og umfangi og Íslands­banki.

Þann 21. mars, sem var mánu­dagur, var ákveðið að hefja mark­aðs­þreif­ingar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og láta nokkra aðila fá inn­herj­a­upp­lýs­ingar um söl­una. Það var á ábyrgð og for­ræði Banka­sýslu rík­is­ins að gera það. Hún hefur full­yrt að ekk­ert hafi lekið út um sölu­á­formin fyrr en til­kynnt var um þau opin­ber­lega eftir lokun mark­aða dag­inn eftir, þann 22. mars. Samt sem áður voru við­skipti með bréf í Íslands­banka lítil sem engin dag­anna tvo eftir að Banka­sýslan greindi völdum fjár­festum frá því að til stæði að selja rík­is­banka, á sama tíma og velta með bréf í Arion banka var áfram umtals­verð.

Úr skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Úr skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Þegar Rík­is­end­ur­skoðun átt­aði sig á þess­ari stöðu, að velta með bréf í Íslands­banka hefði dreg­ist svona mikið saman sitt­hvoru megin við helg­ina áður en 22,5 pró­sent hlutur í Íslands­banka var seldur til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi, þá taldi stofn­unin að hún þyrfti að vekja athygli Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands á þessu. Það gerði hún á fundi í ágúst síð­ast­liðnum.

Frá þessu er greint í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka sem birt var opin­ber­lega í morgun, í kjöl­far umfjöll­unar Kjarnans og fleiri fjöl­miðla um efni hennar.

Markaðsþreifingar hófust á mánudagsmorgun

Þegar eign er seld með svoköll­uðu til­boðs­fyr­ir­komu­lagi er áhugi fjár­festa á þátt­töku kann­aður með svoköll­uðum mark­aðs­þreif­ingum. Í þeim felst að til­teknir fjár­festar, jafnt inn­lendir sem erlendis, fá inn­herj­a­upp­lýs­ingar um mögu­lega sölu að því gefnu að þeir und­ir­gang­ist ákveðin skil­yrði. Á meðal þeirra skil­yrða er að þeir eigi ekki í við­skiptum með hluti í félag­inu á meðan að þreif­ingar standa yfir og að þeir gæti við­eig­andi trún­aðar.

Mark­aðs­þreif­ingar vegna söl­unnar í Íslands­banka hófust að morgni mánu­dags­ins 21. mars, degi áður en hlut­ur­inn var seldur. Þá var var hald­inn síma­fundur Banka­sýslu rík­is­ins, fjár­mála­ráð­gjafa stofn­un­ar­innar STJ Advisors, og umsjón­ar­að­ila sölu­ferl­is­ins, Citigroup Global Markets Europe AG, J.P. Morgan SE og Íslands­banka., varð­andi hugs­an­lega sölu á hlutum í Íslands­banka. Til­gangur mark­aðs­þreif­ing­anna átti að vera að byggja upp magneft­ir­spurn eftir hlutum. Í kjöl­far fund­ar­ins átti Banka­sýslan annan síma­fund með STJ Advisors sem sam­sinnti til­lögum um að hefja þreif­ing­arnar.

Þekking Bankasýslunnar takmörkuð

Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins fund­aði kl. 11:00 sama dag og sam­þykkti að til­teknum inn­lendum og erlendum aðilum yrðu veittar inn­herj­a­upp­lýs­ingar um mögu­lega sölu að því gefnu að þeir und­ir­geng­ust skil­yrði um trúnað og við­skipta­bann. Banka­sýslan sendi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti tölvu­póst í kjöl­farið þar sem greint var frá fram­vindu máls­ins.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að mark­aðs­þreif­ingar dag­ana 21. og 22. mars 2022 hafi verið á hendi umsjón­ar­að­il­anna þriggja, Citigroup, JP Morgan og Íslands­banka. Banka­sýslan hafði fram að því, sam­kvæmt skýrsl­unni, enga reynslu af mark­aðs­þreif­ingum í til­boðs­fyr­ir­komu­lagi og var þekk­ing hennar á ferl­inu tak­mörkuð. „Gögn máls­ins sýna að vik­urnar fyrir sölu þurfti stofn­unin að leita skýr­inga hjá fjár­mála­ráð­gjafa sínum sem vörð­uðu ýmis grund­vall­ar­at­riði sem fólgin eru í sölu­að­ferð­inni, þ.m.t. um mark­aðs­þreif­ingar. Það er athygl­is­vert í ljósi þeirrar miklu áherslu sem stofn­unin lagði á að sölu­að­ferð­inni yrði beitt þegar áform hennar voru fyrst kynnt í jan­úar 2022. Gögn sem Rík­is­end­ur­skoðun afl­aði við úttekt þessa sýna að Banka­sýslan var mjög háð utan­að­kom­andi ráð­gjöf í sölu­ferl­inu öllu.“

Alls 26 fjárfestar fengu innherjaupplýsingar

Við gerð úttektar sinnar óskaði Rík­is­end­ur­skoðun eftir upp­lýs­ingum frá Banka­sýslu rík­is­ins um þá fjár­festa sem leitað var til við mark­aðs­þreif­ingar og hvernig þeir voru valdir, trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingar þeirra og sam­skipti við þá. „Athygli vakti að Banka­sýslan þurfti að óska eftir umræddum upp­lýs­ingum frá umsjón­ar­að­ilum sölu­ferl­is­ins en bjó ekki yfir þeim sjálf. Alls var um að ræða 26 fjár­festa.“

Eftir að mark­aðs­þreif­ingar hófust var sú hætta fyrir hendi að upp­lýs­ingar um áform Banka­sýsl­unnar um að selja 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka myndu leka út á markað áður en end­an­leg ákvörðun um sölu væri tekin.

Í svörum Banka­sýsl­unnar við fyr­ir­spurnum Rík­is­end­ur­skoð­unar kom fram að af þeim sökum hafi ein­ungis verið ráð­ist í þreif­ingar meðal stórra inn­lendra eft­ir­lits­skylda aðila, sem voru sjö af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins. „Hefðu þær náð til fleiri aðila hefði hætta á leka auk­ist en einnig var sú hætta fyrir hendi að selj­an­leiki hluta­bréfa á mark­aði hefði raskast ef margir og stórir þátt­tak­endur á mark­aði hefðu sam­þykkt að und­ir­gang­ast skil­yrði um að eiga ekki við­skipti með bréfin á meðan á ferl­inu stóð.“

Fullyrt að ekkert hafi lekið en samt tilkynnt til FME

Banka­sýsla rík­is­ins hefur full­yrt að engar upp­lýs­ingar um fyr­ir­ætl­anir hennar hafi lekið út fyrir opin­bera til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar til Kaup­hallar Íslands um söl­una, eftir lokun mark­aða þann 22. mars. Sá angi máls­ins sætir eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands og er ekki undir í úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Í skýrsl­unni kemur hins vegar fram að Rík­is­end­ur­skoðun hafi séð til­efni til að vekja athygli Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á því í ágúst 2022 að velta með bréf Íslands­banka dróst veru­lega saman í aðdrag­anda mark­aðs­þreif­inga sam­an­borið við veltu með hluta­bréf ann­ars skráðs banka af svip­aðri stærð, Arion banka. Fimmtu­dag­inn 17. mars, föstu­dag­inn 18. mars og mánu­dag­inn 21. mars eru afar lítil við­skipti með bréf í Íslands­banka, en umtals­verð með bréf í Arion banka. Á þessum tíma átti eng­inn að vita að salan á Íslands­banka hvenær fyr­ir­huguð og til­kynn­ing fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um að ákveðið yrði, á ein­hverjum tíma­punkti, að halda áfram að selja hluti í bank­anum var ekki send út fyrr en eftir lokun mark­aða á föstu­deg­inum.

Fjár­­­­­­­mála­eft­ir­litið er sem stendur að rann­saka ýmsa þætti söl­unn­­­ar, sér­­­­stak­­­­lega við­­­­skipti sem áttu sér stað í aðdrag­anda söl­unnar, skort á við­skiptum með bréf í Íslands­banka og atferli hluta þeirra sölu­ráð­gjafa sem ráðnir voru til að selja hluti í bank­an­­­­um. Þar er einnig undir hvort söl­unni hafi verið beint að öðrum en hæfum fjár­festum, en alls 207 fengu að kaupa fyrir sam­tals 52,65 millj­arða króna í sölu­ferl­inu. Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur einnig fram að hægt hafi verið að fá að minnsta kosti mark­aðs­verð fyrir þann 22,5 pró­sent hlut sem var seldur, en ákveðið var að halda 4,1 pró­sent afslætti inni til að styggja ekki erlenda fjár­festa. Það er í and­stöðu við lög­bundin mark­mið við sölu eign­ar­hluta í bönkum rík­is­ins og gerði það að verkum að kaup­verðið var að minnsta kosti 2,25 millj­örðum króna lægra en það gat verið. Þessi til­teknu vafa­at­riði sæta eft­ir­liti Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands.

Unnur Gunnarsdóttir er yfir Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.
Unnur Gunn­ars­dóttir er yfir Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands.

Þá er eft­ir­litið með það á sinni könnu að rann­saka hugs­an­lega hags­muna­á­rekstra hjá umsjón­ar­að­ilum, sölu­ráð­gjöfum eða sölu­að­ilum, en starfs­menn ýmissa inn­lendra ráð­gjafa og sölu­að­ila, eða aðilar þeim tengdir, keyptu sjálfir í útboð­inu.

Ekk­ert hefur verið gert opin­bert um stöðu rann­­sóknar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins en allir fimm inn­­­­­lendu sölu­ráð­gjaf­­­arnir hafa fengið fyr­ir­­­spurnir frá Fjár­­­­­mála­eft­ir­liti Seðla­­­banka Íslands vegna rann­­­sóknar þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár