Bankasýslan ósammála Ríkisendurskoðun og segir skýrslu „afhjúpa takmarkaða þekkingu“

Banka­sýsla rík­is­ins hafnar gagn­rýni sem Rík­is­end­ur­skoðun hefur sett fram á und­ir­bún­ing og fram­kvæmd á sölu á hlut í Íslands­banka. Stofn­unin telur Rík­is­end­ur­skoðun sýna „tak­mark­aða reynslu af sölu hluta­bréfa“ og ætlar að birta málsvörn á vef­síðu sinni.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri stofn­un­ar­innar. Mynd: RÚV

„Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar eru ábend­ingar um atriði í und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd söl­unnar sem að mati stofn­un­ar­innar hefðu betur mátt fara. Banka­sýsla rík­is­ins er ósam­mála Rík­is­end­ur­skoðun um flest þessi atriði sem sum hver afhjúpa tak­mark­aða þekk­ingu stofn­un­ar­innar á við­fangs­efn­inu.“

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í til­kynn­ingu frá Banka­sýslu rík­is­ins sem send var til fjöl­miðla síð­degis í dag.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­un­ar, sem birt var í dag, var sölu­ferlið á Íslands­banka gagn­rýnt harka­lega. Stofn­unin segir fjöl­þætta ann­marka hafa verið á söl­unni. Í nið­ur­stöðu hennar segir að standa hefði átt betur að söl­unni og hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­an­um. Ákveðið var að selja á und­ir­verði til að ná fram öðrum mark­miðum en lög­bundn­um. Hug­lægt mat réð því hvernig fjár­festar voru flokk­aðir og orð­spors­á­hætta af sölu­ferl­inu var van­met­in.

[adspot]Banka­sýslan segir hins vegar að fjár­hags­leg nið­ur­staða sölu­ferl­is­ins á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka hafi verið rík­is­sjóði afar hag­felld, en fyrir hlut­inn feng­ust 52,65 millj­arðar króna. Ekkert í stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar hnekki því mati, að sögn Banka­sýsl­unnar.

Hún gengst þó við þeirri gagn­rýni sem fram kemur í skýrsl­unni að betur hefði mátt standa að kynn­ingu á útboð­inu til almenn­ings en tekur þó fram að fram­kvæmd söl­unnar hafi verið kynnt vel fyrir Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og við­eig­andi þing­nefndum.

Segir ekki hafa skort á gagnsæi eða upplýsingamiðlun

Banka­sýslan hafnar því mati Rík­is­end­ur­skoð­unar að til­boðs­fyr­ir­komu­lagið, sem beitt var við söl­una á hlutnum til 207 fjár­festa í lok­uðu útboði, sam­rým­ist illa starfs­háttum opin­berrar stjórn­sýslu og seg­ist ekki sjá að skort hafi á gagn­sæi og upp­lýs­inga­miðlun í aðdrag­anda söl­unnar.

Þá segir stofn­unin að því sé rang­lega haldið fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar að Banka­sýslan hafi ekki verið nægi­lega með­vituð um heild­ar­eft­ir­spurn fjár­festa þegar ákvörðun um leið­bein­andi loka­verð var tekin. „Full­yrð­ing Rík­is­end­ur­skoð­unar um þetta atriði sam­ræm­ist ekki gögnum máls­ins.“

[links]Á meðal þess sem Rík­is­end­ur­skoðun gagn­rýndi var að hægt hefði verið að fá hærra verð fyrir hlut­inn í bank­anum en það sem selt var á. Til­boð bár­ust í allan eign­ar­hlut­inn á dagsloka­gengi Íslands­banka þann dag, 122 krónur á hlut, eða á hærra verð­i, en samt var ákveðið að selja á 117 krónur á hlut sem var 2,25 millj­örðum króna undir dagsloka­geng­inu. Sam­kvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar voru skýr merki um að end­an­legt sölu­verð hafi „fyrst og síð­ast ráð­ist af eft­ir­spurn erlendra fjár­festa“ og að frek­ari hækkun gæti haft nei­kvæð áhrif á þróun hluta­bréfa­verðs bank­ans að sölu lok­inni.

Þessu hafnar Banka­sýslan og segir að hvers kyns hug­myndir um um hærra verð hefðu teflt útboð­inu í tví­sýnu, „Umsjón­ar­að­ila útboðs­ins, inn­lendir sem erlendir, auk sjálf­stæðra ráð­gjafa Banka­sýslu rík­is­ins, voru allir sam­mála um að loka­verð skyldi vera 117 krónur á hlut.“

Verðið, 4,1 pró­sent undir mark­aðsvirði, hafi auk þess verið hag­stætt í alþjóð­legum sam­an­burði.

Afstaðan endurspegli „takmarkaða reynslu af sölu hlutabréfa“

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar er á það bent að Banka­sýsla rík­is­ins hefði þurft að ákveða áður en sölu­ferlið hófst með hvaða hætti skyldi leggja mat á til­boð ef önnur atriði en hæsta verð áttu að ráða. Æskilegt hefði jafn­framt verið að slík við­mið væru skráð og að fyrir lægi hvernig ætti að beita þeim.

[adspot]Banka­sýsla rík­is­ins seg­ist ekki geta tekið undir þetta. „Afstaða Rík­is­end­ur­skoð­unar sýn­ist hér end­ur­spegla tak­mark­aða reynslu af sölu hluta­bréfa [...] Engin rök hníga að því að fram­kvæmd Banka­sýslu rík­is­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi í þessum efnum, fremur en öðrum, farið í bága við lög eða góða stjórn­sýslu­hætti. Stað­reynd máls­ins er sú að Banka­sýsla rík­is­ins hefur með mál­efna­legum rökum og vísan til gagna rök­stutt sér­hverja ákvörðun sem tekin var í sölu­ferl­inu.“

Ætla að birta athugasemdir sínar á vefsíðu sinni

Banka­sýsla rík­is­ins seg­ist hafa í skrif­legum athuga­semdum til Rík­is­end­ur­skoð­unar við drög að skýrslu stofn­un­ar­innar gert ítar­lega grein fyrir sjón­ar­miðum sínum. „Þótt tekið hafi verið mið af ýmsum athuga­semdum í end­an­legri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar er óheppi­legt, og varla í anda góðra stjórn­sýslu­hátta, að stofn­unin skuli ekki gera betur grein fyrir sjón­ar­miðum Banka­sýslu rík­is­ins um ein­stök atriði en raun ber vitni.“

Banka­sýslan ætlar því að birta athuga­semdir sínar við skýrsl­una opin­ber­lega á vef­síðu stofn­un­ar­innar innan tíðar. Vert er að taka fram að rík­is­stjórnin hefur þegar boðað að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár