„Ágætis verð“ segir Bjarni – Krafa frá stjórnarandstöðunni um rannsóknarnefnd

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa margir brugð­ist við skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um banka­söl­una með því að ítreka fyrri kröfur um skipun rann­sókn­ar­nefndar. Þing­maður Pírata kallar eftir því að Bjarni Bene­dikts­son stígi til hliðar sem fjár­mála­ráð­herra.

Bjarni Benediktsson og ýmsir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa tjáð sig um skýrslu Ríkisendurskoðunar í dag.
Bjarni Bene­dikts­son og ýmsir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa tjáð sig um skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag. Mynd: Samsett

Stjórn­mála­menn hafa það sem af er degi brugð­ist við inni­haldi skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu á 22,5 pró­senta hlut í Íslands­banka, sem gerð var opin­ber í morgun eftir að hafa verið til nokkuð ítar­legrar umfjöll­unar í Kjarn­anum og fleiri fjöl­miðlum sem komu höndum yfir skýrsl­una frá því í gær­kvöldi.

Farið verður yfir efni skýrsl­unnar á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar síðar í dag. Kjarninn tók saman við­brögð þing­manna sem komið hafa fram í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum það sem af er degi.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra (D)

„Þessi sala er ekk­ert hafin yfir gagn­rýni en mér finnst eftir sem áður að hún hafi tek­ist vel,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra við RÚV.[links]

Samkvæmt því sem kemur fram á vef RÚV sagði Bjarni að stóra myndin skipti mestu, að feng­ist hefði fjöl­breytt eign­ar­hald og „ágætis verð“ fyrir hlut rík­is­ins í bank­anum. Alltaf væri hægt að horfa í bak­sýn­is­speg­il­inn og spyrja sig hvort ekki hefði verið hægt að gera betur og fá hærra verð.

„Í mínum huga er þetta bara ágætis verð og það segir ekk­ert annað í skýrsl­unni en að svo virð­ist sem fjár­hags­legra hags­muna rík­is­ins hafi verið ágæt­lega gætt,“ er haft eftir Bjarna á vef RÚV.

Kristrún Frostadóttir (S)

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði við Vísi að skýrslan væri svört að hennar mati.

„Ábyrgðin er ráð­herr­ans. Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar er áfell­is­dómur yfir verk­lagi ráð­herra við sölu Íslands­banka. Hún stað­festir það sem við bentum á í vor,“ sagði Kristrún og bætti við að allt benti til þess að að lögum um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum hefði ekki verið fylgt hvað varð­aði hæsta verð og jafn­ræði.

„Samkvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kann sleif­ar­lag ráð­herra að hafa skaðað hags­muni rík­is­sjóðs. Og jafn­ræðis var ekki gætt. Fyrir vikið er traust til stjórn­valda og til fjár­mála­kerf­is­ins laskað. Það er alvar­legt,“ sagði Kristrún við Vísi.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttur (P)

Þór­hildur Sunna sagði í sam­tali við RÚV að hún teldi skýrsl­una „lýsa stór­felldu gáleysi bæði fjár­mála­ráð­herra og Banka­sýslu rík­is­ins gagn­vart eigum almenn­ings í land­inu, gagn­vart hags­munum rík­is­sjóðs“.

„Það er algjör­lega aug­ljóst að hér var ekki nógu vel vandað til verka. Þær aðfinnslur og athuga­semdir sem eru settar fram við þessa fram­kvæmd alla eru geysimargar það er erfitt að velja úr hvað er verst. En fyrst og fremst og kannski mik­il­væg­ast af þess öllu er að þetta und­ir­strikar enn og aftur nauð­syn þess að við fáum rann­sókn­ar­nefnd Alþingis í málið til þess að fara yfir þá þætti sem Rík­is­end­ur­skoðun segir sjálf að hún geti ekki farið yfir, það er laga­leg ábyrgð í mál­inu og stöðu ráð­herra,“ sagði Þór­hildur Sunna við RÚV.

[adspot]

Sigmar Guðmundsson (C)

Í sam­tali við Vísi kall­aði Sigmar skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar áfell­is­dóm yfir sölu­ferl­inu og sagði að það sem væri einna verst væri ef til vill það að „nið­ur­staðan óhjá­kvæmi­lega leiðir okkur að því að það verður mjög erfitt að selja frek­ari eign­ar­hluti í Íslands­banka í náinni fram­tíð. Vegna þess að það er allt traust farið.“

„Það þarf að stofna og setja á lagg­irnar rann­sókn­ar­nefnd Alþingis,“ sagði Sigmar við Vísi. Í sam­tali við mbl.is ítrek­aði þing­mað­ur­inn að þörf væri rann­sókn­ar­nefnd vegna söl­unnar.

„Mér finnst þessi skýrsla eig­in­lega mun dekkri en að maður átti von á,“ sagði Sig­mar við mbl.is.

Björn Leví Gunnarsson (P)

Nokkuð hefur verið fjallað um trún­að­ar­brest innan stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í kjöl­far þess að fjöl­miðlar tóku efni skýrsl­unnar til umfjöll­unar áður en hún hafði verið kynnt í nefnd­inni og birt opin­ber­lega.

Á for­síðu Morg­un­blaðs­ins í dag var haft eftir Birgi Ármans­syni for­seta Alþingis að það væru „mikil von­brigði“ að fjöl­miðlar hefðu komið höndum yfir skýrsl­una.

Björn Leví þing­maður Pírata skrif­aði á Facebook að trún­aður yfir efni skýrslna frá Rík­is­end­ur­skoðun væri hugs­aður til þess að þing­menn hefðu tæki­færi til að kynna sér efni máls áður en fjöl­miðlar færu að krefja þá svara.

„Æi, þetta er nú ekk­ert rosa­legur trún­aður. Þessi "trún­aður" var settur upp fyrir þing­menn þannig að það væri ekki verið að reka hljóð­nema upp í and­litið á þeim áður en þau hefðu tæki­færi til þess að lesa skýrsl­una.

Áður fyrr birti rík­is­end­ur­skoðun bara skýrsl­una strax opin­ber­lega þegar hún var til­búin.

Þannig að þetta er ótt­ar­legt væl í for­seta þings­ins þarna. Ég hef ekki orðið mikið var við fréttir með við­tölum við ólesna þing­menn hvort sem er,“ skrif­aði Björn Leví í morgun.

Fjármálaráðherra eigi að stíga til hliðar

Í sam­tali við Frétta­blaðið kom Björn Leví því svo á fram­færi að hann vildi að Bjarni Bene­dikts­son stigi til hliðar á meðan spurn­ingum væri enn ósvarað um söl­una.

„Mér finnst rosa­lega aug­ljóst að fjár­mála­ráð­herra á ekki að vera neins staðar þar sem hann er mögu­lega fyrir ein­hverju ferli í rann­sókn­inni á þessu,“ sagði Björn Leví við Frétta­blaðið og bætti við að aug­ljóst væri ráð­herra hefði brugð­ist sinni skyldu, sinni ábyrgð, gagn­vart þeirri ákvarð­ana­töku sem hann hefði komið að.

Helga Vala Helgadóttir (S)

Helga Vala þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði í færslu á Twitter fyrr í dag að það væri „bara einn stjórn­mála­maður sem hefur hag af því að leka banka­skýrsl­unni fyrir kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar sól­ar­hringi seinna“ en til­greindi ekki hvaða stjórn­mála­mann hún átti við.

„Mig grunar að við fáum að heyra mjög oft næstu daga að við þurfum öll að læra af þessu…“ hafði þing­mað­ur­inn áður sagt á sam­fé­lags­miðl­inum í gær­kvöldi, eftir að fyrstu fréttir af efni skýrsl­unnar bár­ust út.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P)

Arndís Anna þing­maður Pírata sagði í sam­tali viðmbl.is í morgun að skýrslan væri „kannski fyrst og fremst áhuga­verð að því leyti að rík­is­end­ur­skoð­andi er að stað­festa það að hann hef­ur mjög tak­mark­aðar vald­heim­ild­ir og tak­markað hlut­verk í þessu“ og sagði ljóst að skipa þyrfti rann­sókn­ar­nefnd.

„Rík­is­end­ur­skoð­andi er bara að vinna sína vinnu en við vor­um búin að benda á það ít­rekað að það væri ekki nóg að rík­is­end­ur­skoð­andi færi yfir þetta. Það hefði átt að setja rann­sókn­ar­nefnd í gang strax eins og við fór­um fram á,“ sagði Arn­dís Anna við mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár