Auknar áhyggjur af spillingu Donalds Trump í embætti

Bandaríkja­forseti hefur keypt hlutabréf í félögum sem ákvarðanir hans og orð hafa áhrif á. Dómsmála­ráðherra hans setur saman bótasjóð og refsileysi fyrir Trump­fjöl­skylduna varðandi skattsvik hefur verið innleitt.

Gagnrýna spillingu
Gagnrýna spill­ingu Chuck Schumer, demókrati frá New York og leið­togi minni­hlut­ans í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings, er hér á frétta­manna­fundi eftir viku­legan stefnu­mót­un­ar­há­deg­is­verð með demókrötum í öld­unga­deild­inni í þing­hús­inu í Washington, DC í gær. Forysta demókrata í öld­unga­deild­inni ræddi ýmis mál, þar á meðal nýlegan stuðn­ing Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta í auka­kosn­ingum í Texas og yfir­heyrslu Todds Blanch, starf­andi dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, hjá und­ir­nefnd fjár­laga­nefndar öld­unga­deild­ar­innar, vegna umdeildra mála sem sögð eru til marks um hags­muna­á­rekstur for­set­ans. Mynd: AFP

Donald Trump Bandaríkja­forseti átti í viðskiptum með hlutabréf í 3.700 tilfellum upp á ígildi samtals milljarða króna á síðasta ársfjórðungi.

Í umfjöllun Bloomberg kemur fram að verðbréfa­miðlarar á Wall Street séu slegnir yfir umfangi viðskiptanna. Fyrri forsetar hafa á síðustu áratugum annað hvort sett eignir sínar í sjóð, losað þær eða skapað armslengd með öðrum hætti. Varað er við því að alvarlegur hagsmuna­árekstur eigi sér stað þegar forseti getur hagnast persónu­lega af ákvörðunum sínum í stöðu sem er í umboði almennings. 

Til viðbótar hefur dómsmála­ráðherra Trumps ákveðið að Trump-fjöl­skyldan fái friðhelgi vegna skatta­mála.

Keypt í félögum undir áhrifum af forsetavaldi

Viðskipta­reikningur Trumps keypti í félögum eins og Nvida, Oracle, Microsoft, Boeing og Costco. Í hverju og einu félagi keypti hann fyrir um milljón Bandaríkja­dala, eða um 124 milljónir íslenskra króna.

Á sama tíma heldur tengda­sonur Trumps utan um hundruð milljarða viðskipti í Katar, Sádí-Arabíu …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Margur verður af aurum api eins og segir í Hávamálum, en er ekki almenningur sem lætur það viðgangast að örfáar hræður geti eignast ótakmarkaðann auð sem eru aparnir, með fullri virðingu fyrir öpum.
    0
  • Friðrik Helgason skrifaði
    Kemur alltaf betur og betur í ljós hversu mikill drullusokkur forseti BNA er
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár