Héraðssaksóknari ræðst í húsleit hjá Eimskip vegna skipanna sem enduðu í Indlandi

Hér­aðs­sak­sókn­ara hefur verið veitt heim­ild til hús­leitar á starfs­stöðvum Eimskips á grund­velli úrskurðar hér­aðs­dóms. Hús­leitin teng­ist rann­sókn á meintum brotum á lögum sem tengj­ast sölu tveggja flutn­inga­skipa í brota­járn til Indlands.

Sala tveggja flutningaskipa í brotajárn til Alang í Indlandi er ástæða þess að héraðssaksóknari hefur fengið húsleitarheimild hjá Eimskip.
Sala tveggja flutn­inga­skipa í brota­járn til Alang í Indlandi er ástæða þess að hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fengið hús­leit­ar­heim­ild hjá Eimskip. Mynd: Skjáskot/RÚV

Hér­aðs­sak­sókn­ara hefur verið veitt heim­ild til hús­leitar á starfs­stöðvum Eim­skipa­fé­lags Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. á grund­velli úrskurðar hér­aðs­dóms. Frá þessu greindi Eimskip í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar kl. 14 í dag.

Í til­kynn­ingu Eimskips segir að emb­ættið hafi „óskað eftir afmörk­uðum gögnum vegna sölu skip­anna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019 sem Umhverf­is­stofnun kærði til hér­aðs­sak­sókn­ara 2020“ og að engir ein­stak­lingar hafi rétt­ar­stöðu í mál­inu.

Eimskip seg­ist í til­kynn­ingu sinni vera að vinna að því að afla þeirra upp­lýs­inga sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur óskað eftir. Málið kom upp á yfir­borðið í umfjöllun Kveiks í sept­em­ber í fyrra.

Þá var sagt frá því að Eimskip hefði selt skipin tvö til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­­­hæfir sig í að vera milli­­­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­­ari en í Evr­­­­ópu.

Þar eru skip oft rifin í flæð­­­­ar­­­­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið. Þá vinna starfs­­­­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot.

Ein helsta ástæðan fyrir því að skip eru flutt á þessar slóð­ir, í umræddu til­viki í skipa­kirkju­garð í Alang á Ind­landi, er sú að það er greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í nið­ur­rif þar en í Evr­ópu. Það útskýrist af því að í Evr­ópu þarf að greiða laun sam­kvæmt kjara­samn­ing­um, við­halda öryggi starfs­manna á vinnu­stöðum og mæta lög­gjöf frá árinu 2018 sem leggur bann við því að skip yfir 500 brúttó­­tonnum séu rifin ann­­ars staðar en í vott­uðum end­­ur­vinnslu­­stöðv­­­um.

Allt að 25 milljóna króna sektarheimild

Umhverf­is­stofnun kærði meint brot Eim­skips á lögum um með­­höndlun úrgangs til hér­að­sak­sókn­ara og fjallað var um það fyrir rösku ári síðan hvernig málið allt rímar ekki við þær áherslur um sam­fé­lags­lega ábyrgð í fjár­fest­ingum sem stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem margir eru á meðal stærstu eig­enda Eimskips, hafa und­ir­geng­ist.

„Eins og kom fram í til­kynn­ingum frá félag­inu þann 25.9.2020 og 30.9.2020 þá telur félagið að farið hafi verið eftir lögum og reglum í sölu­ferl­inu á skip­unum. Eimskip þykir málið mjög leitt og lítur það alvar­legum augum enda leggur félagið, stjórn­endur þess og starfs­fólk mikla áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð í störfum sínum og hefur lengi hugað að umhverf­is­málum í sinni starf­semi,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Eimskip.

Þar segir einnig að félag­inu hafi verið tjáð að til rann­sóknar sé hvort hátt­semi félags­ins „geti varðað við lög númer 55/2003 um með­höndlun úrgangs og reglu­gerða setta á grund­velli þeirra.“

„Félaginu er ómögu­legt að leggja mat á mögu­leg fjár­hags­leg áhrif en ákvæði lag­anna hafa að geyma heim­ildir til beit­ingu við­ur­laga án þess að vísað sé til sér­stakra fjár­hæða. Eina fjár­hæðin sem lögin gefa vís­bend­ingar um er heim­ild Umhverf­is­stofn­unar til að beita lög­að­ila stjórn­valds­sektum að fjár­hæð allt að 25 millj­ónir króna,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár