Eimskip biðst afsökunar á að skip hafi verið endurunnin í Indlandi

Eimskip segir að sér þyki leitt að tvö skip félags­ins hafi endað í end­ur­vinnslu í Indlandi, þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­ari en í Evr­­­ópu.

Eimskip hefur sent til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands þar sem félagið biðst afsök­unar á því að tvö skip sem áður voru í eigu Eimskips, Goðafoss og Laxfoss, hafi endað í end­ur­vinnslu í Indlandi. Þar er eru kröfur um aðbúnað starfs­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­ari en í Evr­­­ópu. 

[links]Í til­kynn­ingu Eimskip segir að félag­inu þyki „málið mjög leitt og lítur það alvar­legum augum enda leggur félagið, stjórn­endur þess og starfs­fólk mikla áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð í störfum sínum og hefur lengi hugað að umhverf­is­málum í sinni starf­semi. Þó félagið telji að farið hafi verið eftir lögum og reglum í sölu­ferl­inu er ljóst að þar sem skipin voru komin til ára sinna hefði mátt gera rík­ari kröfur gagn­vart kaup­and­anum. Það má gera með því að setja ákvæði í samn­ing um söl­una þess efnis að ef til þess kæmi að skipin færu í end­ur­vinnslu þá yrði það gert í end­ur­vinnslu­stöð sem sam­ræm­ist Evrópu stöðlum. Eimskip biðst afsök­unar á að svo hafi ekki verið gert.“

Þar er einnig haft eftir Vilhelm Má Þor­steins­syni, for­stjóra Eimskips, að ein­hugur sé á meðal stjórnar og stjórn­enda félags­ins „að draga lær­dóm af mál­inu og aðlaga núver­andi sam­fé­lags- og umhverf­is­stefnu til að tryggja að svona atvik, sem sam­ræm­ist ekki þeim gildum og áherslum sem Eimskip starfar eftir, komi ekki fyrir aftur.“

Unnið sé að því að hálfu félags­ins að afla allra gagna og upp­lýs­inga um málið og mun félagið í kjöl­farið yfir­fara verk­ferla og marka sér skýr­ari stefnu varð­andi það hvernig eigin skipa­flota er stýrt og við­haldið með til­liti til ald­urs og sölu.

Seld til sérhæfðs milliliðs

Fjallað var um nið­ur­rif skip­ana í skipa­kirkju­garð­inum í Alang á Indlandi í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á fimmtu­dag. Þar kom fram að skipin tvö hefðu verið seld til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­­hæfir sig í að vera milli­­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­­ur­rifs­ins eru mun lak­­­ari en í Evr­­­ópu.

[adspot]Þar eru skip oft rifin í flæð­­­ar­­­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið. Þá vinna starfs­­­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot. Ástæðan fyrir því að skip eru seld til nið­ur­rifs í Indlandi er að þar fæst allt að fjórum sinnum betra verð fyrir þau en ef skipin eru end­urunnin í Evrópu þar sem staðlar eru hærri, unnið er eftir kjara­samn­ingum og kröfur um öryggi starfs­manna mun meiri.

Þriðja tilkynningin til Kauphallar

Afsök­un­ar­beiðnin er þriðja til­kynn­ingin sem Eimskip hefur sent frá sér til Kaup­hallar vegna máls­ins. Fyrst sendi félagið slíka áður en að Kveiks­þátt­ur­inn var sýndur, en eftir að frétta­menn hans höfðu óskað eftir við­tali við stjórn­endur Eimskips. Í þeirri til­kynn­ingu sagð­ist Eimskip ekki hafa tekið ákvörðun um að senda skipin tvö til Ind­lands í end­ur­vinnslu, heldur hafi það verið ákvörðun GMS, sem keypti skipin af Eim­skip.

Í næstu til­kynn­ingu, sem send var dag­inn eftir að þáttur Kveiks fór í loftið, var þessi afstaða ítrekuð. Þar sagði enn fremur: Eim­skip hefur aflað upp­lýs­inga frá Umhverf­is­stofnun sem hefur nú upp­lýst félagið að stofn­unin hafi í vik­unni kært félagið til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara sem lög­að­ila vegna meintra brota á lögum um með­höndlun úrgangs. Eim­skip hafði engar upp­lýs­ingar um þá kæru fyrr en eftir sam­tal við Umhverf­is­stofnun fyrr í dag og stofn­unin afl­aði engra gagna frá Eim­skip vegna máls­ins. Eim­skip hafnar þessum ásök­unum enda fylgdi félagið í einu og öllu lögum og reglum í þessu sölu­ferli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár