Mynd: Eimskip

Þrír af stærstu eigendum Eimskips með vinnubrögð félagsins til skoðunar

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga meiri­hluta hluta­fjár í Eimskip. Þrír stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir segj­ast allir vera með þau vinnu­brögð félags­ins, sem lýst var í frétta­skýr­inga­þætti á fimmtu­dag, til skoð­unar.

Þeir þrír líf­eyr­is­sjóðir sem eiga stærstan hlut í Eimskip, að und­an­skildum stærsta eig­and­anum Samherja Holding, hafa allir tekið end­­ur­vinnslu tveggja skipa, Laxfoss og Goðafoss, í skipa­n­ið­­ur­rifs­­stöð í Ind­landi sem upp­­­fyllir ekki evr­­ópskar reglur um end­­ur­vinnslu skipa til skoð­unar hjá sér. Einn þeirra sagði í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að „vinnu­brögðin sem lýst var í þætt­inum ríma illa við stefnu sjóðs­ins um ábyrgar fjár­fest­ingar.“

Fjallað var um málið í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á fimmtu­dag.

Skipin tvö voru seld í des­em­ber í fyrra til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­­hæfir sig í að vera milli­­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­­manna og umhverf­is­á­hrif nið­­ur­rifs­ins eru mun lak­­ari en í Evr­­ópu. Þar eru skip oft rifin í flæð­­ar­­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið. Þá vinna starfs­­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot.

Lax­foss og Goða­­foss voru flutt í skipa­­kirkju­­garð­inn í Alang á Ind­landi í maí síð­­ast­liðn­­­um. Í þætti Kveiks kom fram að ein af ástæðum fyrir því að þetta þætti eft­ir­­sókn­­ar­vert væri sú að í Asíu sé greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í nið­­ur­rif en í Evr­­ópu. Að minnsta kosti 137 starfs­­menn í Alang hafa lát­ist við störf síð­­ast­lið­inn ára­tug, sam­­kvæmt því sem kom fram í Kveik.

Fram­ferði Eimskip hefur þegar verið kært til emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara af Umhverf­is­stofnun. Eimskip sendi frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í gær þar sem félagið hafn­aði því að hafa brotið lög.

Samherji stærsti eigandinn

Stærsti eig­andi Eim­skips er Sam­herji Holding, annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem heldur utan um erlenda starf­semi hennar og eign­ar­hlut­inn í Eim­skip, með 27,06 pró­sent hlut. Stjórn­ar­for­maður Eim­skips er Bald­vin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Sam­herja. Bald­vin á nú 20,5 pró­sent hlut í Sam­herja hf.,, hinu félag­inu sem myndar Sam­herj­a­sam­stæð­una. Sam­herji er með tvö af fimm stjórn­ar­sætum í Eim­skip auk þess sem sam­steypan styður einn óháðan stjórn­ar­mann óskorað til stjórn­ar­setu. Í jan­úar 2019 var svo ráð­inn nýr for­stjóri Eim­skips, Vil­helm Már Þor­­­­steins­­­­son. Hann er frændi stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­manns­ins og tveggja helstu eig­enda Sam­herja.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga meira en helm­ing í Eim­skip. Stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Gildi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Birta eiga sam­tals 43,2 pró­sent í skipa­fé­lag­inu.

Tekur málið alvarlega

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er næst stærsti eig­andi Eimskips og á alls 14,7 pró­sent hlut í Eimskip. Sjóð­ur­inn hefur und­an­farin ár lagt aukna áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð við fjár­fest­ingar. Er sjóð­ur­inn t.d. aðili að UN-PRI, sam­tökum á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem og FESTU-Sam­fé­lags­á­byrgð fyr­ir­tækja.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á sjóð­inn og spurði hvernig efni Kveiks­þátt­ar­ins rím­aði við sam­fé­lags­lega ábyrgar áherslur hans.

Björgólfur Jóhannsson og Þorsteinn Már Baldvinsson eru forstjórar Samherja, stærsta eiganda Eimskips.
Björgólfur Jóhanns­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son eru for­stjórar Samherja, stærsta eig­anda Eimskips.

Í svari hans sagði að líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna taki „þetta mál alvar­lega og hefur tekið til skoð­unar.“ Þar sagði enn fremur að ítar­legra svar verði sent eftir helgi.

Vinnubrögðin ríma illa við stefnu sjóðsins

Gildi líf­eyr­is­sjóður er þriðji stærsti eig­andi Eimskips með 13,43 pró­sent eign­ar­hlut. Hann hefur und­an­farin ár lagt aukna áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð við fjár­fest­ingar. Í hlut­hafa­stefnu sjóðs­ins segir m.a.: „Gildi-líf­eyr­is­sjóður leggur áherslu á að þau félög sem hann fjár­festir í fylgi lög­boðnum og góðum stjórn­ar­háttum og gefi út full­nægj­andi stjórn­ar­hátta­yf­ir­lýs­ingar, standi vörð um rétt­indi hlut­hafa, fylgi lögum og reglum og gæti að sam­fé­lags­legri ábyrgð, umhverf­is­málum og við­skiptasið­ferði.“

Í svari hans við fyr­ir­spurn Kjarnans, um hvernig það sem fram kom í þætti Kveiks rími við áherslur hans um sam­fé­lags­leg ábyrgð við fjár­fest­ingar, sagði að „vinnu­brögðin sem lýst var í þætt­inum ríma illa við stefnu sjóðs­ins um ábyrgar fjár­fest­ingar.“ Málið yrði tekið til skoð­unar innan Gildis og sjóð­ur­inn biði eftir við­brögðum Eimskips.

Gerir kröfu um ábyrgð gagnvart umhverfislegum þáttum

LSR er fjórði stærsti eig­andi Eimskips. Sam­an­lagt eiga A og B-deildir sjóðs­ins 8,97 pró­sent í félag­inu. LSR hefur und­an­farin ár lagt aukna áherslu á sam­fé­lags­lega ábyrgð við fjár­fest­ingar. Í áherslum hans, sem birtar eru á heima­síðu sjóðs­ins, segir m.a. að „mik­il­vægi sam­fé­lags­legs hlut­verks líf­eyr­is­sjóð­anna verði haft að leið­ar­ljósi í allri starf­semi þeirra.“

Í svari hans við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að við mat á fjár­fest­ingum geri LSR kröfu til þess að félög, sem sjóð­ur­inn fjár­festir í, sýni ábyrgð gagn­vart félags­legum þáttum, umhverf­is­legum þáttum og að starfað sé í sam­ræmi við við­ur­kenndar leið­bein­ingar um stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja. „LSR hefur sett sér stefnu um ábyrgar fjár­fest­ingar og í henni kemur m.a. fram að LSR hvetur þau fyr­ir­tæki sem sjóð­ur­inn fjár­festir í að sýna gagn­sæi þegar kemur að umhverf­is­legum þáttum, félags­legum þáttum og stjórn­ar­háttum. Í kjöl­far umfjöll­unar frétta­skýr­ing­ar­þátt­ar­ins Kveiks mun sjóð­ur­inn óska eftir skýr­ingum frá Eimskip vegna þess sem þar kom fram.“

Kjarninn sendi einnig fyr­ir­spurn á Birtu líf­eyr­is­sjóðs, sem er fimmti stærsti eig­andi Eimskips, í gær­morgun sem var efn­is­lega sú sama og hinum sjóð­unum barst. Ekkert svar hefur borist frá honum enn sem komið er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár