Eimskip staðfestir að félagið hafi verið kært til héraðssaksóknara

Eimskip hafnar ásök­unum um að hafa brotið lög í tengslum við end­ur­vinnslu tveggja skipa félags­ins í Indlandi. Eimskip seg­ist ekki hafa komið að ákvörðun um end­ur­vinnslu skip­anna tveggja.

Eimskip segir að félagið hafi ekki komið nálægt þeirri ákvörðun að selja tvö skip sem höfðu verið í eigu þess, Goðafoss og Laxafoss, í end­ur­vinnslu í Indlandi. Eimskip segir enn fremur að félagið hafi ekki komið að ákvörðun um það hvernig skipin voru end­urunnin.

Í til­kynn­ingu til Kaupa­hallar Íslands segir: „Eimskip hefur aflað upp­lýs­inga frá Umhverf­is­stofnun sem hefur nú upp­lýst félagið að stofn­unin hafi í vik­unni kært félagið til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara sem lög­að­ila vegna meintra brota á lögum um með­höndlun úrgangs. Eimskip hafði engar upp­lýs­ingar um þá kæru fyrr en eftir sam­tal við Umhverf­is­stofnun fyrr í dag og stofn­unin afl­aði engra gagna frá Eimskip vegna máls­ins. Eimskip hafnar þessum ásök­unum enda fylgdi félagið í einu og öllu lögum og reglum í þessu sölu­ferli.“

Í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV í gær­kvöldi var fjallað um end­ur­vinnslu skip­anna tveggja í skipa­nið­ur­rifs­stöð í Ind­landi sem upp­fyllir ekki evr­ópskar reglur um end­ur­vinnslu skipa.

[adspot]Skipin tvö voru seld í des­em­ber í fyrra til fyr­ir­tækis sem heitir GMS, og sér­hæfir sig í að vera milli­liður sem kaupir skip til að setja þau í nið­ur­rif í Asíu þar sem kröfur um aðbúnað starfs­manna og umhverf­is­á­hrif nið­ur­rifs­ins eru mun lak­ari en í Evr­ópu. Þar eru skip oft rifin í flæð­ar­mál­inu og ýmis spilli­efni látin flæða út í umhverf­ið. Þá vinna starfs­menn þar við svo erf­iðar aðstæður að þær hafa verið kall­aðar mann­rétt­inda­brot.

Laxfoss og Goða­foss voru flutt í skipa­kirkju­garð­inn í Alang á Ind­landi í maí síð­ast­liðn­um. Í þætti Kveiks kom fram að ein af ástæðum fyrir því að þetta þætti eft­ir­sókn­ar­vert væri sú að í Asíu sé greitt fjórum sinnum meira fyrir skip á leið í nið­ur­rif en í Evr­ópu. Að minnsta kosti 137 starfs­menn í Alang hafa lát­ist við störf síð­ast­lið­inn ára­tug, sam­kvæmt því sem kom fram í Kveik.

[links]Evr­ópu­sam­bandið (ESB) lög­festi Basel-sátt­mál­ann, sem gerður var 1998, fyrir 14 árum síðan og bann­aði þar með útflutn­ing hættu­lega og meng­andi úrgangs frá Evr­ópu. Frá 2018 hefur ESB svo lagt bann við því að skip yfir 500 brúttó­tonnum séu rifin ann­ars staðar en í vott­uðum end­ur­vinnslu­stöðv­um. Bæði Lax­foss og Goða­foss voru yfir þeirri stærð.

Sú lög­gjöf tók gildi á Íslandi fyrir ári síðan og gildir því um starf­semi Eim­skips. Brot á henni geta varðar fjár­sektum eða nokk­urra ára fang­elsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár